Kylfingur - 01.02.1965, Blaðsíða 22

Kylfingur - 01.02.1965, Blaðsíða 22
REGLUGERÐ fyrir Eldriflokkskeppni Golfklúbbs Reykjavíkur. 1. gr. Bikarinn er úr silfri og stendur á stalli. Á bikarinn er letrað: „Eldriflokkskeppni. Gefandi Félagsbókbandið h.f. 1964“. Einnig er merki G R. grafið á hann. 2. gr. Keppt skal um bikarinn á ári hverju, án forgjafar og skal keppni lokið hinn 1. sept. ár hvert. 3. gr. Keppni skal hefjast með undirbúningskeppni, 18 holu höggleik, en framhaldskeppnin, skal vera holukeppni. Þeir 16 kylfingar, sem höfðu lægstan höggafjölda í undir- búningskeppni komast í framhaldskeppni. 4. gr Kylfingar úr G. R. hafa einir rétt til keppni um bikarinn, og þó aðeins að þeir séu fimmtugir eða eldri. 5. gr. Bikarinn vinnst til eignar ef sami kylfingur vinnur hann þrisvar í röð eða fimm sinnum alls. 6. gr. Nöfn vinnenda og vinningsár skal letrað á þar til gerða staði á bikarinn ár hvert. Veitt skulu sérstök verð- laun sigurvegaranum í undirbúningskeppninni og einnig til þeirra, sem kepptu til úrslita í framhaldskeppninni. rekstur hans með nokkuð öðr- um hætti en tíðkast um aðra golfklúbba hérlendis, og hefur klúbburinn sótt um aðild að Golfsambandi íslands, en þó nokkuð takmarkaða vegna sér- stöðu sinnar sem einkaklúbbur. Stjórn Golfsambands íslands hefur ekki endanlega tekið af- stöðu til þessarar umsóknar og taldi rétt að hún biði þessa þings, þar sem svo skammt er liðið síðan umsóknin barst, og taldi stjórn sambandsins rétt að fá nánari skýringu á sérstöðu klúbbsins, til athugunar á því, hvort nokkuð væri til fyrirstöðu aðild að sambandinu, eða nokk- uð væri það í rekstri hans, sem bryti í bága við lög sambands- ins eða lög Í.S.Í. Hvort heldur sem aðild þessa klúbbs að sambandinu verður samþykkt eða ekki, þá hlýtur Golfsambandið að fagna þeirri viðleitni sem þarna hefur verið sýnd í verki, með því að skapa aðstöðu til golfiðkana og efling- ar golfíþróttinni, en það hlýtur að vera mergurinn málsins og höfuðtakmark Golfsambands- ins, að stuðla að slíkri eflingu. Væntir stjórn Golfsambands íslands, að starf þessa klúbbs megi vaxa og verða enn til efl- ingar golfíþróttinni. Önnur útbreiðslustarfsemi. Stjórn Golfsambandsins og einstakir meðlimir stjórnarinn- ar hafa af fremsta megni leitazt við að halda uppi áróðri fyrir útbreiðslu golfíþróttarinnar. Þannig hefur verið haft sam- band við ýmsa aðila utan þeirra staða, þar sem nú eru golfvell- ir, svo sem á Akranesi, í Styk-k- ishólmi, á Seyðisfirði og Eiðum og Húsavík, með það fyrir aug- um, að koma í náinni framtíð á golfvöllum og aðstöðu til golf- iðkana á þessum stöðum. For- maður og varaformaður sam- bandsins hafa sótt tvo sam- bandsráðsfundi Í.S.Í. á síðast- liðnu starfsári og hafa átt þess kost að skiptast á skoðunum við fulltrúa frá öðrum sérsambönd- um og íþróttagreinum og gera þeim grein fyrir gildi golfíþrótt- arinnar. Er óhætt að fullyrða það, að skilningur leiðtoga ann- arra íþróttagreina hefur farið vaxandi á gildi golfíþróttarinn- ar, eins og í ljó.s kom fram á Sambandsþinginu, sem haldið var á Akureyri nú fyrir skemmstu, í ræðum þingfull- trúa. En hér verður Golfsam- bandið og .stjórn þess og aðrir velimnarar golfíþróttarinnar að halda áfram og heimsækja þá staði, sem áður hafa verið nefndir til þess að kynna mönn- um betur íþróttina og athuga með aðstöðu fyrir iðkun henn- ar á þessum stöðum. Golfklúbbur Reykjavíkur taldi á .síðastliðnu ári 240 fé- laga, og hafði félagatala aukizt úr 175 á árinu. Auk þess mun nokkur frekari aukning hafa orðið á félagatölu það sem af er þessu ári, enda hefur aðstaða til golfiðkana batnað allmjög á vellinum við Grafarholt í Reykjavík, en þar hefur nú einnig verið hafin bygging klúbbhúss. Golfklúbbur Akureyrar taldi á síðastliðnu starfsári 60 félaga, og hafði tala félaga auk- izt um 2, en það sem af er þessu ári, hefur golfleikurum á Akur- eyri fjölgað, einkum eru það yngri menn og unglingar, sem við hafa bætzt, og er það góðs viti. Golfklúbbur Vestmannaeyja taldi á árinu 58 félaga, og hefur aukning einnig þar orðið 20

x

Kylfingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.