Fréttablaðið - 12.11.2010, Qupperneq 34
4 föstudagur 12. nóvember
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni.
Netfangið er kynlif@frettabladid.is
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
Makalaust skemmtanahald
Í hugum flestra er ástarsamband eitthvað sem ríkir milli tveggja einstakl-inga. Tilfinningaleg og/eða kynferðisleg tengsl við annan en maka eru
því túlkuð sem svik og getur slíkt leitt til sambandsslita. Skilgreiningin á
því hvað telst til framhjáhalds er hins vegar ekki algild heldur einstakl-
ingsbundin og eflaust nokkuð sem fá pör ræða.
Samkvæmt rannsóknum virðist hægt að skipta framhjáhaldi í þrjá
flokka: ástarsamband, tilfinningalegt samband og loks kynferðislegt sam-
band. Brotin geta því verið misalvarleg og afleiðingarnar eftir því. Alvar-
legasta brotið virðist vera þegar framhjáhaldið er bæði kynferðislegt og
tilfinningalegt en síst þegar það er eingöngu tilfinningalegt.
Í upphafi hjónabands virðast konur vera jafn líklegar körlum til að
halda framhjá. Tölur benda þó til þess að þriðjungur karlmanna muni
á einhverju stigi sambandsins halda framhjá, en einungis fimmtungur
kvenna. Tegund framhjáhaldsins virðist rista misdjúpt hjá kynjunum. Ég
tel að það sé svolítil einföldun að halda því fram að konur fyrirgefi frekar
kynferðislegt samneyti en tilfinningalegt, og karlmenn öfugt. Hvert sem
framhjáhaldið er telst það oftast sem svik við makann.
Framhjáhald er frekar algengt fyrirbæri innan sambanda. Samkvæmt
nýlegum rannsóknum fannst meirihluta gerenda ákveðnar aðstæður rétt-
læta framhjáhald. Mér finnst þessar pælingar áhugaverðar í ljósi umræðu
um framhjáhald í tengslum við vinnustaðateiti, sem færast jú í aukana
fyrir jól. Margir telja framhjáhald loða frekar við ákveðnar starfsstéttir
en aðrar. Þó virðist staðreyndin vera sú að þeir sem halda framhjá með
vinnufélaga gera það af því þeir hafa tækifæri til þess, óháð því hversu
hamingjusamir þeir eru í samböndum sínum. Sumir vinnustaðir hafa
reynt að sporna við þessu með því að bjóða mökum einnig með í teitin.
Slíkt mætir þó oft háværum mótmælum frá starfsmönnum sem segja að
þá sé „ekkert gaman“.
Ég þekki þetta persónulega því ég hef unnið á fjölda ólíkra vinnustaða
og því orðið vitni að þessari umræðu í hvert sinn sem teiti er skipulagt.
Þeir sem vilja makalausar skemmtanir segja makana ekki skilja vinnu-
staðahúmorinn. Með öðrum orðum vill fólk fá að vera hömlulaust og ekki
undir vökulu auga makans, sem telur ofan í það drykkina og spyr hver
hinn og þessi sé. Þá er gengið út frá því að þögult samkomulag sé ríkjandi
um að það sem gerist í vinnuteiti fari ekki út fyrir veggi vinnustaðarins.
Í vinnunni getur fólk aðskilið heimili og starf og er gjarnan hvatt til að
gera það, starfsmaðurinn er þá einstaklingur en ekki par.
Ég aftur á móti hvet þig til að opna þessa umræðu með maka þínum
og á vinnustaðnum. Verður jólahlaðborðið í ár makalaus skemmtun og
hvað hefur það í för með sér?
L
istakonurnar Una Hlín Kristjánsdóttir, Harpa Einarsdóttir
og Lína Rut voru heiðraðar á Listakvöldi Baileys á föstu-
daginn fyrir viku. Konurnar þykja hafa skarað fram úr á
sínu sviði og hafa sett sitt mark á tískuna í dag. Margar
góðar konur sóttu veisluna og fögnuðu með listakonunum líkt og
sjá má á myndunum. - sm
FLOTTAR ÍSLENSKAR LISTAKONUR HEIÐRAÐAR:
Setja mark sitt
á tískuna
Heiðruðu listakonur Anna Gulla, Þórunn Sævarsdóttir og Íris Ósk
Hjaltadóttir skemmtu sér vel í veislunni.
Flottar konur Áróra, Auður Eiríksdóttir og Kristín sóttu
veisluna.
Góðar saman Þær Sigríður, Stefanía, Kristjana og Rebekka létu sig
ekki vanta og heiðruðu listakonurnar með nærveru sinni.
Góðir gestir Fríða, Kamilla og Ísold voru á meðal gesta.
Heiðursgestir Listakonurnar samankomnar. Una Hlín Kristjánsdóttir, Harpa Einarsdóttir og Lína Rut voru heiðraðar fyrir störf sín.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
20
AF ÖLLUM VÖRUM
f ö s t u d a g - s u n n u d a g s
AFSLÁT TARDAGAR
AFSLÁTTUR
%
I
Smáralind S: 522-8380