Fréttablaðið - 08.01.2011, Side 8
8. janúar 2011 LAUGARDAGUR
Hádegisfyrirlestrar
í boði Heilbrigðisvísindasviðs
Háskóla Íslands
PI
PA
R
\T
B
W
A
\
SÍ
A
-
1
1
0
0
0
8
Mánudagur 10. janúar
Helga Gottfreðsdóttir, dósent við námsbraut
í ljósmóðurfræði, hjúkrunarfræðideild:
Að eiga von á barni
Staðsetning: Lögberg, stofa 102
Miðvikudagur 12. janúar
Þórhallur Ingi Halldórsson, lektor við matvæla-
og næringarfræðideild:
Heilsufarsleg áhrif sætuefna
Staðsetning: Lögberg, stofa 103
Mánudagur 17. janúar
Einar S. Björnsson, prófessor við læknadeild:
Lifrarskaði af völdum lyfja og náttúruefna:
algengi og afleiðingar
Staðsetning: Lögberg, stofa 102
Mánudagur 24. janúar
Bjarni E. Pjetursson, prófessor við tannlækna-
deild: Tannplantar í tannlækningum
– er tæknin búin að ná móður náttúru?
Staðsetning: Lögberg, stofa 102
Miðvikudagur 26. janúar
Sesselja Ómarsdóttir, dósent við
lyfjafræðideild:
Náttúrulyf og náttúruvörur
Staðsetning: Háskólatorg, stofa 104
Mánudagur 31. janúar
Urður Njarðvík, lektor við sálfræðideild:
„Er þetta ekki bara óþekkt?” – Athyglisbrestur
með ofvirkni hjá íslenskum börnum
Staðsetning: Lögberg, stofa 102
Í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands býður Heilbrigðisvísindasvið
upp á sex hádegisfyrirlestra á mánudögum og miðvikudögum í janúar,
kl. 12:10–12:50.
Allir velkomnir.
Nú bjóðum við allra síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 18. janúar á frábæru tilboði. Í boði
eru m.a. frábær sértilboð á hinum vinsælu gististöðum Los Tilos og Parquesol. Einnig 4 stjörnu
glæsihótelið Gran Canaria Princess með „öllu inniföldu”. Fjölbreytt dagskrá í boði í fylgd reyndra
fararstjóra.
Kanarí
18. janúar - 14 nætur
Frá kr. 95.780.
Kr. 179.900 – með „öllu inniföldu“
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna í herbergi á Gran Canaria Princess í 14 nætur með „öllu
inniföldu. Sértilboð 18. janúar.
Kr. 119.900.-
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna í íbúð á Parquesol í 14 nætur. Sértilboð 18. janúar.
Kr. 95.780.-
Netverð á mann, m.v. 3 fullorðna í íbúð á Los Tilos í 14 nætur.
Netverð á mann m.v. 2 fullorðna kr. 109.680. Sértilboð 18. janúar.
KJÖRIÐ ATVINNUTÆKIFÆRI
Verslunin Rangá er til sölu, sömu eigendur hafa rekið og átt verslunina í 39 ár og þar
áður var hún rekinn af fyrrum eiganda síðan 1931. Rangá er ein elsta matvöruverslun
rekin undir sama nafni á höfuðborgarsvæðinu. Gamall og rótgróinn
rekstur. Góður stígandi í veltu síðastliðin ár.
Allar upplýsingar fást í síma 858-4293 eða arnar@atlanta.is
HAFRÉTTARSTOFNUN
ÍSLANDS
Styrkir
til náms í hafrétti
Hafréttarstofnun Íslands er rannsókna- og fræðslustofnun á sviði
hafréttar við Háskóla Íslands og er meginmarkmið stofnunarinnar
að treysta þekkingu á réttarreglum á sviði hafréttar. Að stofnuninni
standa Háskóli Íslands, utanríkisráðuneytið og sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið.
Hafréttarstofnun auglýsir hér með eftirfarandi styrki til náms
í hafrétti til umsóknar:
1. Styrk til framhaldsnáms í hafrétti á háskólaárinu 2011 - 2012.
2. Styrki til þátttöku í sumarnámskeiði Ródos-akademíunnar í
hafrétti 3. - 22. júlí 2011.
Umsóknir berist Hafréttarstofnun Íslands, pósthólf 5445,
125 Reykjavík, fyrir 1. febrúar næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Tómas H. Heiðar, forstöðumaður
stofnunarinnar, í síma 545 9900.
DÓMSMÁL Lögmaður eins sexmenn-
inganna sem skilanefnd Glitn-
is hefur krafið um sex milljarða
skaðabætur fór í gær fram á að
málinu yrði vísað frá dómi. Sigrún
Guðmundsdóttir héraðsdómari
hefur tekið sér frest til að úrskurða
um málið.
Málið hefur verið kennt við
bresku skartgripakeðjuna Aurum
Holdings og snýst um lánveiting-
ar Glitnis til félagsins FS38 í eigu
Pálma Haraldssonar, sem lánaði
það áfram til FS37, síðar Stím, til
að kaupa hlutabréf í keðjunni af
Fons. Jóni Ásgeiri Jóhannessyni,
Pálma og Lárusi Welding er stefnt,
ásamt þremur fyrrverandi starfs-
mönnum Glitnis.
Helgi Birgisson, lögmaður Magn-
úsar Arnar Arngrímssonar, sem
er stefnt í málinu, sagði bótakröfu
skilanefndarinnar allt of háa, enda
lægi ekki fyrir hversu mikið fengist
upp í kröfur bankans vegna lánveit-
ingarinnar. Þá væri ljóst að bóta-
krafan ætti ekki að vera hærri en
næmi mismuninum á þeirri upphæð
sem lánað var og svo aftur þeirri
upphæð sem bankanum hefði verið
heimilt að lána. Engin tilraun hefði
verið gerð til að meta hann.
Helgi sagði umbjóðanda sinn
telja að vanreifun á bótakröfunni
væri tilefni til frávísunar máls-
ins, en ástæða þess að aðrir sem
skilanefnd Glitnis hefði kært væru
ekki með í kröfunni væri sú að þeir
teldu vanreifunina fremur ástæðu
til sýknunar. Stutt væri á milli
þessara krafna.
Helgi benti á að lánin til FS38
og Blásólar, félags Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar, hefðu verið til upp-
greiðslu á eldri lánum. Þá hefðu 1,2
milljarðar króna farið beint inn á
innlánsreikning í Glitni sem hand-
veð til tryggingar. „Þannig nam
raunveruleg lánveiting tveim-
ur milljörðum króna, en ekki sex
milljörðum,“ sagði hann.
Hróbjartur Jónatansson, lögmað-
ur skilanefndar Glitnis, furðaði
sig á kröfu þeirri sem Helgi setti
fram og kvað grundvallaratriði í
réttarfari að tækist ekki sönnun
á tjóni undir löglegri málsmeð-
ferð kynni það vitanlega að leiða
til sýknu. „Mótbárur stefnda eiga
ekki við. Þær varða efnishlið máls-
ins og snúa ekki að forminu,“ sagði
Hróbjartur og kvað fráleitt að
eyða tíma dóms og lögmanna í að
fjalla um málið á þessu stigi undir
þessum formerkjum.
olikr@frettabladid.is
Bótakrafa sögð
vera vanreifuð
Lögmaður vill að sex milljarða skaðabótakröfu
skilanefndar Glitnis verði vísað frá héraðsdómi.
HRÓBJARTUR JÓNATANSSON OG HELGI BIRGISSON Lögmenn tókust í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær á um frávísunarkröfu í sex milljarða króna skaðabótamáli Glitnis á
hendur sex eigendum og stjórnendum bankans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐSKIPTI Raungengi íslensku krón-
unnar lækkaði um 0,6 prósent í
desember á mælikvarða hlutfalls-
legs verðlags, samkvæmt nýbirt-
um tölum Seðlabankans.
Í umfjöllun Greiningar Íslands-
banka kemur fram að raungengi
krónunnar sé langt undir lang-
tímameðaltali, eða ríflega 23 pró-
sentum undir meðaltali áranna
1980-2009.
Greining Íslandsbanka segir
að raungengi krónu eigi eftir að
hækka, en töluvert langur tími
kunni að líða þar til það komist
í námunda við einhvers konar
jafnvægi. - óká
Bið á að raungengið styrkist:
Raungengi enn
undir meðaltali
Færri nauðungaruppboð
289 bílar voru seldir nauðungarsölu
hjá Sýslumanninum í Reykjavík árið
2010. Þetta er nokkru minna en
árið áður, þegar bílarnir voru 441.
Nauðungarsölubeiðnum fækkaði líka
á milli áranna 2009 og 2010, úr 1.068
í 723.
UPPBOÐ