Fréttablaðið - 12.11.2010, Síða 46
16 föstudagur 12. nóvember
tíðin
✽ frostbitnar kinnar
Á uppleið:
Vetraríþrótt-
ir. Nú ættu
karlar, konur
og börn að skott-
ast niður í geymslu,
draga fram skíðin
eða snjóbrettin og
koma þeim í stand fyrir veturinn.
Fyrsti snjórinn er fallinn og því engin
ástæða til annars en að trúa því að í
vetur munum við geta stundað þess-
ar íþróttir langt fram á vorið.
Hjálpsemi. Þótt það sé hart í ári
hjá mörgum ættu flestir að geta látið
gott af sér leiða. Styðjið gott málefni,
farið í gegnum fataskápinn og gefið
gamlar flíkur til hjálparstofnana eða
opnið dyrnar fyrir næsta mann. Það
er gaman að gleðja aðra.
Borðspil. Hóið vinum ykkar eða
fjölskyldu saman til að spila á spil.
Margir spila einungis á spil
yfir jólahátíðina, en
það má alveg
halda þeirri iðju
áfram allan árs-
ins hring.
Á niðurleið:
Ökkla-
sokkar.
Stuttir sokk-
ar sem verja
mann ekki
gegn kulda og
blæstri eiga skilið frí. Nú er mál að
klæðast þykkum, uppháum sokkum.
Eftirhermur. Hollywood-maskínan
er gjörn á að framleiða eigin útgáfur
af vinsælum evrópskum og asískum
kvikmyndum. Hvers vegna að horfa
á útþynnta Hollywood-mynd þegar
maður getur notið þess að horfa á
upprunalegu myndina?
Venjulegur bjór. Skiptið út þess-
um venju-
lega því nú er
tími jólaöls-
ins genginn
í garð. Njót-
ið á meðan
þið getið.
mælistikan
KÁPA FYRIR VETURINN Brúnir lita-
tónar hafa verið heitir í vetur og á þessi kápa
upp á pallborðið hjá þeim sem hafa fallið fyrir
þeim litum. Kápan fæst í Topshop á 24.990
krónur.
ALDUR: 45 ára
STARF: Pródúsent hjá RÚV
HVAÐ ERTU BÚIN AÐ VERA LENGI Í
VEIÐINNI? Ég veiddi sem lítil stelpa í
Hraunsholtslæknum í Garðabæ. Þar var
ég öllum stundum í barnæsku. Svo fyrir
tólf árum fór ég aftur að stunda veiðar,
og varð alveg helsýkt af fluguveiðibakt-
eríunni, sem getur verið mjög skæð.
AF HVERJU BYRJAÐIRÐU? Ég held
að ég hafi bara veiðigenið í mér. Pabbi,
bræður mínir og frændur veiddu allir, og
mér fannst þetta bara spennandi.
HVAÐ ER ÞAÐ BESTA VIÐ VEIÐINA?
Það er náttúran, fuglasöngurinn og flór-
an allt í kring. Auðvitað spilar inn í hin
góða tilfinning sem fæst með því að
sigrast á aðstæðum og fá fisk til þess
að taka.
ER ÞETTA DÝRT ÁHUGAMÁL? Þú
getur valið hversu dýrt það verður. Það
er auðvelt að stunda veiðar innan skyn-
samlegs fjárhagsramma.
Ragnheiður Thorsteinsson:
Veiðidellan er bráðsmitandi
DELLU
kerling
Á
forsíðu nýjasta heftis hin vinsæla danska
tímarits Femina má sjá fyrirsætu klæð-
ast flík frá íslenska tískumerkinu Ander-
sen & Lauth. Þetta er annað sinn á árinu
sem blaðið er með fatnað frá Andersen & Lauth á
sjálfri forsíðunni.
Gunnar Hilmarsson hjá Andersen & Lauth segir
merkið hafa fengið mikla umfjöllun og á þessu
ári hefur fatnaður frá
Andersen & Lauth
verið notaður í yfir 200
tískuþætti í norrænum
tímaritum.
Hann segir forsíðu-
mynd alltaf vekja
mesta athygli og að
margir skoði listann
yfir hvaða hönnuðir
séu á forsíðunni. „Í
þessu tilfelli rigndi
inn fyrirspurnum
á drefingaraðila
okkar í Danmörku
eftir að blaðið kom út. Inni í blaðinu eru betri
myndir af peysunni, sem er áberandi og með
fallegu bróderíi,“ segir Gunnar, en peysan er
nú uppseld víðast hvar.
Flík frá Andersen & Lauth prýddi forsíðu Fem-
inu fyrr í sumar. Auk þess klæddist nýkjörin Ungfrú
Frakkland kjól frá merkinu á forsíðu FHM í sumar.
„Við höfum verið það lánsöm að tímarit á borð við
Marie Claire, Vogue, For Him, Elle, Cosmopolitan,
Costume, Eurowoman og Grazia hafa birt flíkur frá
okkur á síðum sínum,“ segir Gunnar að lokum.
- sm
ANDERSEN & LAUTH ER VINSÆLT VÍÐA UM HEIM:
PRÝÐIR SÍÐUR
FRÆGRA
TÍSKUTÍMARITA
Forsíðuhönnun Flíkur frá Andersen & Lauth hafa
tvisvar prýtt forsíðu Femina á þessu ári og telst það
góður árangur. Gunnar Hilmarsson, annar eigenda
merkisins, segir mikið lán hvað flíkurnar hafa birst víða.
Sérblaðið
Matur
Kemur út laugardaginn
13. nóvember 2010
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband
Sigríður Hallgrímsdóttir • sigridurh@365.is • 512 5432
Benedikt Freyr • benediktj@365.is • 512 5411