Fréttablaðið - 06.01.2011, Blaðsíða 10
10 6. janúar 2011 FIMMTUDAGUR
– Lifið heil
Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
28
29
1
2/
10
Omeprazol Actavis 20 mg
14 stk. Áður: 1.190 kr. Nú: 1.071 kr.
28 stk. Áður: 2.350 kr. Nú: 2.115 kr. *Gildir til 10. janúar 2011.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
Stærsti frétta- og afþreyingarvefur landsins.
ÍTALÍA Heimsmarkaðsverð á mat
hefur aldrei mælst hærra en í
desember síðastliðnum, sam-
kvæmt mælingum Matvæla- og
landbúnaðarstofnunar Samein-
uðu þjóðanna. Verðið er nú hærra
en það var árið 2008, þegar upp-
þot brutust út í nokkrum löndum
vegna verðhækkana á mat.
Vísitala sem notuð er til að
mæla breytingar á mjólkur-
vörum, kjöti, sykri, kornvör-
um og öðrum matvælum stóð að
meðaltali í 214,7 stigum í desem-
ber. Vísitalan hækkaði talsvert
frá mánuðinum á undan, þegar
hún var að meðaltali 206 stig,
segir í frétt BBC.
Í júní 2008 stóð vísitalan í
213,5 stigum. Þá brutust út fjöl-
menn mótmæli og uppþot í kjöl-
far þeirra í Egyptalandi, Haítí
og Kamerún vegna hækkandi
matarverðs.
Mótmæli og óeirðir vegna mat-
vælaverðs voru raunar algeng á
árunum 2007 til 2008. Háu hveiti-
verði var mótmælt á Ítalíu og
Marokkóbúar mótmæltu þegar
verðið á brauði hækkaði.
Óstöðugt veðurfar gæti haft
slæm áhrif á kornverð, sem er
áhyggjuefni, segir Abdolreza Abb-
assian, hagfræðingur hjá Mat-
væla- og landbúnaðarstofnun SÞ,
í samtali við BBC.
Hann telur þó aðstæður nú tals-
vert aðrar en árið 2008, til dæmis
standi framleiðsla í fátækari ríkj-
um heims betur en þá, sem dragi
úr líkum á að fólk láti óánægju
sína í ljós með jafn áþreifanlegum
hætti og þá.
Abbassian varar við því að
verð á matvælum gæti enn hækk-
að. Þar geti aðstæður í mikil-
vægum framleiðsluríkjum haft
mikil áhrif. Til dæmis geti flóðin
í Ástralíu, kuldarnir í Evrópu og
þurrkar í Argentínu haft neikvæð
áhrif á matvælaverð.
„Það er vel mögulegt að verðið
hækki mikið frá því sem nú er, til
dæmis ef ekki fer að rigna í Arg-
entínu og kuldinn í Evrópu fer
að drepa plöntur,“ sagði Abbass-
ian í viðtali við breska blaðið The
Guardian.
Búist hafði verið við lækkun á
heimsmarkaðsverði vegna góðr-
ar uppskeru í mörgum af fátæk-
ari ríkjum heims. Það hefur þó
ekki ræst þar sem óútreiknan-
legt veður fór illa með hveitifram-
leiðslu í Rússlandi.
Heimsmarkaðsverð á sykri og
kjöti hefur aldrei verið hærra, og
verð á korni, þar á meðal hveiti, er
svipuð og árið 2008.
Flóðin í Ástralíu eru þegar
farin að hafa áhrif á verð á helstu
útflutningsvörum Queensland,
þess héraðs sem flóðin hafa mest
áhrif á. Útflutningur þaðan er
mikilvægur fyrir markaði í Asíu,
sér í lagi Indland, Bangladess og
Japan.
Spár um sykurútflutning frá
Ástralíu gera nú ráð fyrir að hann
verði 25 prósentum minni en búist
var við. Einnig er talið að hveiti-
útflutningur verði umtalsvert
minni. brjann@frettabladid.is
Matvælaverð
aldrei hærra
Heimsmarkaðsverð á matvælum náði nýjum hæð-
um í desember þrátt fyrir spár um verðlækkanir.
Óstöðugt veðurfar veldur framleiðendum vandræð-
um. Verðið gæti enn hækkað segir sérfræðingur.
KAFFI Starfsmenn kaffiframleiðanda í Níkaragva flokka kaffibaunir til útflutnings.
Verð á kaffi mun líklega hækka vegna ákvörðunar stjórnvalda í Brasilíu um að tak-
marka útflutning til að hækka verð fyrir afurðirnar. NORDICPHOTOS/AFP
Það er vel mögulegt
að verðið hækki
mikið frá því sem nú er, til
dæmis ef ekki fer að rigna í
Argentínu og kuldinn í Evrópu
fer að drepa plöntur.
ABDOLREZA ABBASSIAN
HAGFRÆÐINGUR HJÁ MATVÆLA- OG
LANDBÚNAÐARSTOFNUN SÞ
APAKATTATALNING Kate Sanders,
starfsmaður Lundúnadýragarðsins,
hafði í nógu að snúast í gær þegar
árleg talning hófst í garðinum. Skepn-
ur garðsins eru um 16 þúsund.
NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu hefur handtekið
tvo menn sem reyndust hafa á sam-
viskunni innbrot í tólf fyrirtæki og
geymslustaði verktaka í Hafnarfirði
og Garðabæ. Talsverð eignaspjöll
voru unnin á mörgum innbrotsstað-
anna sem allir eru í sama hverfinu.
Mikið af þýfi fannst hjá mönnun-
um og telur lögregla að hún hafði
náð mestöllu af því sem þeir stálu.
Verðmæti þess er áætlað í kring-
um sex milljónir króna, að sögn
lögreglu.
Mennirnir tveir sem báðir eru
komnir undir þrítugt brutust inn
í fyrirtækin og geymslustaðina á
tveggja mánaða tímabili. Þar létu
þeir greipar sópa og virðast ekki
hafa valið úr. Þannig fundust hjá
þeim skærbleikar snyrtitöskur í
bland við rándýr verkfæri. Þýfið
höfðu þeir falið í skúrum og geymsl-
um sem þeir höfðu aðgang að. Því
hefur að mestu leyti verið komið í
hendur eigenda.
Mönnunum var sleppt að yfir-
heyrslum loknum og telst málið
upplýst. Þeir hafa komið við sögu
hjá lögreglu áður, einkum þó
annar þeirra, vegna fíkniefna- og
þjófnaðarmála. - jss
STÁLU ÖLLU STEINI LÉTTARA Mennirnir
stálu öllu sem hönd á festi, mest þó
verkfærum. Mynd úr safni.
Brutust inn í tólf fyrirtæki og geymslustaði verktaka í Hafnarfirði og Garðabæ:
Tveir milljónaþjófar handteknir
GRÆNLAND Breska olíufélagið
Cairn Energy hefur leigt tvo olíu-
borpalla og ætlar að bora fjór-
ar tilraunaholur undan ströndum
Grænlands í sumar. Annar bor-
pallurinn ber heitið Leifur Eiríks-
son. Áformin munu þó háð leyfi
frá grænlensku heimastjórninni.
Félagið hefur útvegað sér lán-
alínu upp á 900 milljónir dollara
frá nokkrum bönkum til að standa
straum af kostnaðinum. Cairn
Energy fann olíu og gas undan
Diskó-eyju við vesturströnd
Grænlands síðastliðið haust.
Olíuleit við Grænland:
Leifur Eiríksson
borar eftir olíu