Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 58
 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR30 timamot@frettabladid.is „Við höldum upp á fimmtíu ára afmælið í dag og bjóðum foreldrum í morgunkaffi hingað í leikskólann til okkar. Milli klukkan 14 og 17 verður svo opið hús fyrir vini og velunnara Hagaborgar,“ segir Sigríður Sigurðardóttir, leikskólastjóri á Hagaborg. „Gestir geta litið við og þegið kaffi og kökur og skoðað sig um. Krakkarnir hafa skreytt húsið og eru vel með á nótunum að leikskólinn þeirra eigi afmæli.“ Hagaborg er einn af eldri leikskólum Reykjavíkurborg- ar en húsið var byggt af Barnavinafélaginu Sumargjöf sem setti þar á stofn fjögurra deilda dagheimili árið 1960. Húsið er á tveimur hæðum og fyrstu árin var dagheimilið einungis til húsa á neðri hæðinni. Efri hæð hússins hýsti ýmis konar starfsemi sem tengdist þó börnum og málefn- um barna á einhvern hátt. Sumargjöf hafði þar funda- aðstöðu og skrifstofur og um tíma var ljósastofa Hvíta bandsins einnig á efri hæðinni. Einnig var íbúð fyrir for- stöðukonu dagheimilisins, þá voru skrifstofur Dagvistar barna þar um tíma og einnig rekið skóladagheimili fyrir Melaskóla. Reykjavíkurborg keypti húsið af Sumargjöf árið 1996 og fékk leikskólinn allt húsið til umráða árið 2000. „Í dag er 101 barn hér á leikskólanum á fimm deildum. Börnunum hefur bæði fækkað og fjölgað gegnum árin en þegar ég byrjaði hér árið 1981 voru hér 68 börn,“ segir Sigríður sem tók við starfi leikskólastjóra árið 1996. „Það er mjög gott að vinna í þessu húsi en við erum til dæmis með góðan íþróttasal á efri hæðinni. Í starfinu leggjum við því áherslu á hreyfingu en auk þess eru mynd- list og málörvun stórir þættir í starfinu. Það er þó númer eitt að hafa gaman hér á Hagaborg.“ heida@frettabladid.is LEIKSKÓLINN HAGABORG: FAGNAR FIMMTÍU ÁRUM Einn af elstu leikskólunum NÚMER EITT AÐ HAFA GAMAN Sigríður Sigurðardóttir, leikskólastjóri Hagaborgar, með hópi barna en leikskólinn fagnar fimmtíu ára starfs- afmæli í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÞÓRBERGUR ÞÓRÐARSON rithöfundur lést þennan dag árið 1974, 85 ára að aldri. „Mér fannst ég mundi verða afskaplega vitur, ef ég hefði tíma til að sitja nógu lengi í Hlíðinni aleinn. En ég var alltaf að flýta mér og missti af viskunni.“ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samhug og hlýju við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Eybjargar Sigurðardóttur Hagamel 30. Þorvaldur Geirsson Helga Guðjónsdóttir Lovísa Geirsdóttir Valgerður Geirsdóttir Viktor Arnar Ingólfsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Jónína Guðrún Andrésdóttir Herjólfsgötu 38, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landakotsspítala miðvikudaginn 10. nóvember sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Áslaug Ásmundsdóttir Gunnlaugur S. Gíslason Ásdís H. Ásmundsdóttir Bergur J. Hjaltalín Andrés Ásmundsson Erna D. Stefánsdóttir Rúnar Þór Halldórsson Hrafnhildur Þórðardóttir Gunnar Þór Halldórsson Inga Dóra Ingvadóttir Halldór Örn Rúnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, stjúpmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, Hrefna Sveinsdóttir frá Vík í Mýrdal, Sóltúni 30, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 9. nóvember. Útförin fer fram frá Laugarneskirkju, 23. nóvember kl. 15.00. Elsa Þorsteinsdóttir Axel Bryde Sveinn Hrólfsson Daði Hrólfsson Debora Turang Arnar Þór Hrólfsson Andri Hrólfsson Sunna Karlsdóttir Ingólfur Hrólfsson Hanna Jónsdóttir Gunnhildur Hrólfsdóttir Finnur Eiríksson Bryndís Hrólfsdóttir Engilbert Gíslason barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri, Garðar Skúlason flugstjóri, Lúxemborg, andaðist á Landspítala Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut að morgni fimmtudagsins 4. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 15. nóvember kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Kristinsdóttir Elísabet Eir Garðarsdóttir Dagný Eyjólfsdóttir Freyja Rut Garðarsdóttir Alexandra Garðarsdóttir Gísli Skúlason. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður, systur, ömmu og langömmu, Vigdísar Dagmarar Filippusdóttur Bjarmalandi 14, Sandgerði. Fyrir hönd aðstandenda, Karl Þorbergsson. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Guðmundur Jónsson píanóleikari, Vatnsnesvegi 29, Keflavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, fimmtudaginn 11. nóvember. Ingibjörg Þorbergs Auður Eir Guðmundsdóttir Helgi Gestsson Guðmundur K. Guðmundsson Vigdís Sigtryggsdóttir Helga K. Guðmundsdóttir Stefán Sigurðsson Þórdís Guðmundsdóttir Sigurður V. Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu, systur og tengdadóttur, Sigríðar Kristínar Sigtryggsdóttur Brekatúni 3, Akureyri. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heimahlynningar á Akureyri, starfsfólk lyfjadeildar 2 á FSA og Rebekkustúkan Auður. Guðmundur Stefán Svanlaugsson Birgir Haraldsson Inga Benetyte Sigríður Kristín Benetyte og María Elvyra Benetyte Guðmundur Guðmundsson Sæunn Valdís Kristinsdóttir Ragnar Ólafur og Kapitola Kristín Anna Freyja Guðmundsdóttir Róshildur Sigtryggsdóttir Margrét Sigtryggsdóttir Anna Freyja Guðmundsdóttir Elskuleg eiginkona mín,móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Elsa Petra Björnsdóttir Skálarhlíð, Siglufirði, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 13. nóvember kl. 14.00. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kvenfélagið Von. Ingimar H. Þorláksson Erla Hafdís Ingimarsdóttir Konráð Karl Baldvinsson Guðfinna Sigríður Ingimarsdóttir Þórdís Petra Ingimarsdóttir Ragnar Ragnarsson Jóhanna Ingimarsdóttir Sveinn Einarsson Sólrún Ingimarsdóttir Oddur Óskarsson Björn Þór Ingimarsson Lukrecija Bokan Daníelsdóttir Birgir Ingimarsson Pálína Kristinsdóttir Bylgja Ingimarsdóttir Guðbrandur Skúlason Rakel Björnsdóttir Thomas Fleckenstein Baldvin Kristjánsson Jóna Heiðdal. Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, Ásu Sólveigar Þorsteinsdóttur María Guðmundsdóttir Guðmundur Valur Sævarsson Áslaug Guðmundsdóttir Guðlaugur Guðmundsson Þórey Birgisdóttir MOSAIK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.