Kylfingur - 01.02.1965, Blaðsíða 20

Kylfingur - 01.02.1965, Blaðsíða 20
f Castel St. Angelo, í kvöldverðarboði borgarstjórnar Rómar. Talið frá vinstri: Óttar Yngvason, Gunnar Sólnes, Magnús Guðmundsson, frú Sigríður Magnúsdóttir, Pétur Bjömsson, Stefán Áma- son, Sverrir Einarsson og frú Inga Albertsdóttir. Vissulega er æskilegt að að ís- lenzkum kylfingum gefist kost- ur á að taka þátt í fleiri mót- um á erlendum vettvangi, og ber að stuðla að því. En hins vegar sé eg ekki, að fenginni reynslu frá siðasta móti, að þangað eigum við ekki erindi. Við þurfum aðeins að taka þetta mál fastari tökum, gera okkur grein fyrir því, að mót þetta er merkilegra en svo, að kastað sé til höndunum með undirbún- ing. G.S.Í. hefur vissulega ýms- um störfum að gegna; þó held ég, að miðað við starfssvið ann- arra íþróttasambanda sé starfs- svið G.S.Í. harla þröngt. Mér fyndist því engin goðgá, þótt G.S.f. væri falið að sjá um und- irbúning á áframhaldandi þátt- töku okkar í þessu móti. Af kylfingum annarra þjóða, sem aðild eiga að WAGC er litið á þetta mót sem eitt eftirsókn- arverðasta í golfíþróttinni, eins konar Olympískir leikir. Enda hefur sú hugmynd mjög komið fram hjá W.A.G.C. að fá íþrótt þetta tekna upp í leikina. í Canada er t. d. ekkert eins erf- itt og um leið eftirsóknarvert í þessari íþróttagrein eins og það að komast í sveitina, sem þátt tekur í Eisenhower-mótinu. Ég mundi því gera það að til- lögu minni, að G.S.Í. hæfist þeg- ar handa um undirbúning að þátttöku íslands í Eisenhower- mótinu í Mexico, og þarf þá fyrst og fremst að hefja fjár- söfnun með einhverju móti. Það ætti ekki að vera ofvaxið G.S.Í. að safna fyrir kostnaði fjögurra manna sveitar, þegar önnur sambönd geta sent 15 og 20 manna hópa á hverju ári, og stundum oftar. G.S.Í. þarf einn- ig að semja þegar reglugerð um val þátttakenda, svo að öruggt megi teljast að í slíkar sendi- ferðir veljist ekki aðrir en þeir sem þangað eiga erindi. Mundi slíkt vissulega ýta undir menn að auka við getu sína, þegar eftir einhverju er að slægjast. Mín tillaga er sú, að fyrra undirbúningssumarið feli G.S.Í. hverjum klúbb að halda árlega keppni, þar sem fjórir beztu hvers klúbbs myndi sveit, sem síðan mæti sveitum annarra klúbba. Seinna undirbúnings- árið fari fram sams konar keppnir. Síðan verði þriðja keppnin það árið, þar sem tveir efstu frá fyrra-árskeppni séu sjálfkjörnir, en sex efstu úr þeirri síðari. Endanlegt val úr þessum átta manna hópi fari fram eigi síðar en tveim mán- uðum fyrir heimsmótið. Ef til vill finnst mönnum tillaga þessi fela í sér of mikla fyrirhöfn, enda má vissulega haga þessu á 18

x

Kylfingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.