Fréttablaðið - 12.11.2010, Page 41

Fréttablaðið - 12.11.2010, Page 41
Fiðruð fíkn (Feathered Cocaine) Olíufurstarnir í Persaflóanum eru helteknir af veiðifálkum og borga allt að einni milljón dollara fyrir góðan fugl. En það eru fleiri en olíufurstarnir sem stunda fálkaveiðar: Osama Bin Laden er heltekinn fálkaveiðimaður og notar fálkana til fjármögnunar Al-Qaeda. Fálkasaga skyggnist inn í lokaðan heim sem örfáir aðilar í veröldinni hafa haft aðgang að. Umhverfisvernd, heimspólitík og hryðjuverk fléttast saman í þessari ótrúlegu sögu. Þorkell og Örn Marinó hafa unnið að þessari mynd árum saman og ferðast víða um heim. Myndin var frumsýnd á Tribeca kvikmyndahátíðinni í New York í vor og fór í kjölfarið á Hot Docs heimildamyndahátíðina í Toronto. Hún vakti mikla athygli á báðum stöðum og hefur hlotið umtalsverða umfjöllun fjölmiðla. I'm Still Here: The Lost Years of Joaquin Phoenix Heimildarmyndin I'm Still Here: The Lost Year of Joaquin Phoenix fjallar um árið 2009 í lífi leikarans Joaquins Phoenix. Þetta var árið þar sem hann hætti að leika og gerðist rappari. Hann fór í sögulegt og stórfurðulegt viðtal við David Letterman og réðst á áhorfenda á miðjum tónleikum, sem hreifst ekki af rapphæfileikum hans. Þetta var árið þar sem hann virtist hafa misst vitið! Fjölmiðlar fylgdust með ósköpunum af miklum áhuga og internetið logaði. Voru Joaquin Phoenix og Casey Affleck að gabba allan heiminn eða var þetta kannski ein stór félagsfræðitilraun? Inside Job Inside Job fjallar á ítarlegan hátt um efnahags- hrunið árið 2008, sem kostaði meira en 20 trilljónir Bandaríkjadala og olli því að milljónir manna misstu vinnuna og heimili sín í verstu niðursveiflu í efnahagskerfi heimsins síðan kreppan mikla reið yfir á þriðja áratug síðustu aldar. Myndin er byggð á ítarlegum rannsóknum og viðtölum við aðila úr lykilstöðum í fjármálalífi, stjórnmálalífi, fjölmiðlum og háskólum heimsins. Inside Job er einhver umtalaðasta mynd ársins og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Meðal þess sem sérstaklega er tekið fyrir í myndinni er íslenska efnahagshrunið. GasLand GasLand fjallar um það hvernig olíuiðnaðurinn í Bandaríkjunum hefur lagt heilu þorpin í rúst og eyðilagt vatnsból þúsunda manna með borunum eftir gasi undanfarin ár. Stjórnandinn, Josh Fox, fór víða um Bandaríkin til að skoða hvernig gasborunum væri háttað og hitti fyrir fólk sem þjakað er af heilsufarsvandamálum vegna mengunar vatnsbóla af völdum slíkra borana. Í sumum tilfellum gat fólk kveikt í drykkjarvatni sínu! Fox fór einnig til Washington og ræddi við þingmenn og fólk í stjórnkerfinu um þetta eldfima mál. Myndin hlaut verðlaun dómnefndar á síðustu Sundance hátíð og hefur að auki hlotið mörg önnur verðlaun. á Miði.is OPNUNAR MYNDIN 2010 · 107 mín. · Bandaríkin · Josh Fox 2010 · 120 mín. · Bandaríkin · Charles Ferguson 2010 · 108 mín. · Bandaríkin · Casey Affleck 2010 · 79 mín. · Ísland · Þorkell S. Harðarson og Örn Marinó Arnarson ............... ...............

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.