Kylfingur - 01.02.1965, Qupperneq 23

Kylfingur - 01.02.1965, Qupperneq 23
REGLUGERÐ fyrir Coco-Cola bikarinn (keppni með og án forgjafar). Gefinn Golfklúbb Reykjavíkur af verksmiðjunni VÍFILFELL h/f, Reykjavík. 2 bikarar. Bikarinn er farandbikar, sem vinnst til eignar, ef hann vinnst 3svar í röð, eða 5 sinnum alls. Vífilfell h/f gefur fylgi- bikar, 1. verðlaun í hvert sinn. Leiknar skulu 72 holur í höggleik með og án forgjafar á 2 til 3 dögum, eftir því hvað kappleikanefnd G.R. ákveður í hvert ,sinn, þó þannig, að einn dag séu leiknar 36 holur. Keppn- irnar skulu leiknar um leið og á sama hátt, þannig að kepp- endur geti tekið þátt í báðum keppnunum samtímis. Keppa skal um bikarinn einhvern tíma á tímabilinu 10. júní og fram að Golflandsmóti ár hvert, þannig að keppninni sé lokið eigi seinna en 5. júlí. Keppnin er „OPIN“ og heimil öllum kylfingum, innlend- um og erlendum, sem sýnt geta löglega forgjafarstaðfestingu. Ef keppendur (með forgjöf) verða jafnir að loknum 72 hol- um, skulu leiknar 18 holur til viðbótar, þar til úrslit fást. Ef keppendur (án forgjafar) verða jafnir að loknum 72 hol- um, skulu leiknar 18 holur til viðbótar, og ef keppendur eru jafnir að þeim loknum, skal næsta hola ráða úrslitum. (Sud- den death). og það sem af er þessu ári, hafa nokkrir nýir bætzt við, og er þe&s að vænta, að enn bætist við nokkrir eftir að landsmót þetta hefur farið fram, eins og jafnan hefur orðið raun á að undanförnu. Golfklúbbur Vestmannaeyja átti 25 ára afmæli á síðastliðn- um vetri, og hafði formaður Golfsambandsins ráðgert að mæta í hófi, sem af því tilefni var haldið á vegum klúbbsins, en því miður bönnuðu veður slíkt ferðalag, en Golfsambandið sendi klúbbnum til minningar um þennan merkisáfanga kveðj- ur .sínar og lítinn bikar. Golfmeistari Vestmannaeyja 1963 var Lárus Ársælsson. Frá Golfþingi íslands 1964 Golfþing íslands 1964, var hald- ið í Vestmannaeyjum 8. júlí. Forseti sambandsins, Sveinn Snorrason, setti þingið og bauð fulltrúa velkomna. Minntist Sveinn í upphafi látinna félaga, þeirra Magnúsar Bjömssonar, ríkisbókara og Sigmundar Halldórssonar, byggingarfull- trúa úr G. R. og Ásmundar Guðjónssonar, stórkaupmanns úr G. V. Þingforseti var kjörinn Lárus Ársælsson G. V. og þingritari Magnús Magnússon, G. V. Á þinginu mættu þessir full- trúar: Frá G. R. Sveinn Snorra- son, Halldór Magnússon, Óttar Yngvason, Gunnar Þorleifsson, Ingólfur ísebarn og Viðar Þor- steinsson. Frá G. A.: Gunnar Sólnes og Hafliði Guðmunds- son. Frá G. V. Sverrir Einars- son og Magnús Magnússon og frá G. S. Óli B. Jónsson og Sæv- ar Sörensen. Forseti flutti skýrslu stjórn- ar og gjaldkeri reikninga, og var hvort tveggja samþykkt. Gjaldkeri flutti þá fram fjár- hagsáætlun fyrir næsta ár og var hún samþykkt. Gerir hún ráð fyrir 52.000,00 króna tekj- um og gjöldum. Stjórnin flutti fram tillögu um að framvegis skuli keppni í II. flokki vera 72 holur. Þá var og tekin á- kvörðun um fyrirkomulag ungl- ingakeppni. Inntökubeiðni Golfklúbbs Suðurnesja var einróma stað- fest. Þá lá enn fremur fyrir inn- tökubeiðni frá Golfklúbbi Ness, en inntökubeiðnin hafði verið send til umsagnar stjórnar íþróttasambands íslands, og lá umsögn ÍSÍ fyrir fundinum. Taldi ÍSÍ Golfsambandinu ó- heimilt að óbreyttum lögum Golfklúbbs Ness að veita hon- um inngöngu í Golfsambandið. Var mál þetta því tekið af dag- skrá. Tillaga frá stjórn GSÍ um að senda 4 þátttakendur auk far- arstjóra og þingfulltrúa á al- þjóðamótið í Róm. Tillaga Óttars Yngvasonar: 23. Golfþing íslands samþykkir að á landsmóti í Golfi 1964 skuli þátttakendum hvers flokks raðað upp á ný eftir hvern keppnisdag í samræmi við ár- angur í þeim hluta keppninnar, sem lokið er var einróma sam- þyktt. Á framhaldsaðalfundi 11. júlí 1964 var gerð sú breyting á tölu stjórnenda í 13 gr. að 21

x

Kylfingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.