Fréttablaðið - 17.11.2010, Qupperneq 8
17. nóvember 2010 MIÐVIKUDAGUR
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
21
65
1
1/
10
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
1
6
2
6
0
9
/1
0
Þjónustan er veitt virka daga frá kl. 8 til 17.
Veitum ýmsa sérhæfða þjónustu, m.a. ráðgjöf
við val og notkun á vörum fyrir sykursjúka.
Láttu okkur mæla blóðsykurinn.
Hjúkrunarþjónusta
í Lyfju Lágmúla
Kaffitími er alþjóðlegt fyrirbæri sem
fólk í hverskonar verslun, þjónustu og
iðnaði nýtir sér til að taka stutta
hvíld frá störfum og hlaða rafhlöðurnar.
Talið er að allt frá 1951 hafi kaffitími
verið skráður í kjarasamninga.
Kaffitíminn er í dag nánast heilög
stund, líka utan vinnutíma.
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
BKI Classic
Njóttu lausnar frá amstri hversdagsins
með góðu BKI kaffi. Finndu hvernig þú
hressist með rjúkandi bolla af BKI kaffi. Nýttu
tækifærið. Gefðu þér smá hvíld. Fáðu þér BKI
kaffi. Njóttu kaffiilmsins, hitans og bragðsins
og taktu svo daginn með trompi.
Það er kominn tími fyrir BKI kaffi.
Taktu þér kaffitíma núna
Fangaðu
kaffitímann
með BKI kaffi
Það er kaffitími núna
Kauptu BKI
fyrir kaffitímann
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir. Kíktu á bki.is
Kauptu gott k ff
i í dag
á góðu verði
Einnig til 250 gr á
ennþá betra ver
ði
á meðan birgðir
endast
EFNAHAGSMÁL Lífeyrissjóðirnir
fegra kostnaðartölur sínar með því
að reikna umsýslu kostnað vegna
fjárfestinga erlendis ekki inn í
rekstrarkostnað, segir Ragnar
Þór Ingólfsson, stjórnarmaður í
VR. Hann segist áætla að rekstrar-
kostnaður allra íslensku lífeyris-
sjóðanna í fyrra hafi verið á níunda
milljarð króna.
Þessu mótmælir Hrafn Magnús-
son, framkvæmdastjóri Lands-
samtaka lífeyrissjóða, harðlega.
Hann segir rekstrarkostnaðinn um
3,8 milljarða króna, reiknaðan með
sömu aðferðum og í Danmörku.
„Ég er sannfærður um að það
er hægt að hagræða gríðarlega í
lífeyris sjóðakerfinu,“ segir Ragnar.
Hann vill að lífeyris sjóðum verði
fækkað verulega og að sjóðs félagar
fái að kjósa stjórnar menn.
Ragnar hefur birt útreikninga á
rekstrarkostnaði lífeyris sjóðanna
á vefsíðu sinni. Þar leggur hann
saman rekstrar kostnað sex
stærstu lífeyris sjóðanna út frá árs-
reikningum sjóðanna í fyrra. Út frá
því hefur hann áætlað að uppgefinn
rekstrar kostnaður allra sjóðanna
sé um 3,3 milljarðar króna á ári.
Þetta er þó aðeins hluti raunveru-
legs rekstrarkostnaðar sjóðanna,
segir Ragnar. Með réttu ætti að
bæta við þetta erlendum fjárfest-
ingargjöldum, sem er kostnaður
vegna verðbréfamiðlara sem sýsla
með erlend verðbréf sjóðanna.
Ragnar segir að sá kostnaður hafi
að lágmarki verið um fimm millj-
arðar króna í fyrra.
Landssamband lífeyrissjóða
hefur bent á að rekstrarkostnaður
íslensku lífeyrissjóðanna sé lágur í
samanburði við kostnað við lífeyris-
kerfin í öðrum ríkjum OECD,
þegar miðað sé við kostnað sem
hlutfall af heildareignum. Ragnar
segir þetta ekki alls kostar rétt.
Á vefsíðu sinni bendir hann á að
sé kostnaður við fjárfestingar
erlendis talinn með sé kostnaður-
inn töluvert langt frá því að vera
lægstur innan ríkja OECD, „nema
þau beiti sambærilegum brellum
til að fegra kostnað við kerfið“.
Hrafn hafnar því alfarið að
brellum sé beitt. Kostnaður við
fjárfestingar erlendis sé dreginn
af tekjunum eins og alltaf hafi
verið gert. Hann segist aðspurður
ekki hafa upplýsingar um hversu
mikill sá kostnaður sé.
Rekstrarkostnaður íslenskra
lífeyrissjóða var rétt um 0,2 pró-
sent af heildartekjum sjóðanna
í fyrra og hefur verið óbreyttur
undan farin ár, segir Hrafn.
Eignirnar í fyrra voru um 1.830
milljarðar en rekstrarkostnaður
3,8 milljarðar.
Hann bendir á að sérfræðingar
OECD kjósi að nota þetta hlutfall
sem mælikvarða á lífeyrissjóðina,
ekki lífeyrissjóðirnir sjálfir.
brjann@frettabladid.is
Segir lífeyrissjóðina
fegra kostnaðartölur
Rekstrarkostnaður lífeyrissjóðanna er á níunda milljarð króna segir stjórnar-
maður í VR. Hægt að hagræða verulega í lífeyrissjóðakerfinu. Fráleitt að tölur
séu fegraðar, notum sömu aðferðir og erlendis segir talsmaður lífeyrissjóða.
SJÓÐIR Nú er starfandi 31 lífeyrissjóður. Landsmenn greiða þó ekki í þá alla, sumir taka ekki við nýjum sjóðfélögum og munu því
leggjast af á næstu árum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Heildareignir íslensku lífeyris-
sjóðanna
1.830
milljarðar
ALÞINGI Fyrirhugað er að endur-
skoða lög um sjúkratryggingar
vegna breytinga sem orðið hafa frá
því að þau tóku gildi 2008.
Fyrir Alþingi liggur frumvarp
um frestun gildistöku ákvæða um
samninga Sjúkratrygginga Íslands
um rekstur hjúkrunarheimila.
Upphaflega áttu þau að taka gildi
um síðustu áramót en gildistöku
var frestað um ár. Nú er lagt til að
gildistöku verði frestað um þrjú ár
og um leið að heilbrigðisráðuneytið
ákveði daggjöld vegna hjúkrunar-
rýma og gefi út reglugerð um þau.
Í greinargerð segir að ljóst sé að
enn vanti talsvert upp á að Sjúkra-
tryggingarnar verði í stakk búnar
að gera umrædda samninga. Í kjöl-
far hrunsins hafi orðið ákveðinn
forsendubrestur að því er varðar
hugmyndafræði þá sem liggi að
baki lögum um sjúkratryggingar.
Þau verði því að endurskoða með
hliðsjón af þeim miklu breyting-
um sem orðið hafi. - bþs
Hugmyndafræði laga um sjúkratryggingar er brostin vegna efnahagshrunsins:
Endurskoða þarf sjúkratryggingalögin
Skorið niður um einn og hálfan milljarð milli ára
Framlög til tryggingamála og reksturs Sjúkratrygginga Íslands
Reikningur 2009 Fjárlög 2010 Frumvarp 2011
Sjúkratryggingar Íslands 547 477 415
Sjúkratryggingar 30.838 27.728 26.224
Slysatryggingar 662 636 709
Sjúklingatrygging 97 120 120
Samtals 32.143 28.961 27.468
Heimild: Fjárlagafrumvarp 2011