Kylfingur - 01.02.1965, Blaðsíða 26
fi
—
fi
fi
-
O
fc
fi
KRAFTUR OG
Arnold Palmer er í dag álit-
inn bezti og jafnframt þekkt-
asti golfleikari heimsins.
Fyrir 10 árum síðan veldur
hann byltingu í golfleik, er
hann brýtur sér leið á toppinn
með ,,kraftsveiflunni“ svoköll-
uðu, sem flestir hinna yngri
golfleikara tileinka sér nú.
Palmer hefur leikið golf síð-
an hann var 5 ára gamall. Hann
hefur trausta sveiflu, töluverða
krafta og nóg sjálfstraust. Hann
vann Meistaramót áhugamanna
í 'Bandaríkjunum 1954 og
MASTERS-keppnina 1958, 4 ár-
um eftir að hann gerðist at-
vinnumaður. Kanadisku Opnu-
keppnina vann hann á fyrsta
ári sínu sem atvinnumaður.
Undirstöðuatriðin í golfi fékk
Palmer frá föður sínum, sem
Aræð i
er golfkennari við Latrobe Golf-
klúbbinn í Pennsylvaníu. Síðan
Palmer gerðist atvinnumaður,
hefur hann lagt að baki marga
stóra sigra og eignazt aragrúa
aðdáenda meðal bandarískra
golfunnenda. Þeir hafa gert
hann að eins konar dýrlingi
íþróttarinnar og fylgja honum
eftir í keppnum, tugþúsundum
saman.. Þessir áhorfendur hans
eru nefndir einu nafni, ,,her Pal-
mers“, enda leikur hann djarft
og teigskot hans eru meðal
þeirra lengstu, sem sjást meðal
atvinnumanna í golfi. Skömmu
eftir að hann hóf atvinnuferil
sinn, bætti hann öryggi sitt og
högglengd í teigskotum, með þvi
að færa boltann örlítið nær
vinstra fæti og slá hann á upp-
leið í sveiflunni. Með þessu móti
urðu teigskotin fastari og hærri
og minna rennsli á boltanum,
er hann kom niður.
Palmer er þekktur fyrir harð-
an „endasprett“ í keppnum, og
á hann þeim árangri einna mest
að þakka, hve góður hann er
að „pútta“. Bobby Jones, einn
frægasti golfleikari allra tíma,
heldur þvi fram, að Palmer sé
bezti „púttarinn“,sem hann hafi
komizt í kynni við. Hann vann
fyrstu Masters-keppni sína 1958,
með því að leika þrjár síðustu
holurnar á „birdie". Síðan hef-
ur hann endurtekið þetta í ótal
keppnum og hvetja áhorfendur
hann óspart til dáða, er líða fer
að leikslokum.
Golfíþróttin á sívaxandi vin-
sældum að fagna um allan heim.
Árið 1963 sýna hagskýrslur í
Bandaríkjunum, að verðmæti
seldra golfáhalda það ár nam
helmingi meira en verðmæti
seldra áhalda í öllum öðrum
íþróttagreinum til samans. Að-
sókn að atvinnukeppnum vex
ört og hækka peningaverðlaun-
in að sama skapi. í dag eru at-
vinnumenn 1 golfi hæstlaunuðu
íþróttamenn heimsins.
Undanfarin 3 ár hefur Arnoid
Palmer glímt við að vinna
„slemmuna" svokölluðu, en það
er að vinna á sama árinu þrjár
eða allar af eftirfarandi keppn-
um: Bandarísku Opnu-keppn-
ina, Masters-keppnina, Atvinnu-
manna-keppnina og Brezku
Opnu-keppnina. Þetta hefur að-
eins tveim mönnum tekizt áður,
þeim Bobby Jones og Ben Ho-
gan.
Stærstu sigrar Arnold Palmer
hafa verið að vinna Masters-
keppnina 4 sinnum, Bandarísku
Opnu-keppnina 2 sinnum,
Brezku Opnu-keppnina 1 sinni,
auk fjölda annarra keppna. Síð-
ustu þrjú ár hefur sigurvegur-
unum í þessum 4 stærstu keppn-
um verið boðið að keppa saman
að hausti ár hvert, í sérstakri
keppni, þar sem veitt eru fyrstu
verðlaun 50.000 dollarar, eða
yfir 2 milljónir íslenzkra króna.
Palmer er sá eini, sem hefur
unnið ,sér rétt til þáttöku í öll
skiptin.
Samkeppnin meðal atvinnu-
24