Fréttablaðið - 12.11.2010, Page 30
12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR4
Eftir að Feneyjar urðu miðstöð viðskipta við Austurlönd, barst kaffi sjóleiðina
þangað í síauknum mæli og urðu Feneyjabúar eðlilega þeir fyrstu til að nýta sér
þennan einstaka drykk. Fyrsta kaffibúðin var opnuð í Feneyjum
árið 1683 og í kjölfarið opnuðu fleiri búðir og kaffibarir víðs
vegar um Ítalíu, í Tórínó, Genúa, Mílanó, Flórens, Róm og
Napólí.
www.kaffi.is
Malað kaffi er best að geyma í frysti eða vel lokuðu íláti í kæliskáp.
Þannig heldur kaffið bragðgæðum sínum og ferskleika. Best er þó að
geyma baunirnar ómalaðar og mala þær rétt fyrir notkun. www.kaffitar.is
Leikir í kaffiboðum eru ekki ýkja
algengir en geta verið ótrúlega
skemmtilegir og gert boðið fjör-
ugt og öðruvísi.
Gömlu góðu kaffiboðin
standa alltaf fyrir
sínu en gaman getur
verið að reyna eitt-
hvað alveg nýtt.
S k e m m t i l e g
nýbreytni er að
fá hvern og
einn gest í
kaffiboð-
inu til að
rifja upp sínar
fyrstu minningar af kaffi og
kaffidrykkju og segja frá. Minn-
ingarnar geta verið fyrstu kaffi-
droparnir blandaðir í stóran bolla
með mjólk hjá ömmu og vinkon-
um hennar eða litlu
kaffiboðin sem
haldin voru
með leikfanga-
brúðurnar
sem gesti.
- jma
Öðruvísi kaffiboð
Margir eiga
minningar um
kaffiboð sem
haldin voru
fyrir brúður
heimilisins.
Ein leið til að hella upp á kaffi er að nota
pressukönnu. Gott er að hita glerið á
könnunni með heitu vatni áður en hellt
er upp á. Hæfilegt magn er 4-5 skeið-
ar í 8 bolla könnu. Sjóðið vatn og hellið
yfir, gott er að hræra upp í kaffinu og láta
standa í 3-4 mínútur áður en síunni er þrýst niður.
Mælt er með grófmöluðu kaffi í pressukönnur.
www.teogkaffi.is „Indíánar urðu fyrstir til að lesa
um framtíðina í sínum kaffikrús-
um, en kaffi teiknar vel upp mynd-
ir í bolla vegna litar síns. Ég nota
alltaf rótsterkt, íslenskt kaffi og
svolítið neskaffi saman við því þá
koma miklu skýrari myndir,“ segir
spámiðillinn Erla Alexandersdótt-
ir, sem byrjaði að spá í bolla um
fermingaraldurinn.
„Þetta byrjaði með fikti, en fljótt
fór ég að taka eftir að ég þekkti
fólkið í bollunum,“ segir Erla um
spálestur sem fer þannig fram að
blásið er í bollann eftir að drukkið
er úr honum kaffi og bollinn svo
settur á hvolf til þurrkunar.
„Í bolla koma myndir af atburð-
um, stöðum og fólki sem er löngu
farið. Það er hvorki hugarburður
né eitthvað sem ég get búið til því
ég þekki ekki fólkið sem kemur til
mín í spádómum. Margir trúa ekki
því sem ég sé í bollunum en hringja
aftur þegar þeir hafa spurst fyrir
um þá sem birst hafa í bollanum
og fengið staðfest hver það var,“
segir Erla og nefnir átakanlegt
dæmi sem sýnir hversu löngu
liðnir atburðir koma fram í boll-
unum. „Þá birtist í bolla ókunnr-
ar konu lítill drengur grátandi í
fjöru og skip sem sigldi í burt. Ég
skynjaði strax mikinn sársauka og
sagði það konunni sem varð skrít-
in á svip en sagði mér eftir spá-
dóminn að fjölskylda hennar hefði
farið til Vesturheims og þurft að
skilja eftir dreng sökum fátæktar,
átti ekki fyrir fargjaldi hans. Þetta
reyndist vera afi hennar, sem svo
átti að sækja seinna meir en varð
aldrei úr vegna peningaleysis,“
segir Erla.
Erla notar ávallt rjómalitaða
kaffibolla til spálesturs. „Sjúkdóm-
ar koma mjög skýrt fram í bolla og
merkilegt að þeir sem fengið hafa
eða eru með krabbamein fá hvíta
bletti í bolla, sem eru ekki einu
sinni hvítir í grunninn. Þá segi
ég fólki alltaf eins og er, og nota
meðfram tarotspil sem styðja und-
antekningarlaust það sem bollinn
segir. Því er greinilegt að fram-
liðnir vilja segja okkur frá fram-
tíðinni og að hægt er að koma til
okkar boðum eftir dauðann.“
Erla vann um tíma hjá Sálar-
rannsóknarfélagi Íslands og sá
framliðna strax sem lítil stúlka í
Mýrdalnum. „Ég var mjög hrædd
við sýnir mínar sem barn og fékk
seinna sannanir fyrir því sem ég
sá í bókum af látnum sjómönn-
um sem farist höfðu undan suður-
ströndinni við Pétursey. Nú sé ég
framliðna í kringum fólk og stund-
um koma þeir látnu á undan og
segja mér frá einhverju sem við-
kemur þeim sem eru á leið til mín,
en þá finnst mér heiðarlegast að
segja viðkomandi frá því,“ segir
Erla sem telur að allir geti lært að
lesa í kaffibolla ef þeir bara leggja
sig eftir því.
„Í bollanum birtist líf okkar og
þar má finna miklar upplýsing-
ar sem lesa má eins og fréttablað
ef fólk bara kann það,“ segir Erla
sem upplifir mikla óvissu þeirra
sem koma til hennar í spádóm nú.
„Margir eru í óvissu vegna pen-
ingaleysis eða í sárum vegna ásta-
mála. Þá hvíla veikindi þungt á
fólki, ekki síst þar sem börn eiga
í hlut. Fólki líður hins vegar betur
þegar það fer frá mér og mér finnst
það fá einhverja hjálp í framhaldi,
því það er eins og betur sé hugs-
að um þetta fólk fyrir handan og
meiri tenging verði milli lifandi og
dáinna þegar þeir finna hve fólkið
er leitandi.“
thordis@frettabladid.is
Bollinn segir lífsins sögu
Íslendingar þykja með dulrænni þjóðum sem frá alda öðli hafa sóst eftir að fá framtíð sína lesna af
kunnáttufólki sem rýna kann í rúnir og ristur, spil og bolla. Erla Alexandersdóttir les ævi fólks úr kaffinu
Uppþornaðir kaffitaumar skilja eftir sig myndir og tákn af fólki, atburðum og stöðum
sem tengjast þeim sem úr bollanum drakk.
Erla Alexandersdóttir, spámiðill og snyrtifræðingur, hefur spáð fyrir Íslendingum síðan hún var fjórtán ára. Hún segir kaffitauma í
kaffibollum geyma mikilvægar upplýsingar um líf og tilveru allra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KAFFI
kaffivélar
– mest seldu sjálfvirku kaffivélarnar á Íslandi um árabil
NÓVEMBER
TILBOÐ
Verð frá 69.990