Kylfingur - 24.04.1989, Qupperneq 9
KYLFINGUR
9
skeið og eitt 3. stigs námskeið með
samtals um 100 nemendum á aldrin-
um 10—14 ára. Námskeiðin tókust
mjög vel undir stjórn Jóns H. Karls-
sonar og Ragnhildar Sigurðardótt-
ur. I byrjun vors sóttu'þau námskeið
á vegum GSÍ um unglingastarfsemi
og kennslu í golfi, sem stjórnað var
af sænskum leiðbeinendum og var í
alla staði mjög gagnlegt. Rósmund-
ur Jónsson sótti einnig þetta nám-
skeið. Það má merkja, að golfskól-
inn er þegar farinn að skila vaxandi
fjölda unglinga inn í starfsemi
klúbbsins og líkur á, að veruleg
aukning verði á yngri kylfingum.
Mótahald fyrir unglinga 15 ára og
yngri var með hefðbundnum hætti
þ.e. haldin voru mót mánaðarlega
og auk þess 4 daga mót Jóns Agnars.
Þess utan voru farnar skipulegar
keppnisferðir á opin mót í Leirunni
i mai og til Selfoss í ágúst, og lauk
þeirri ferð með grillveislu í Öndverð-
arnesi.
Á síðasta ársþingi GSÍ var aldurs-
skiptingu unglingaflokka i mótum
GSÍ breytt á þann veg, að eldri
flokkur skildi skipaður unglingum
19—21 árs en yngri 18 ára og yngri
(var áður 15 ára). Þessi ráðstöfun
varð til þess að unglingar á aldrinum
13—15 ára misstu tækifæri til
keppni við jafningja sína, þ.e. þeir
lentu í flokki með mun eldri ungling-
um. Áformað er að bæta úr þessu og
stofna nýjan flokk 14 ára og yngri á
næsta golfþingi. Þessi breyting hefði
það einnig í för með sér, að ungling-
ar 19—21 árs fjarlægðust nokkuð
aðra unglinga í starfsemi klúbbsins,
og væru þeir að mestu leyti í meist-
araflokksverkefnum.
Undirbúningur keppenda okkar í
GSI-mótin, þ.e. unglingameistara-
mótið og sveitakeppni unglinga', var
í megindráttum með þeim hætti, að
unglingar með 15 í forgjöf og lægra
sóttu fasta vikulega kennslutima hjá
J- Drummond í mars og apríl, auk
þess sem þeir höfðu æfingaaðstöðu
mnanhúss hjá honum. Síðan var
endurtekin 4 tíma kennslulota í
júni.
Keppnisvellir voru heimsóttir í
hópferðum eftir atvikum 5 til 1 degi
fyrir mót.
Árangur okkar manna var ekki
góður í unglingameistaramótinu,
sem haldið var á Hellu. í flokki 18
ára og yngri áttum við bestan árang-
ur um 20. sæti. I flokki 19—21 árs
áttum við 2 keppendur, sem voru í
6.—8. sæti. Flestir keppenda okkar
í þessum flokki voru uppteknir í
stigamóti annars staðar. En í
stúlknaflokki varð Ragnhildur Sig-
urðardóttir í 2. sæti.
í sveitakeppni unglingagekk hins-
vegar heldur betur. GR sendi 2 sveit-
ir í flokk 18 ára og yngri, sem keppt
var í á Akranesi. Önnur sveitin hafn-
aði í 3. sæti en hin í 7. sæti af tólf.
I sveitakeppni 18—21 árs sendi GR 2
sveitir á Hvaleyrarvöll og bar A-
sveit okkar sigur úr bítum og B-
sveitin hafnaði í 3. s^eti, sem er
glæsilegur árangur.
„Stroke — saver.“
Á vegum GR er verið að vinna að
gerð ,,stroke-savers“, þ.e. hand-
hægs bæklings með fjarlægðar-
merkingum á hverri braut. Það er
belgískt fyrirtæki, sem hefur einka-
rétt á gerð þessara ,,stroke-savera“,
eins og sjá má á golfvöllum víða um
heim. Fólk frá þessu belgíska fyrir-
tæki er búið að vera hér á vellinum
í nokkra daga og mæla hann allan
hátt og lágt, jafnframt því sem það
hefur fengið nákvæmar loftmyndir
af svæðinu. Bæklingur þessi verður
síðan seldur i versluninni fyrir
200-300 krónur og getur þann-
ig orðið klúbbnum nokkur tekju-
lind. En auðvitað er aðalatriðið,
að með bæklingnum verða allar
mælingar auðveldar. Hér tel ég
vera um mjög gott mál að ræða fyrir
GR.
Að lokum vil ég þakka meðstjórn-
endum mínum og öllum félags-
mönnum fyrir ánægjulegt sam-
starf.
Flutt af Hannesi Guðmundssyni,
formanni GR á síðasta aðalfundi.
Frá verðlaunaafhendingu ífirmakeppni 1988.