Kylfingur - 24.04.1989, Side 35
kylfingur
35
Sigurvegarar í 1. flokki kvenna og karla: Aðalheiður Jörgensen og Frans P. Sigurðsson.
3. sæti á 252 höggum og Ásgerður í
4. sæti á 256 höggum.
Steinunn Sæmundsdó’ttir lék
ágætlega á lokadegi og sigraði næsta
örugglega. Lék hún samtals á 329
höggum og var 5 höggum á undan
næstu konu, sem var Ásgerður
Sverrisdóttir, en hún lék allra kvenna
best á þessum degi eða 78 höggum.
Ásgerður var þvi á 334 höggum,
höggi á undan Karen Sævarsdóttur,
sem hafnaði i 3. sæti, höggi á undan
Ragnhildi Sigurðardóttir. Þessar
konur skáru sig mjög úr í meistara-
flokki kvenna.
Keppnin í 1. flokki karla var
skemmtileg allan tímann. Þar sigraði
Frans Páll Sigurðsson GR, og var
sigur hans verðskuldaður, þar sem
hann var eini keppandinn i þessum
Rokki, sem lék alla hringina undir 80
höggum. Frans lék samtals á 313
höggum. í 2. sæti varð Hörður
Arnarson GK á 315 höggum, og 3.
sætinu náði Arnar Baldursson GÍ
með frábærum leik á siðasta degi og
umspil við Magnús Karlsson GA og
Viðar Þorsteinsson GA, sem voru á
sama skori en hlutu 4. og 5. sæti.
Mikil barátta var í 1. flokki
kvenna, og færðist forystan á milli
keppenda frá degi til dags. En að
lokum stóð Aðalheiður Jörgensen
GR uppi sem sigurvegari, lék samtals
á 370 höggum. í 2. sæti hafnaði Erla
Adolfsdóttir GG á 373 höggum, en
Ágústa Guðmundsdóttir GR varð 3.
á 377 höggum.
Oskar Ingason GR varð sigur-
vegari í 2. flokki karla á 332 högg-
um, en Ólafur Jónsson NK sótti fast
að honum á síðasta degi og hafnaði
í 2. sæti á 333 höggum samtals. í 3.
sæti varð hins vegar Jens Jensson
GR á 335 höggum samtals.
í 2. flokki kvenna varð Elísabet Á.
Möller GR öruggur sigurvegari á 394
höggum. Jafn örugg í 2. sæti varð
Jóhanna Waagfjörð GR á 401 höggi,
en í 3. sæti varð Gerða Halldórsdótt-
ir GS á 408 höggum.
í 3. floki karla varð baráttan geysi-
hörð á milli tveggja efstu manna og
lauk ekki fyrr en í umspili, þar sem
þeir urðu jafnir á 350 höggum eftir
72 holur. En í umspilinu sigraði Odd-
ur Jónsson GA og hlaut því 1. sætið,
en Hallgrímur T. Ragnaiisson GR
varð að láta í minni pokann og
hafnaði í 2. sæti. 3. sætið hlaut Úlfar
Ormarsson GR á 356 högg-
um.
Atvinnukylfingar á íslandi eru
ekki margir, en nokkrir þeirra sem
eru við kennslu hér tóku þátt í móti,
sem leikið var á sama tíma og Lands-
mótið. Má segja, að hér hafi verið
um eins konar sýningarmót að ræða.
Þar lék John Drummond GR lang-
best og var á 301 höggi.
Mótið fór hið besta fram, og voru
keppendur íþróttinni til sóma. Ekki
var vitað annað en öllum, nema ein-
um, hefði þótt mótið hafa tekist til
á hinn besta máta.
Verðlaunahafar með forseta GSI.
IÉeIsI iTv