Fréttablaðið - 08.01.2011, Blaðsíða 53
Lykilstörf í upplýsingatækni og hugbúnaðargerð
Leitum að öflugum einstaklingum
fyrir úrvals vinnuveitendur
Síðumúla 5, 108 Reykjavík
Sími 511 1225 Fax 511 1126
www.intellecta.is
Oracle
Starfið felst í rekstri Oracle gagnagrunna (DBA) fyrir mörg af stærstu
fyrirtækjum landsins. Oracle (DBA) reynsla er æskileg en reyndir
hugbúnaðarsérfræðingar sem hafa áhuga á að breyta til og starfa sem
Oracle sérfræðingar koma vel til greina. Vottanir eru æskilegar en séu
þær ekki fyrir hendi er gert ráð fyrir að viðkomandi öðlist slíkar gráður
á fyrstu mánuðum í starfi. Gott tækifæri í boði.
VMware og/eða Hyper-V sérfræðingar
Við leitum að sérfræðingum með þekkingu á VMware og/eða Hyper-V.
Viðkomandi munu vinna við innleiðingar og þróun viðkomandi lausna.
Hæfniskröfur: Tæknileg þekking og reynsla af innleiðingu og rekstri
ofangreindra lausna. Áhersla er á metnað til að veita fyrsta flokks
þjónustu. Æskilegt er að viðkomandi hafi tæknilegar vottanir. Í boði
er spennandi starf hjá einu af öflugustu upplýsingatæknifélögum á
landinu.
Java hugbúnaðarþróun
Öflugt hugbúnaðarfyrirtæki með fjölbreytt verkefni hér heima og
erlendis óskar að ráða öflugan Java forritara. Unnið er skv. Agile
Scrum aðferðafræðinni og námskeið í boði fyrir þá sem vilja tileinka
sér þau fræði. Topp starf og mikil tækifæri í boði.
Hugbúnaðarsérfræðingur/arkitekt
Starfið felst í hönnun, forritun og samþættingu kerfa. Leitað er að
öflugum fagmanni með a.m.k. fimm ára reynslu í faginu. Góð þekking
á .NET, C# og SQL er nauðsynleg. Topp starf í boði.
Kerfisstjóri
Leiðandi þjónustufyrirtæki leitar að reyndum sérfræðingi í starf
kerfisstjóra. Leitað er að einstaklingi sem ræður við flókin verkefni,
getur sinnt leiðtogahlutverki og vill skara fram úr í faglegum
vinnubrögðum. Þekking á m.a. vefþjónum (IIS), Archive Directory,
SCRUM og ITIL er nauðsynleg. Gott tækifæri í boði.
Hugbúnaðarprófanir
Öflugt fyrirtæki leitar að sérfræðingi í hugbúnaðarprófunum. Í starfinu
felst meðal annars ábyrgð á framkvæmd prófana og samskiptum við
hugbúnaðarsérfræðinga. Leitað er að háskólamenntuðum einstaklingi
með a.m.k. þriggja ára reynslu af prófunum eða þróun hugbúnaðar.
Þekking á uppbyggingu og framkvæmd sjálfvirkra prófana æskileg.
Unnið er skv. AgileScrum aðferðafræðinni.
Kerfis- og þarfagreining
Öflugt fjármálafyrirtæki leitar að sérfræðingi á upplýsingatæknisvið
sem sérhæfir sig í þarfagreiningum og tengdum verkefnum; greinir
þarfir notenda, býr til frumgerðir og kynnir fyrir viðskiptavinum, gerð
gagna fyrir viðtökuprófanir, þjálfun og kennsla notenda á viðkomandi
kerfi, verkefnastjórnun o.fl. Viðkomandi yrði vörustjóri einstakra
kerfa. Viðkomandi þarf að hafa háskólamenntun í verk-, tölvunar- eða
viðskiptafræði, gott vald á íslensku og ensku í rituðu máli ásamt færni
á sviði upplýsingatækni. Þekking innan fjármálageirans er æskileg
sem og nám í verkefnastjórnun.
Hópstjóri - Service desk
Öflugt fjármálafyrirtæki leitar að einstaklingi sem getur byggt upp
og stýrt u.þ.b. 10 manna hópi sem annast “first level support” og
tengd verkefni. Leitað er að einstaklingi með reynslu af sambærilegu
starfi á sviði upplýsingatækni. Leiðtogahæfni, reynsla í þróun og
endurhönnun verkferla er nauðsynlegt að hafa ásamt metnaði til að
veita fyrsta flokks þjónustu. Þekking á ITIL er æskileg.
Marel - Dynamics AX forritun
Marel leitar að reyndum Axapta forritara. Í boði er fjölbreytt starf
við þarfagreiningu, hönnun og forritun á rekstrar upplýsingakerfum
Marel samstæðunnar. Starfið krefst ferðalaga þar sem lausnirnar eru
að mestu þróaðar á Íslandi og svo innleiddar í starfsstöðvum Marel
erlendis. Viðkomandi fær að njóta sín í fjölbreyttum verkefnum.
Marel - tækjaforritun
Marel leitar að reyndum forritara í hugbúnaðarþróun og tengd
verkefni við þróun á vél- og hugbúnaðarlausnum fyrir kjötiðnaðinn.
Í boði er fjölbreytt starf við greiningu, hönnun og forritun lykilkerfa
og miklir möguleikar fyrir réttan aðila. Lausnirnar eru þróaðar
í teymi sérfræðinga hér heima og erlendis. Viðkomandi þarf að
hafa áhuga á að ferðast og njóta sín í teymisvinnu. Verkfræði- eða
tölvunarfræðimenntun er æskileg.
Concord forritun
Concord XAL sérfræðingur óskast í þróun og þjónustu hjá öflugu
þjónustufyrirtæki með umfangsmikla starfsemi. Leitað er að
reyndum og færum Concord forritara sem hefur áhuga á að þróa
lykilupplýsingakerfi fyrirtækisins og metnað til að veita fyrsta flokks
þjónustu. Gott tækifæri í boði.
Hugbúnaðarsérfræðingar
Óskum eftir að komast í samband við háskólamenntaða
hugbúnaðarsérfræðinga sem vilja leita nýrra tækifæra á sviði
hugbúnaðargerðar eða annarra starfa á sviði upplýsingatækni. Meðal
viðskiptavina okkar á sviði upplýsingatækni eru fjölmörg fyrirtæki af
ýmsum stærðum í ólíkum atvinnugreinum. Í boði eru fjölbreytt störf
og margvísleg tækifæri. Hafðu samband við ráðgjafa Intellecta og
kannaðu málið.
Upplýsingar um störfin veita Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) og
Ari Eyberg (ari@intellecta.is) í síma 578 1145.
Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem
trúnaðarmál og þeim svarað.
Umsókn með ferilskrá óskast fyllt út á www.intellecta.is fyrir
18. janúar nk.