Fréttablaðið - 12.11.2010, Side 25
FÖSTUDAGUR 12. nóvember 2010 25
Nú eru hópar í samfélaginu sem vilja draga úr samstarfi trú-
félaga og skóla og ég tel ýmislegt
sem hægt er að ræða í þeim hug-
myndum. Það getur verið erfitt að
vera barnið sem fær ekki að taka
þátt þegar skólinn fer í heimsókn í
kirkjuna eða þegar presturinn eða
djákninn kemur í heimsókn í leik-
skólann.
Skólinn er ekki staður fyrir trú-
boð. Trúboð á heima í kirkju en ekki
í grunnskólum eða leikskólum. Um
þetta er reyndar enginn ágreining-
ur og mörkin hafa verið að skerpast
undanfarin ár að frumkvæði þjóð-
kirkjunnar. Ég skil þessa hópa því
að mörgu leyti og mér finnst sitt-
hvað gott í tillögum mannréttinda-
ráðs en að sama skapi þykir mér
sumt í tillögum þeirra bera vitni
um þótta í garð kristni og þá sér-
staklega þjóðkirkjunnar.
En hvernig ætli hægt sé að vinna
þetta svo að réttur barna sé tryggð-
ur og að foreldrar séu sáttir?
Hagsmunir barnanna hljóta allt-
af að vera í fyrirrúmi. Ég efast
ekki eitt augnablik um að skólar,
leikskólar, öll trúar- og lífsskoð-
unarfélög, íþróttafélög, skátar,
tónlistarskólar og öll þau er vinna
með börn vilji hag barna sem best-
an.
Margt kirkjunnar fólk hefur
brugðist ókvæða við þessum til-
lögum mannréttindaráðs sem hér
um ræðir enda upplifa mörg okkar
tóninn í tillögunum sem yfirlætis-
legan. Reyndar veit ég ekki til þess
að prestar séu hangandi á snerlin-
um í grunnskólum landsins og vilji
komast inn til þess að berja börnin
í höfuðið með Nýja testamentinu.
Ég kannast heldur ekki við að það
sé raunin í leikskólunum.
Það sem mér finnst skorta er
samtal um þessi mál við trú- og
lífsskoðunarfélög, skólastjórnend-
ur og foreldra með það að mark-
miði að komast sameiginlega að
ásættanlegri lausn. En raunin er
sú að Siðmennt er eina lífsskoðun-
arfélagið sem kom að tillögugerð-
inni.
En hver veit nema það sem
margir Íslendingar upplifa sem
árás lítils hóps á kirkju og kristni
sé það besta sem hefur komið fyrir
kristni á Íslandi?
Nú er fólk allt í einu farið að tala
um trú á annarri hverri kaffistofu
og í fjölskylduboðum og skrifa
í blöðin og blogga um trúmál og
kirkju. Það getur ekki verið annað
en gott. Kannski þurftum við,
kristið fólk á Íslandi, að láta vekja
okkur af værum svefni vanans.
Ég vona, trúi og bið þess að við
þurfum ekki að óttast hugmyndir
þessa hóps heldur verði þær ein-
mitt til þess að styrkja trúfrelsi á
Íslandi. Trúfrelsi er frelsi til trúar
og trúleysis. Vonandi sprettur af
þessu samtal sem kennir okkur að
umgangast hvert annað af meiri
virðingu hvaða lífsskoðun eða trú
við höfum. Tölum saman af yfir-
vegun og með velferð barnanna
okkar í huga. Samræða þeirra
hópa er málið varða er lykillinn
að farsælli lausn.
Vakin af værum svefni vanans
Kirkja og skóli
Guðrún
Karlsdóttir
prestur í
Grafarvogssöfnuði
SÝNING VERÐUR HELGINA 13. OG 14. NÓVEMBER. ÞAR MUNUM VIÐ KYNNA 2011
ÁRGERÐINA AF HOBBY HJÓLHÝSUNUM Á VERÐI SEM KEMUR Á ÓVART.
Allir vagnarnir eru endurhannaðir að utan sem innan
og hlaðnir nýjungum. Stórglæsilegar innréttingar,
fyrirkomulag og tæki. Nýtt eldhús, nýr sérhannaður
stór ísskápur, nýtt stjórnborð fyrir rafmagn og vatn.
Opið laugardag 12 til 16 og sunnudag 13 til 17.
Verið velkomin, það verður heitt á könnunni.
VÍKURVERK - ALLT Í FERÐALAGIÐ.
Góð fjárfesting!
VÍKURHVARF 6 - 203 KÓPAVOGUR - SÍMI 557 7720 - WWW.VIKURVERK.IS
FERÐUMST INNANLANDS.
2011
VERÐ FRÁ KR.
2.990.000,-
AF NETINU
Trú og trúleysi
Tryggt skal í
stjórnarskrá að
stjórnvöld taki
ekki ein trúar-
brögð fram
yfir önnur. Trú
og trúleysi séu meðal þeirra
mannréttinda sem njóti verndar
í stjórnarskrá. Trúfrelsi er hluti af
skoðanafrelsi og mannréttind-
um. Tryggja þarf bæði rétt fólks
til að iðka trú og hafa með sér
samfélag um trú, viðurkenningu
á mikilvægi hennar í lífi trúaðs
fólks. Þar á meðal er viðurkenn-
ing á helgisiðum, helgidögum og
helgum stöðum.
Blog.eyjan.is/fi a
Soffía Sigurðardóttir
Þjóðkirkja eða ríkis-
kirkja?
Íslenska þjóðkirkj-
an er og verður
þjóðkirkja í þeim
skilningi að lung-
inn úr íslensku
þjóðinni tilheyrir
henni og þykir
vænt um kirkjuna sína. Að mínu
viti á hin evangelíska lúterska
kirkja ekki að vera ríkiskirkja
enda hef ég talað fyrir aðskiln-
aði ríkis og kirkju frá því fyrir
fermingu. Kaus því að láta ferma
mig í Óháða söfnuðinum sem
er evangelísk lútersk kirkja utan
þjóðkirkjunnar.
Blog.eyjan.is/hallurm
Hallur Magnússon
Raunveruleg þrískipting
Raunveruleg
þrískipting ríkis-
valds, lýðræði og
jafnrétti eru lykill-
inn að því að losa
um skaðleg tök
sérhagsmunaafla
á íslensku samfélagi. Draga þarf
skýrari mörk milli framkvæmdar-
valds og löggjafarvalds og auka
áhrif kjósenda í kosningum.
Almenningur, þjóðin sjálf, þarf að
geta gripið inn í mál á hverjum
tíma og varið mikilvægustu hags-
muni sína.
Vísir.is
Hjörtur Hjartarson
Þjóðin kjósi framkvæmd-
arvald
Það er ekki óvar-
legt að segja að
framkvæmdarvald
íslenska lýðveld-
isins geri það
sem það vill, setji
sér sjálft þau lög
og þær reglur sem það þarf að
vinna eftir. Þessu þarf að breyta
þannig að Alþingi fari eitt með
löggjafarvaldið og setji ríkisstjórn
þær leikreglur sem starfa á eftir.
Til þess að skilin verði afgerandi
tel ég að taka verði skipan fram-
kvæmdarvalds frá Alþingi með
þeim hætti að þjóðin kjósi höfuð
framkvæmdarvaldsins.
Visir.is
Þór Gíslason