Fréttablaðið - 12.11.2010, Page 48

Fréttablaðið - 12.11.2010, Page 48
18 föstudagur 12. nóvember LILJA INGIBJARGARDÓTTIR, 24 ÁRA Námsmaður og fyrirsæta. Lilja býr í gamla bænum í Hafnarfirði, sem hún lýsir sem rólegu og sætu hverfi. Hún ólst þó ekki upp í Hafnarfirði heldur í Vesturbæ Reykjavíkur og Laugarneshverfinu. Lilja hefur einnig búið mikið erlendis og þá helst í Bandaríkjunum, þar sem hún starfaði meðal annars sem fyrirsæta. Að sögn Lilju hefur hana lengi dreymt um að vinna í sjónvarpi og stýra skemmtilegum og fræðandi þætti. Sá draumur verður að veruleika í vetur og hefur vonandi fleiri góð tækifæri í för með sér. GAMLAR ÁSTFANGNAR STYTTUR. Mamma mín gaf foreldrum sínum þess- ar styttur og þegar þau dóu þá gaf hún mér þær. Mér þykir óendanlega vænt um þær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LUKKUTRÖLLASAFNIÐ FRÁ ÆSKUÁRUNUM. Ég byrjaði að safna lukkutröll- um þegar ég var lítil og núna á ég tuttugu lukkutröll af öllum stærðum og gerðum. Hef alltaf ætlað að gefa frænkum mínum þetta en hef ekki fengið mig í það. Ætli ég gefi ekki dóttur minni safnið þegar hún kemur í heiminn í nánustu framtíð. KODDINN MINN. Ég er búin að eiga þennan kodda síðan ég var eins árs. Ég fæ mig ekki til að henda honum eða kaupa nýjan. Ég sef líka best með þennan kodda og veit hvernig hann fer hausnum á mér best. MYND AF FLATIRON-BYGGING- UNNI Ég keypti þessa mynd af lista- manni á Union Square í New York þegar ég átti heima þar. Þetta er uppá- halds byggingin mín í þessari borg. MYNDAVÉLIN MÍN. Hefur tekið myndir af ævintýrum mínum allt frá New York, LA, Mílanó og fleiri stöðum auk þess að fanga frábær augnablik með fjölskyldu og vinum. Ég týndi líka myndavélinni á Þjóðhátíð 2009 en fékk hana til baka því ég merkti hana. SKARTGRIPASKRÍN Móðir fyrrverandi kærasta míns gaf mér þetta skartgripa- skrín því hún sagði að ég þyrfti eitt- hvað fallegt utan um skartgripina mína á ferðalögum svo þeir myndu ekki eyði- leggjast. BELTI ÚR SPÚTNIK Ég keypti þetta belti í Spútnik þegar ég var um átján ára og hef átt það síðan. Það gengur við bókstaflega allt. SÓLGLERAUGU Keypti þau á 5 dollara í New York fyrir tveimur árum og hef átt þau ósködduð síðan. Finnst þau rosa flott og þægilegt, ef maður er ómálaður og þarf að hlaupa út, að skella þeim á sig. SLÉTTUJÁRN Ég nota sléttujárn voða mikið. Ég er ekki sú besta að búa til einhverjar glamúrgreiðslur í hárið á mér og því gríp ég bara í sléttujárnið og slétti yfir hárið á mér. LEGGINGS Mér finnst ótrúlega þægi- legt að ganga í leggings. Ég á semi- glans leggings sem ég held mikið upp á og er búin að eiga í tvö ár. Ég vona að ég eigi eftir að eiga þær mikið lengur og þær detti aldrei úr tísku. TOPP 10 20% AFSLÁTTUR ALLA HELGINA Gildir frá föstudegi til sunnudags. Jane Norman Smáralind. Sími: 522-8350

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.