Fréttablaðið - 12.11.2010, Side 74

Fréttablaðið - 12.11.2010, Side 74
46 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR SUND Árni Már Árnason er að gera góða hluti með háskólaliði Old Dominion í Bandaríkjunum þar sem hann stundar nú nám. Árni Már var á dögunum val- inn sundmaður vikunnar í CAA- deildinni og er þetta í annað skiptið á þessu tímabili þar sem Árni Már hlýtur þessa viður- kenningu en hann fékk einnig sömu viðurkenningu í október- mánuði. Árni Már hjálpaði Old Dom- inion til að vinna sigra á Coll- ege of Charleston og William & Mary um síðustu helgi. Árni náði þá fimmta besta tímanum í sögu skólans í 200 metra fjór- sundi og áttunda besta tímanum í 200 metra skriðsundi. Árni vann einnig 100 metra skriðsund auk þess að hjálpa boðsundliði skól- ans til að vinna gull í tveimur greinum. - óój Árni Már í Old Dominion: Besti sundmað- ur vikunnar ÁRNI MÁR ÁRNASON Stendura sig vel í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM N1 deild karla í handbolta Akureyri – Selfoss 34-29 (15-13) Mörk Akureyrar (skot): Bjarni Fritzson 9/4 (11), Geir Guðmundsson 8 (11), Oddur Gretarsson 5 (8), Guðlaugur Arnarsson 4 (5), Guðmundur Hólmar Helgason 4 (9), Hörður Fannar Sigþórs son 2 (2), Heimir Örn Árnason 2 (4). Varin skot: Sveinbjörn Pétursson 24 (53, 45%), Stefán Guðnason 1 (2, 50%). Hraðaupphlaup: 7 (Oddur 3, Heimir, Guðmund ur, Guðlaugur, Bjarni). Fiskuð víti: 5 (Guðlaugur 2, Oddur 2, Geir). Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Selfoss (skot): Ragnar Jóhannsson 8/2 (17), Guðjón F. Drengsson 7 (8), Árni Steinþórsson 4 (6), Einar Héðinsson 3 (5), Atli Kristinsson 3 (10), Ómar Helgason 1 (1), Gunnar Ingi Jónsson 1 (2), Helgi Héðinsson 1 (4),Eyþór Lárusson 0 (3). Varin skot: Birkir Bragason 12 (52, 30%, 14), Helgi Hlynsson 0 (6, 0%) Hraðaupphlaup: 4 (Guðjón 3, Árni). Fiskuð víti: 3 (Ragnar 2, Einar). Utan vallar: 2 mínútur. Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson. HK - Haukar 36 - 34 (20 - 13) Mörk HK (skot): Bjarki Már Elíasson 11/1 (14/2), Daníel Berg Grétarsson 9 (13), Atli Ævar Ingólfs son 6 (8), Ólafur Bjarki Ragnarsson 6/2 (9/2), Hörður Másson 2 (3), Sigurjón F. Björnsson 1 (2), Vilhelm Gauti Bergsveinsson 1 (2). Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 14/1 (48/5, 29%). Hraðaupphlaup: 6 (Bjarki Már 4, Atli Ævar 2). Fiskuð víti: 4 (Sigurjón F. 2, Atli Ævar 1, Daníel Berg 1). Utan vallar: 10 mínútur. Mörk Hauka (skot): Björgvin Þór Hólmgeirsson 9 (19), Þórður Rafn Guðmundsson 7/2 (14/3), Guðmundur Árni Ólafsson 6/2 (10/2), Heimir Óli Heimisson 4 (5), Stefán Rafn Sigurmannsson 4 (6), Gísli Jón Þórisson 2 (5), Tjörvi Þorgeirsson 1 (1), Einar Pétur Pétursson 1 (1). Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 9 (31, 29%), Aron Rafn Eðvarðsson 4/1 (18/4, 22%). Hraðaupphlaup: 1 (Stefán Rafn 1). Fiskuð víti: 5 (Guðmundur Árni 2, Heimir Óli 2, Björgvin Þór 1). Utan vallar: 12 mínútur. Dómarar: Svavar Pétursson og Jónas Elíasson. Fram-Afturelding 34-27 (17-13) Mörk Fram: Haraldur Þorvarðarson 9, Jóhann Gunnar Einarsson 7, Andri Berg Haraldsson 6, Kristján Svan Kristjánsson 4, Einar Rafn Eiðsson 3, Róbert Aron Hostert 2, Halldór Jóhann Sigfússon 1, Matthías Daðason 1, Arnar Birkir Hálfdánsson 1. Mörk Aftureldingar: Eyþór Vestmann 8, Bjarni Aron Þórðarson 8, Pétur Júníusson 3, Arnar Freyr Theodórsson 2, Jón Andri Helgason 2, Daníel Jónsson 1, Aron Gylfason 1, Jóhann Jóhannsson 1, Þorkell Guðbrandsson 1. STAÐAN Í DEILDINNI: Akueyri 6 6 0 0 183-148 12 HK 6 5 0 1 203-198 10 Fram 6 4 0 2 205-175 8 FH 5 3 0 2 158-142 6 Haukar 6 3 0 3 156-162 6 Selfoss 6 1 0 5 162-185 2 Afturelding 6 1 0 5 157-180 2 Valur 5 0 0 5 124-158 0 Iceland Express deild karla Snæfell-Grindavík 79-71 (39-32) Stig Snæfells: Sean Burton 23, Pálmi Freyr Sig urgeirsson 18, Jón Ólafur Jónsson 16 (10 frák./5 stoðs.), Ryan Amaroso 11 (13 frák.), Sveinn Arnar Davíðsson 6, Emil Þór Jóhannsson 3, Kristján Andrésson 2. Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 20, Ryan Pettinella 14 (11 frák.), Ómar Örn Sævarsson 13, Ólafur Ólafsson 9 (6 frák./7 stoðs.), Helgi Jónas Guðfinnsson 9, Þorleifur Ólafsson 6. Fjölnir-Keflavík 96-104 (49-45) Stig Fjölnis: Tómas Heiðar Tómasson 28, Ben Stywall 24, Ægir Þór Steinarsson 15 (13 stoðs.), Magni Hafsteinsson 10, Arnþór Freyr Guðmunds son 10, Sindri Kárason 6, Sigurður Þórarinsson 3. Stig Keflavíkur: Lazar Trifunovic 36, Gunnar Einarsson 21, Valention Maxwell 17, Hörður Axel Vilhjálmsson 14 (11 stoðs.), Sigurður Gunnar Þor steinsson 9, Gunnar H. Stefánsson 3, Jón Nordal Hafsteinsson 2, Þröstur Leó Jóhannsson 2. Haukar-ÍR 93-87 (49-46) Stig Hauka: Semaj Inge 32, Gerald Robinson 20 (21 frák.), Sævar Ingi Haraldsson 14 (7 frák./5 stoðs.), Óskar Ingi Magnússon 7, Örn Sigurðarson 6, Haukur Óskarsson 5, Davíð Páll Hermannsson 5, Sveinn Ómar Sveinsson 4. Stig ÍR: Nemanja Sovic 26, Kelly Biedler 17 (11 frák.), Vilhjálmur Steinarsson 12, Kristinn Jón asson 12 (10 frák.), Eiríkur Önundarson 8, Níels Dungal 6, Hjalti Friðriksson 6. STAÐAN Í DEILDINNI: Snæfell 6 5 1 570-548 10 Grindavík 6 5 1 542-467 10 Stjarnan 5 4 1 430-405 8 Hamar 5 3 2 429-413 6 Keflavík 6 3 3 522-522 6 KR 5 3 2 467-432 6 Haukar 6 3 3 513-533 6 KFÍ 5 2 3 475-473 4 Fjölnir 6 2 4 527-546 4 Njarðvík 5 2 3 393-428 4 ÍR 6 1 5 528-555 2 Tindastóll 5 0 5 354-435 0 ÚRSLIT Í GÆR BADMINTON Iceland Internation- al, alþjóðlegt badmintonmót, hefst í dag en klukkan 10 fara fyrstu leikirnir í tvenndarleik fram. Seinna í dag hefst keppni í einliðaleik karla og einliðaleik kvenna. Átta liða úrslit hefjast klukk- an 10 á laugardag og undanúrslit síðar sama dag, klukkan 16.30. Úrslitaleikir verða spilaðir á sunnudaginn frá klukkan 10 til 14. Mótið er haldið í TBR húsun- um við Gnoðarvog og aðgangur er ókeypis. - óój Iceland International: Alþjóðlegt mót byrjar í dag HANDBOLTI Það var norðangaddur á Akureyri í gær en innandyra í Höllinni var funheitt lið heimamanna í fínu formi. Það vann sjötta leikinn í deildinni og hefur fullt hús stiga. Sel- foss var fórnarlambið í gær, lokatölur 34-29. Vörn Akureyrar var ágæt og markvarslan góð en góð sókn undir lokin í bland við litla markvörslu gestanna skipti mestum sköp- um í lokin. Akureyri var alltaf skrefi á undan en baráttuglaðir Selfyssingar börðust allt til loka. Akureyringar eru einfaldlega með betra lið og það sýndi sig í gær. „Planið var bara að halda okkar striki og vinna,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari Akur- eyrar. „Við vorum klaufar að leggja ekki grunn að sigrinum undir lok fyrri hálfleiks en ég er ánægður með hvernig liðið kom til baka þó að það hafi ekki allt gengið upp.” Kollegi hans Sebastian Alexanderson segir að liðið bæti sig með hverjum leik. „Við spiluðum betur en á móti Haukum gegn miklu betra liði en það dugði ekki. Okkur vantar enn herslumuninn. Vörnin var fín í fyrri hálfleik en við hefðum þurft að fá meiri markvörslu. Ég er þó ánægður með baráttuna í strákunum, þetta fer að detta hjá okkur,“ sagði Sebastian. - hþh Akureyri vann Selfoss 34-29 í N1-deild karla í gær og hefur því unnið sex fyrstu leiki sína á tímabilinu: Kalt hjá Akureyringum á toppnum NÍU MÖRK Bjarni Fritzson var markahæstur Akureyr- inga í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KÖRFUBOLTI Keflvíkingar unnu sinn annan sigur í röð í Iceland Express deild karla í gær er þeir fóru í Grafarvoginn og unnu átta stiga sigur á heimamönnum í Fjölni, 104-96. Heimamenn voru sterkari í fyrri hálfleik og spiluðu fínan körfu- bolta, en botninn datt alveg úr leik liðsins í þeim síðari. Keflvíking- ar fóru í gang í þriðja leikhluta og lögðu grunninn að öruggum sigri. Mikil breyting er á leik liðsins frá því í byrjun móts og það er ljóst að Keflavík datt í lukkupottinn þegar þeir fengu serbneska leikmann- inn, Lazar Trifunovic, en hann fór hreinlega á kostum í gær og skor- aði 36 stig. Pétur Guðmundsson, aðstoðar- þjálfari Keflvíkinga, stýrði liðinu í gær sökum þess að Guðjón Skúla- son var staddur erlendis. „Þetta var mjög góður sigur hjá okkur og við erum að vinna okkur hægt og rólega inn í mótið,“ sagði Pétur í gær. „Þetta var í raun bara mikill sóknarleikur hér í kvöld og lítið um varnarleik. Við verðum að vinna aðeins í vörninni hjá okkur og það er nægur tími til þess enda vinnur ekkert lið mótið í nóvem- ber. Það sem lagði grunninn að þessum sigri hjá okkur var hversu sterkir við vorum inni í teig. Menn börðust vel og uppskáru mikilvæg fráköst. Ég held einnig að við séum bara með töluvert reynslumeira lið en Fjölnir og ákveðin sigurhefð fylgir okkur,“ sagði Pétur. „Ég var rosalega ánægður með fyrri hálfleikinn hjá okkur, en við töpuðum þessu í þriðja leikhlut- anum,“ sagði Örvar Kristjáns- son, þjálfari Fjölnis, eftir leikinn í gær. „Við misstum buxurnar alveg niður á hæla í síðari hálfleiknum og hættum að spila vörn. Ég er samt sem áður mjög ánægður með liðið því þeir gáfust aldrei upp og börðust alveg þangað til að dómar- inn flautaði leikinn af. Keflvíking- arnir eru með gríðarlega reynslu sem var okkur erfið og síðan hafa þeir heldur betur dottið í lukku- pottinn þegar þeir fengu nýja leikmanninn en hann er svakalega góður,“ sagði Örvar. – sáp Pétur Guðmundsson stýrði Keflavíkurliðinu til sigurs á Fjölnismönnum í Grafarvoginum í gær: Vinnum okkur hægt og rólega inn í mótið GUNNAR EINARSSON Átti flottan leik í Grafarvoginum í gær. HANDBOLTI Eftir að HK fékk slæm- an skell gegn Akureyri í fyrstu umferð N1-deildar í haust hefur liðið ekki stigið feilspor. HK hefur unnið alla fimm leiki sína síðan þá og virðist einfaldlega óstöðv- andi. Eins og í öðrum leikjum HK í haust var það sóknarleikur liðsins sem skóp fyrst og fremst sigurinn og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. HK skoraði þá 20 mörk og náði sjö marka forystu sem reyndist vera of stórt bil fyrir Haukana. Þeir náðu þó að klóra sig til baka inn í leikinn undir lokin en tókst ekki að stíga skrefið til fulls. Hornamaðurinn Bjarki Már Elíasson fór mikinn í gær og skor- aði ellefu mörk. Hann naut góðr- ar aðstoðar frá þeim Ólafi Bjarka Ragnarssyni og Daníel Berg Grét- arssyni sem keyra ógnarsterkan sóknarleik HK áfram. HK er með afar sterkt byrj- unarlið, bæði í vörn og sókn, en veikleikamerkin koma fram þegar líða tekur á leikinn og mennirn- ir þreytast. En heimamenn gerðu nóg í gær. „Við treystum á liðs- heildina og lítum alla sem jafningja í þessu liði. Ég tel að leikgleðin sé stór þáttur í velgengninni,“ sagði markvörð- urinn Björn Ingi Friðþjófsson eftir leikinn. „Við leggjum mikla áherslu á æfingar okkar enda trúum við því að ef við stöndum okkur vel á æfingum þá gerist það sama í leikjunum.“ Daníel Berg segir HK-inga nálg- ast alla leiki eins. „Það eru allir leikir í þessari deild erfiðir en á meðan við erum að berjast og gefa okkur alla í leikinn þá eigum við alltaf möguleika á sigrinum. En um leið og við höldum að við séum of góðir og byrjum að slaka á þá gerist það sama og gegn Akureyri í fyrsta leiknum, við erum ekkert betri en sá leikur.“ Haukamenn hafa enn ekki fund- ið taktinn í deildinni og hefur til að mynda enn ekki tekist að vinna tvo leiki í röð. Liðið spilaði illa í vörninni í fyrri hálfleik og hvorki Aron Rafn né Birkir Ívar fundu sig í markinu. „Þessi fyrri hálfleikur fór með okkur. Við náðum engum takti í vörninni og markverðirn- ir okkar komust ekki í takt við leikinn. Það er afar sjaldgæft hjá okkur enda með tvo frábæra markverði,“ sagði Haukamaður- inn Freyr Brynjarsson. „Undir lokin misstum við svo einbeiting- una. Við gerðum klaufamistök og hentum boltanum frá okkur allt of oft. Við eigum að geta lagað þetta sem og varnarleikinn og mark- vörsluna. Við vitum að við getum miklu betur. “ Það bar þó skugga á sigur HK- inga í gær er hornamaðurinn Sig- urjón Friðjón Björnsson virtist hafa meiðst illa á ökkla á lokamín- útu leiksins. Hann virtist sárþjáð- ur og ekki ólíklegt að HK verði að komast af án hans í dágóðan tíma. Sannarlega skarð fyrir skildi hjá Kópavogsbúum. eirikur@frettabladid.is ERFFIÐIR VIÐUREIGNAR Það er ekkert auðvelt verkefni að reyna að halda aftur af Atla Ævari Ingólfssyni og félögum í HK þessa daganna. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HK rúllaði yfir meistarana Fátt virðist geta stöðvað frískt lið HK í N1-deild karla um þessar mundir. Liðið vann í gær sinn fimmta leik í röð og í þetta sinn meistaralið Hauka, 36-34. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /D A N ÍEL

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.