Kylfingur - 01.02.1965, Síða 9
23. Golflandsmótið var hald-
ið í Vestmannaeyjum dagana 8.
—12. júlí 1964. Þátttakendur
voru samtals 65.
Eins og venja hefur verið,
byrjuðu kylfingar að tínast til
Vestmannaeyja nokkrum dög-
um fyrir Golflandsmót, til þess
að leika nokkra hringi á golf-
vellinum Herjólfsdal og hitta
gamla golffélaga, áður en sjálft
mótið hófst.
Sól skein hátt á lofti þessa
dagana og kylfingar nutu sum-
arblíðunnar í ríkum mæli inni
í dalnum, þó að öðru hverju
rymdi í Surti, sem blés svört-
um reykjarbólstrum hátt upp í
heiðskíran himininn. Hérna var
samankomið fjölmennasta Golf-
landsmót, sem haldið hefur ver-
ið til þessa og auk þess var ný
grein komin inn á keppnis-
skrána, Unglingakeppni. Nýr
klúbbur, Golfklúbbur Suður-
nesja, tilkynnti þátttöku í Golf-
landsmóti í fyrsta skipti.
Mótið hófst með flokkakeppni
þann 10. júlí, þar sem bæjar-
félögin þrjú, Reykjavík, Akur-
eyri og Vestmannaeyjar, leiddu
saman hesta ,sína. Það hafði
hvesst allmikið nóttina áður og
Lárus Ársælsson, formaður
Golfklúbbs Vestmannaeyja
og Öldungameistari íslands
1964.
sterkir stormsveipir voru í daln-
um um morguninn. Þetta varð
þó ekki til þess að breyta keppn-
ishug kylfinga og undir kvöld-
ið voru úrslitin kunn, eins og
hér segir:
1. Sveit Akureyrar 493 högg
2. — Reykjavíkur 496 —
3. — Vestm.eyja. 503 —
Nóttina eftir lægði storminn
og dagur einstaklingskeppninn-
ar hófst með sömu veðurblíðu
og áður var. Nýtt fyrirkomulag
var nú haft á mótinu, þannig
að leiknar voru 18 holur á dag,
alla dagana. í heild var allt
fyrirkomulag mjög ánægjulegt,
og af leikum í meistaraflokki
er að segja, að eftir fyrsta dag-
inn virtist keppnin ætla að
verða tvísýn um fremsta sætið,
en þegar keppnin var vel hálfn-
uð, var sýnt að Magnús Guð-
mundsson, Ak., mundi tryggja
sér fyrsta sætið, er hann þriðja
daginn kom inn með 6 undir
pari eftir 18 holur, sem er nýtt
vallarmet. Mönnum varð nú
ljóst, að baráttan mundi verða
hörð um 2. sætið og áttu þar
í hlut Óttar Yngvason, Rvík,
7