Fréttablaðið - 08.01.2011, Side 23

Fréttablaðið - 08.01.2011, Side 23
LAUGARDAGUR 8. janúar 2011 23 S tefna Háskóla Íslands til næstu fimm ára var kynnt í gær. Að hvaða leyti er hún frábrugðin þeirri fyrri? „Hún er ólík að því leyti að þetta er annar áfangi stefnunnar og við erum að marka leiðina áfram fyrir næstu fimm ár. Langtímamarkmiðið er það sama; að Háskóli Íslands verði í fremstu röð. Þetta markmið settum við að vandlega íhuguðu máli því vissu- lega veltum við fyrir okkur hvort þetta væri rétti tíminn til að halda sig við svo háleit markmið. Við tókum þessa umræðu hér og nið- urstaðan var sú að halda þessu markmiði til streitu, annars vegar vegna þess að þrátt fyrir erfiðar aðstæður náðist mikill árangur af fyrri stefnumótuninni og hins vegar vegna þess að í þeirri endur- reisn sem stendur yfir í samfélag- inu er nauðsynlegt að hafa sterkan háskóla sem er tilbúinn að berjast til að ná auknum árangri.“ Ánægð með fjölgun doktorsnema Hvað ertu ánægðust með þegar litið er til síðustu fimm ára? „Eftir þessa fimm ára vinnu er Háskóli Íslands mun sterkari vís- inda- og rannsóknastofnun og við skilum frá okkur betur menntuðu fólki. Það er hægt að mæla þetta í ýmsu. Það sem ég er ánægðust með er efling doktorsnámsins og að brautskráðum doktorum hefur fjölgað verulega. Birtum greinum í virtum vísindaritum hefur einn- ig fjölgað verulega. Þetta hljómar ef til vill eins og klisja en skipt- ir alveg gífurlegu máli. Slíkum greinum hefur fjölgað um 85 pró- sent á fjórum árum. Annað sem við erum mjög stolt af er áhrifa- máttur rannsókna hér við skólann, hversu oft aðrir vísindamenn víða um heim vitna í viðkomandi verk. Tilvitnunum hefur fjölgað um hundrað prósent á þessu tímabili. Þetta er allt skráð í alþjóðlegum gagnabönkum vegna þess að þetta skiptir máli og segir til um stöðu skólanna. Svo má nefna að starfs- fólk hefur verið duglegt að sækja í erlenda rannsóknasjóði til að fjár- magna rannsóknir. Mikill árangur hefur verið af þessum umsóknum; upphæð úr þeim nam til dæmis milljarði króna á árinu sem er að líða og aukning á fjórum árum er 300 prósent. Það sem hefur valdið mér mest- um vonbrigðum er að okkur hefur ekki tekist að ráða fleira starfs- fólk. Það var auðvitað hluti stefn- unnar að leggja áherslu á nýliðun við skólann en það höfum við ekki getað gert vegna þeirra breytinga sem urðu í fjármögnun skólans eftir hrunið 2008.“ Nálægt 500 bestu Það markmið var sett árið 2006 að koma Háskóla Íslands í hóp þeirra 100 bestu í heiminum. Háskólinn er ekki kominn þangað og raunar ekki á lista yfir þá 500 bestu í heiminum, hvernig skýrir þú það? „Markmiðið að verða í hópi þeirra 100 bestu var langtíma- markmið og við hugsuðum á sínum tíma að það væri raunhæft að ná því á tíu til fimmtán árum. Fyrsti fimm ára áfanginn skil- aði okkur sannarlega áleiðis. Nú þurfum við að spýta í lófana og fá stjórnvöld í verkið með okkur. Annars er ljóst að það mun taka allt of langan tíma og samfélag- ið hefur ekki efni á því. Öflugri skóli er ein forsenda endurreisn- ar og nýsköpunar atvinnulífs og samfélags. Við gerðum árang- urstengdan samning við ríkið og fengum nýtt fjármagn í tvö ár. Framkvæmd samningsins var síðan frestað eftir hrunið. Því til viðbótar hefur Háskól- inn líka sætt miklum niðurskurði á fjárlögum. Í ár er þriðja árið sem við þurfum að takast á við niðurskurð. Við erum komin að þeim mörkum að það er ljóst að við förum ekki lengra á núverandi eldsneyti, okkur tekst varla að gera skólann betri ef niðurskurð- urinn heldur áfram. Okkur reikn- ast hins vegar til að við séum ekki langt frá því að komast inn á list- ann yfir 500 bestu skólana.“ Hvernig hefur verið brugðist við niðurskurðinum til skólans? „Það er minna um valkúrsa, í sumum greinum er tekið inn annað hvert ár. Aukin kennslu- skylda er hjá kennurum, sem þýðir aukið álag án þess að greitt sé fyrir það. Starfsfólk hefur tekið á sig verulega aukna ábyrgð. Laun hafa verið lækkuð og starfshlut- fall skert, auk þess sem við erum búin að kemba allan almennan rekstur. Það er ljóst að við förum ekki lengra á sama eldsneyti.“ Fjöldatakmarkanir í undirbúningi Nemendum við Háskóla Íslands hefur fjölgað mikið undanfarin ár, einkum eftir að kreppan skall á, og rætt hefur verið um fjöldatak- markanir inn í skólann. Heldur þú að til þess komi strax næsta skólaár? „Við höfum sett af stað vinnu til þess að fara yfir þessi mál og háskólinn þarf að skoða hvort beita þurfi aðgangstakmörkun- um. Nemendum hefur fjölgað eins og við erum líka að glíma við nið- urskurð. Svona er ekki hægt að halda áfram, í ár þýðir þetta til dæmis að við erum með 700 nem- endaígildi sem ekkert er greitt með. Þetta er alvarleg staða og gerir það að verkum að við eigum á hættu að geta ekki lengur staðið vörð um gæði námsins. Þess vegna þurfum við að skoða alvarlega hvort beita eigi fjöldatakmörk- unum eins og víðast hvar er gert. Ég var að koma af fundi mennta- málaráðherra þar sem við rædd- um um þá vinnu sem í gangi er í HÍ til að endurskoða framvindu- kröfur í námi, inntökuskilyrði og aðrar aðhaldsaðgerðir til að auka skilvirkni og hagkvæmni. Hvernig aðferðum ætti að beita til þess að takmarka fjölda nem- enda? „Það eru mjög margar aðferð- ir sem koma til greina og núna erum við að skoða hvernig gert er í nágrannalöndunum þar sem takmarkanir eru frekar regla en hitt. Sums staðar ákveða stjórn- völd kvóta fyrir námsgreinar og sums staðar er farið eftir ein- kunnum úr framhaldsskólum, sem er reyndar erfitt hér. Það er hægt að beita inntökuprófi í greinar eða hleypa inn og efna svo til sam- keppnisprófs eftir eitt misseri. Samfélagið þarf öflugan háskóla KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR Niðurskurður á fjárframlögum til Háskóla Íslands og aukinn fjöldi nemenda útilokar að Háskólinn verði betri en hann er, segir rektor sem kallar eftir auknu fé til skólans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Háskóli Íslands fagnar aldarafmæli á þessu ári. Kristín Ingólfsdóttir, rektor háskólans, kynnti afmælisdagskrána við hátíðlega athöfn í gær og sömuleiðis stefnu skólans til næstu fimm ára. Sigríður Björg Tómasdóttir ræddi við Kristínu, sem sagði henni að markið væri enn sett á að Háskóli Íslands yrði með þeim bestu í heiminum, en til að það tækist þyrfti aukinn stuðning stjórnvalda. FRAMHALD Á SÍÐU 24 „Háskóli Íslands er ört vaxandi rannsóknaháskóli sem hefur sett sér það langtímamarkmið að vera í hópi fremstu háskóla í heimi. Í því skyni leggur skólinn áherslu á frjótt rannsóknaumhverfi, árangur í rannsóknum, öflugt meistara- og doktorsnám, nýsköpun og hagnýtingu þekkingar. Áfram verður kostað kapps um að tryggja skilvirkni og gæði á öllum sviðum háskólastarfs- ins. Háskóli Íslands mun renna stoðum undir stefnu sína með markvissri sókn í erlenda og innlenda samkeppnissjóði. Innviðir doktorsnámsins verða styrktir í samræmi við alþjóðlega viðurkennda mælikvarða og gæðaviðmið. Mikilvægt er að virkja á nýjan leik samning Háskóla Íslands og stjórnvalda um fjármögnun stefnunnar og tryggja með þeim hætti að markmið hennar nái fram að ganga.“ Úr stefnu Háskóla Íslands 2011-2016 STEFNA UM RANNSÓKNIR OG NÝSKÖPUN Við erum komin að þeim mörkum að það er ljóst að við förum ekki lengra á núverandi eldsneyti, okk- ur tekst varla að gera skólann betri ef niðurskurðurinn heldur áfram.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.