Fréttablaðið - 08.01.2011, Blaðsíða 105
LAUGARDAGUR 8. janúar 2011 61
FÓTBOLTI Um helgina verður leikið
í ensku bikarkeppninni og fara
fjölmargir leikir fram. Þeir eru
mismerkilegir en langstærsti
leikur helgarinnar er viðureign
stórveldanna Manchester United
og Liverpool á Old Trafford.
Það er orðið sjóðheitt undir Roy
Hodgson, stjóra Liverpool, og
bjuggust margir við því að hann
yrði rekinn fyrir leikinn en af því
varð ekki. Margir spá þó því að
leikurinn gegn United verði hans
síðasta tækifæri hjá félaginu. Tap-
ist leikurinn er Hodgson farinn.
Hann afboðaði hinn venjulega
blaðamannafund félagsins fyrir
leiki í gær en tjáði sig í staðinn við
vefsíðu félagsins.
„Þetta er alvöru leikur fyrir
okkur til þess að komast í gang.
Með sigri í þessum leik getum við
gleymt tapinu gegn Blackburn
en við vorum skelfilegir í vörn-
inni í þeim leik,“ sagði Hodgson,
sem hefur ekkert viljað tjá sig
um framtíðina eftir tapið gegn
Blackburn.
„Það er mikilvægt að stuðnings-
mennirnir skilji að við vitum
hvaða væntingar þeir hafa til liðs-
ins. Við gerum einnig miklar kröf-
ur til okkar. Í hvert skipti sem við
förum inn á völlinn viljum við sjá
drauma okkar rætast og spila þann
leik sem við vitum að liðið getur
spilað. Það er sárt þegar hlutirnir
ganga ekki upp og stuðningsmenn-
irnir láta okkur heyra það. Það eru
allir í sárum.“
Wayne Rooney lék ekki síðasta
leik United vegna ökklameiðsla en
Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd,
vonast til þess að geta notað hann
á morgun. - hbg
Wayne Rooney verður væntanlega í liði Man. Utd gegn Liverpool á morgun:
Lokatækifæri Roy Hodgson?
BARÁTTA Þeir Anderson og Steven Gerrard verða væntanlega báðir með takkana á
lofti í dag. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Enski bikarinn
Helstu leikir í dag:
Arsenal - Leeds United
Millwall - Birmingham
Blackburn - QPR
Bolton - York City
Brighton - Portsmouth
Coventry - Crystal Palace
Hull City - Wigan
Reading - WBA
Scunthorpe - Everton
Sheff. Utd - Aston Villa
Southampton - Blackpool
Stoke City - Cardiff City
Sunderland - Notts County
Watford - Hartlepool
West Ham - Barnsley
Stevenage - Newcastle
Sunnudagur:
Man. Utd - Liverpool
Tottenham - Charlton Atletic
Chelsea - Ipswich
Leicester City - Man. City
FÓTBOLTI Hollenskir fjölmiðlar
héldu því fram í gær að Hollend-
ingurinn Ryan Babel, leikmaður
Liverpool, væri á óskalista þýska
úrvalsdeildarfélagsins Hoffen-
heim.
Talið er að Hoffenheim sé nú
að leita að eftirmanni Demba
Ba, sem hefur farið í verkfall hjá
félaginu vegna þess að hann vill
komast í ensku úrvalsdeildina.
Hvort sem honum tekst það eða
ekki er talið ólíklegt að Ba spili
með Hoffenheim á næstu vikum
og mánuðum. Félagið er þó til í
að skoða að selja leikmanninn, þó
svo það sé ekki hrifið af uppátæk-
inu. Þetta er í annað sinn á ferlin-
um sem Ba fer í verkfall til þess
að þvinga fram félagaskipti.
Babel er uppalinn leikmaður
Ajax í heimalandinu og var seld-
ur til Liverpool árið 2007.
Þar hefur hann aldrei náð að
festa sig almennilega í sessi í
byrjunarliðinu og hefur meira að
segja lítið fengið að spila í vetur
þrátt fyrir slæmt gengi liðsins.
Gylfi Þór Sigurðsson var í
sumar keyptur til Hoffenheim
frá Reading fyrir sex milljónir
punda. - esá
Babel á leið til Þýskalands?
Orðaður við
Hoffenheim
RYAN BABEL Hefur aldrei komist í gang
hjá Liverpool. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES