Fréttablaðið - 12.11.2010, Síða 62
34 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR34
menning@frettabladid.is
Fyrsta yfirlitssýning á
verkum Karls Kvaran list-
málara síðan árið 1986
verður opnuð á fæðingar-
degi listamannsins í næstu
viku. Karl skildi eftir sig
mikið og merkilegt ævi-
starf, segir Ásdís Ólafsdótt-
ir sýningarstjóri.
„Karl var tvímælalaust einn af
fremstu listamönnum Íslendinga á
20. öld. Hann var óvenju afkasta-
mikill og skildi eftir sig mikið og
merkilegt ævistarf,“ segir Ásdís
Ólafsdóttir sýningarstjóri yfir-
litssýningar um listmálarann
Karl Kvaran sem opnuð verður í
Listasafni Íslands í næstu viku. Í
aðdraganda sýningarinnar voru öll
verk Karls sem vitað var um, bæði í
opinberri eigu og einkaeigu, skráð
og spannar skráin um 500 verk.
Þessar upplýsingar voru ómetan-
legar segir Ásdís þegar farið var
að huga að yfirlitssýningunni.
„Úr þessum verkum valdi ég
rúmlega 80 verk, bæði olíu- og
gvassmyndir, teikningar, blek-
myndir og fleira. Ég reyni að gefa
góða mynd af ferli hans, en það sem
ég gekk út frá þegar ég var að vinna
sýninguna voru þessi syrpukenndu
vinnubrögð sem hann ástundaði.
Hann var maður sem gekk alla
leið, vann kannski að sama mótíf-
inu árum saman þannig að ég set
saman verk frá mismunandi tímum
sem hafa þó sama mótíf.“
Dæmi um stef sem Karl vann
með eru hringform, brotnir hring-
ir, slengjur og línur. „Hann var
flinkur teiknari og línan var mjög
mikilvæg í verkum hans. Á sýn-
ingunni eru bæði fígúratíf verk
og abstrakt þannig að þróunin sést
vel. En þó að hann málaði aðallega
óhlutbundin verk þá vann hann
alltaf einhver hlutbundin verk
meðfram.“
Ásdís segir sérstöðu Karls liggja
í því að hann hafi haldið sig við
abstraktlistina allar götur frá því
að hann hóf að mála abstrakt árið
1952.
„Hann fór alla leið með abstrakt-
listina og byggði upp sérstak-
an og auðþekkjanlegan stíl. Karl
var mjög einlægur og heill lista-
maður þannig að þetta eru mjög
djúp verk. Að sumum vann hann
árum saman en hann var mjög
kröfuharður. Hans sérstaða ligg-
ur kannski í því að hann er ekki
með mikið af náttúruvísunum í
sínum verkum heldur gengur út
frá forminu, litunum og mynd-
fletinum, þannig var hann mjög
huglægur listamaður. Hann var
og mjög ljóðrænn sem er kannski
áhugaverð þversögn.“
Karl lést árið 1989, 65 ára gam-
all. Ásdís segir að verk hans séu á
mjög háum stalli í íslenskri lista-
sögu í dag og væntanlega muni
sýningin og útgáfan í kringum
hana kynna hann enn frekar fyrir
listunnendum. „Verkin höfða til
dæmis mjög til ungs fólks, bæði
hin sterka formbygging og lita-
notkunin sem virkar nútímaleg.
Karl var mikill meistari í notkun
lita og tefldi oft andstæðum litum
saman af mikilli kunnáttu.“
Sýningin opnar í næstu viku, 17.
nóvember sem var fæðingardagur
Karls. sigridur@frettabladid.is
Einlægur og heill listamaður
ÁSDÍS ÓLAFSDÓTTIR Sýningarstjóri yfirlitsverka um Karl Kvaran er meðal höfunda
bókar um listamanninn sem gefin verður út í tilefni sýningarinnar í Listasafni íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MEISTARI LÍNUNNAR Karl Kvaran mark-
aði djúp spor með rökrænni afstöðu
sinni til þróunar íslenskrar abstraktlistar.
Karl Kvaran fæddist á Borðeyri við
Hrútafjörð árið 1924.
Eftir nám við einkaskóla Mar teins
Guðmundssonar og Björns
Björnssonar, 1939-1940, og
einkaskóla Jóhanns Briem og
Finns Jónssonar, 1941-1942,
stundaði hann nám við Handíða-
og myndlistaskólann 1942-1945,
Konunglega listaháskólann í
Kaupmannahöfn og einkaskóla
Peters Rostrup Bøyesen, 1945-
1948.
Á sýningu Listasafns Íslands
gefur að líta 53 olíumálverk eftir
Karl auk teikninga, gvassmynda
og samklippa. Samtals 84 verk í
sölum I og II í safninu.
Sýningarstjóri er Ásdís Ólafs-
dóttir listfræðingur. Sýninganefnd
ásamt Ásdísi skipa Sigríður
Melrós Ólafsdóttir, deildarstjóri
sýningadeildar LÍ, og Halldór
Björn Runólfsson safnstjóri.
Samhliða sýningunni kemur út
vegleg bók um Karl Kvaran prýdd
fjölda mynda af verkum lista-
mannsins. Einnig verða plakat,
gjafakort, skissubók og bókamerki
til sölu í Safnbúð Listasafnsins
með myndum af verkum Karls
Kvaran.
NAM Í REYKJAVÍK OG
KAUPMANNAHÖFN
Sýningar í
fullum gangi
Strandgata 11, Hafnarfjörður l Sími 512 3777 l www.kailash.is
Kailash er ný verslun á
Strandgötu 11 í Hafnarf
sem sérhæfir sig í andle
vörum frá Tíbet og Nep
Verslunin selur meðal a
Buddhastyttur, talnabön
skartgripi, reykelsi, pon
og margt fleira.
Verið velkomin og að
sjálfsögðu er alltaf heit
á tekatlinum.
Verslunin er opin virka
daga frá kl. 11-18 og
laugardaga frá kl. 11-14
Sirkus Sóley
Sigríður Guðnadóttir
Sirkus Ísland
NÆSTA VIKA:
Nánar á www.tjarnarbio.isUnglist
Hjaltalín
18.NÓV.
5.-13.NÓV.
FORSÝNING
16.NÓV.
19.-20.NÓV.
FRUMSÝNING
17.NÓV.Mojito
Nýtt leikverk eftir Jón Atla
TÓNLEIKAR
ÚTGÁFUTÓNL.
SUNNUDAGAR
ERU FJÖL-
SKYLDUDAGAR
Miðasalan er opin
virka daga frá kl. 13-15
Sími: 527 2100
www.tjarnarbio.is Tjarnargötu 12 - 101 Reykjavík
SUN 14.NÓV.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
STEFNUMÓT VIÐ PÉTUR Leitast verður við að veita innsýn i líf og feril Péturs Gunnarssonar rithöfundar á ritþingi sem
haldi verður í menningarmiðstöðinni Gerðubergi á morgun frá kl. 13.30 til 16.00. Stjórnandi er Torfi H. Tulinius en spyrlar
Kristján Kristjánsson og Soffía Auður Birgisdóttir. Valgeir Guðjónsson flytur lög við texta Péturs.