Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.11.2010, Qupperneq 52

Fréttablaðið - 12.11.2010, Qupperneq 52
 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR Fairtrade kaffi fæst hjá okkur Fairtrade stendur fyrir sanngjörn viðskipti. Markmiðið er sjálfbærni fátækra kaffibænda í þróunar- löndum, sem geta ekki verslað beint með sína vöru og geta því ekki samið um sanngjarnt kaupverð. Fairtrade gerir þeim kleift að lifa af ræktuninni án þess að verða háðir erlendri hjálparstarfsemi. Við erum stolt af því að styðja við þetta málefni. Te & Kaffi er eina framleiðslufyrirtækið á Íslandi sem hefur leyfi til að framleiða Fairtrade vottað kaffi. Það fæst í öllum verslunum og kaffihúsum okkar. PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 02 53 9 100% ARABICA SLOW ROAST veljum íslenskt gæðakaffi frá 1984 www.teogkaffi.is Verslanir og kaffihús Laugavegi 27, Kringlunni, Smáralind - Eymundsson Akureyri, Austurstræti og Skólavörðustíg - Grandagarði Te og Kaffi – Stapahrauni 4 220 Hafnarfirði – Sími 555 1910 www.fairtrade.net „Þegar ég heyrði að fólk væri að selja eldfjallaösku í litlum til- raunaglösum fannst mér það frek- ar hallærislegt og hugsaði með mér: Bíddu við, er þetta það eina sem hægt er að selja til minning- ar um eldgosið? Svo fann ég litað hlýraroð í Hvítlist og um leið sá ég eldgosið fyrir mér. Útkoman er þessi,“ segir Sigurveig Eysteins hönnuður og sýnir te- og kaffi- hettur úr hlýraroði og ull. „Eld- gosið heldur kaffinu og teinu heitu, sjáðu til,“ bætir hún við. Sigurveig hefur notalega vinnu- stofu í gömlum beitningaskúr við Hafnarfjarðarhöfn. „Ég er hér í gef- andi umhverfi innan um beitninga- karla, arkitekta og annað listafólk,“ segir hún. Margt fallegt og forvitni- legt er í kringum hana í skúrnum því auk te- og kaffihettanna hannar hún skartgripi og selur undir merkinu Sivva design, sem er sameiginlegt hönnunarmerki hennar og nöfnu hennar Björns- dóttur fatahönnuðar. „Ég er alltaf að gera eitthvað nýtt,“ segir Sigurveig og bendir á jólaskraut úr laxaroði, handprjón- uð armbönd úr garni og hrauni og litlar grafíkmyndir sem hún lærði að búa til í háskóla í Bretlandi. Vörurnar selur hún í vinnustof- unni sinni og eins er hún á Face- book undir sivvadesign. gun@frettabladid.is Eldgosahetturnar tryggja að teið og kaffið haldist heitt Eitt af því jákvæða sem eldgosið í Eyjafjallajökli leiddi af sér er innblástur sem það veitti íslenskum hönnuðum. Sigurveig Eysteins hóf til dæmis að búa til eldfjallahettur sem halda tei og kaffi heitu. „Svo fann ég litað hlýraroð í Hvítlist og um leið sá ég eldgosið fyrir mér,“ segir Sigurveig Eysteins um hugmyndina bak við kaffi- og tehetturnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Kaffi skilur eftir leiðinlega bletti í fötum og á húsgögnum ef óvarlega er farið með bollann. Kaffidrykkja er þó svo stór hluti af okkar daglegu rútínu að kaffi- blettir eru algengir. Leiðbeiningastöð heimilanna segir best að ná blettum úr fatnaði sem allra fyrst eftir að hellist niður. Ef efnið nær að drekka efnið í sig þornar bletturinn inn í efnið og erfiðara verður að ná honum úr. Á netinu er víða að finna húsráð við hreinsun kaffibletta, eftirfar- andi ráð koma úr ýmsum áttum. Þegar kaffi hellist niður skal koma flíkinni strax undir kalda vatnsbunu. Láta renna vel á blett- inn og nudda létt. Gamla kaffi- bletti er betra að þvo í heitu vatni og nota uppþvottalög á blettinn. Uppþvottalögurinn er þá borinn í blettinn og látinn liggja í 4 til 6 klukkustundir. Að því loknu skal flíkin þvegin eftir þvottaleiðbein- ingum. Ef bletturinn næst enn ekki úr má reyna að bera glýserin eða grænsápu á blettinn og láta bíða í allt að tíu klukkustundir. Flíkin er síðan þvegin samkvæmt þvotta- leiðbeiningum. Ráðlegra er að skoða vel þvotta- leiðbeiningar fyrir flík áður en sterk blettahreinsiefni eru notuð. - rat Hvimleiðir kaffiblettir Kaffi drekkum við mörg á hverjum degi. Því er ekki óalgengt að við hellum því niður á okkur. Kahlúa er þungur og bragðmik- ill mexíkóskur kaffilíkjör með sterkum kaffikeimi. Drykkurinn inniheldur vín- anda og er vinsæll í ýmsa kóladrykki og kokkteila, svo sem Hvítan Rússa, Svartan Rússa, B-52 shooter og Brave Bull. www.visindavefurinn.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.