Fréttablaðið - 08.01.2011, Page 30
30 8. janúar 2011 LAUGARDAGUR
Þ
að hefur ekki væst um
Frank Hvam og Casper
Christensen hér á landi
þrátt fyrir kalda tíð,
rok og snjókomu. Þeir
flugu á Saga Class til
landsins á fimmtudaginn og gistir
hvor á sinni svítunni á Hótel Holti.
Frank viðurkennir fljótlega að hann
hafi verið seint á fótum kvöldið
áður, þeir Casper hafi farið á Dillon
og drukkið nokkra bjóra. „Síðan var
okkur bara kippt inn í einhvern bíl
og við fórum á leynilegan skemmti-
stað sem ég veit ekkert hvar er eða
hvað heitir.“ Hljómar nánast eins
og söguþráður í Klovn-þætti. Frank
segir heimsóknina hins vegar vera
vinnuferð en ekki Tour de fisse eða
„píkuferð“ eins og Casper kemst að
orði í Klovn: The Movie. „Nei, nei,
við Casper erum báðir í góðum sam-
böndum heimafyrir … en við erum
það svo sem líka í myndinni. En nei,
þetta er tour de work. Tour de fisse
er hins vegar svolítið fyndið orð,
ekki satt?“
Ítalir ekki hrifnir
Umrædd Klovn-mynd er vandræða-
lega fyndin, þeir Frank og Casper
halda í mikla kanó-ferð með ell-
efu ára gamlan frænda Miu, Bó,
í eftirdragi. Frank hyggst nefni-
lega sanna sig í föðurhlutverkinu.
En eins og gefur að skilja fer allt
úrskeiðis enda hafa þeir gjörólík-
ar hugmyndir um hvað skuli gera
í ferðinni. Sum atriði myndarinn-
ar eiga eflaust eftir að hneyksla
íslenska góðborgara en Frank
segir þá hvorki hugsa um þolmörk
áhorfenda né hvort þeir séu hugs-
anlega að fara yfir strikið. „Við
viljum bara segja sögur og ef eitt-
hvað er fyndið þá látum við það
bara flakka,“ útskýrir Frank. Þótt
Íslendingar, Færeyingar, Græn-
lendingar og Danir hafi fallið fyrir
þeirri hugmyndafræði þá verður
hið sama ekki sagt um allar þjóðir,
Ítalir vildu ekki sjá þættina og Pól-
verjar fengu nóg þegar þeim fannst
tvíeykið gera grín að hinum látnu.
Þá hafði aska móður Caspers verið
borin fram sem salat á aðfangadag.
„Þetta fannst þeim ekki fyndið,“
segir Frank. „En í okkar huga var
þetta bara aska.“
Tæknibrellur í ástaratriði
Vissulega eru nokkur atriði í Klovn-
myndinni sem kunna að hneyksla.
Þar má meðal annars sjá annan
trúðinn hafa samfarir við karl-
mann og trekant þeirra félaga með
íturvaxinni pönnukökudömu. En
það er ekki allt sem sýnist og hér er
rétt að taka fram að Frank brydd-
aði sjálfur upp á þessari umræðu.
„Það er ákveðið atriði þar sem
við Casper erum inni í tjaldi með
Bó og tökum mynd af litla tillan-
um hans. Svo það sé á hreinu þá
var tæknibrellum beitt við þetta
atriði, þetta er latex-brúða. Hitt
hefði verið siðferðilega og laga-
lega rangt,“ útskýrir Frank og við-
urkennir að það hafi verið erfitt að
leika í áðurnefndri ástarsenu – ef
ástarsenu skyldi kalla. „Það þurfti
náttúrulega að taka hana upp sex
eða sjö sinnum og við fundum vel
fyrir hvort öðru. Hins vegar verð-
ur að taka fram að tæknibrell-
um var einnig beitt við gerð þess
atriðis, puttinn á mér var gerður
aðeins lengri.“ Þeir sem hafa ekki
séð myndina verða bara að geta í
eyðurnar.
Annt um einkalífið
Í þeim töluðu orðum birtist Casper
eins og skrattinn úr sauðarleggnum
og kvartar góðlátlega undan því að
hann þurfi að vera inni í matsaln-
um þar sem morgunmaturinn er
borinn fram en Frank fái að sitja á
barnum. „Af hverju fórum við ekki
bara hingað í gærkvöldi?“ spyr
hann Frank og hverfur jafnskjótt
og hann birtist.
Frank og Casper eru jafn ólík-
ir og dagur og nótt. Casper virkar
sjálfsöruggur með risastórt húðflúr
á handleggnum á meðan Frank er
fremur nördalegur með gleraugu.
Viðhorf þeirra til einkalífsins er
líka gjörólíkt. Fæstir Danir vita
hvernig kærasta Franks lítur út
og eflaust kemur það einhverjum á
óvart að hann eigi tveggja ára gam-
alt barn. „Casper býr hins vegar í
kastljósinu, hann er opinber per-
sóna fram í fingurgómana. Allt
sem hann gerir er opinbert. Hann
hefur enga þörf fyrir einkalíf ólíkt
mér sem verð að hafa mitt prívatl-
íf í friði. Casper er sennilega eina
manneskjan sem getur látið þetta
ganga upp, að vera frægur og gera
eitthvað gott. Flestir sem tala um
hvað þeir áttu vonda æsku eða eitt-
hvað í þeim dúr gera það vegna
þess að varan þeirra er drasl. Og
þeir nota einkalífið sitt til að kynna
hana.“
Vildi ekki gera myndina
Frank leist ekkert á blikuna þegar
sú hugmynd barst í tal að gera kvik-
mynd eftir þáttunum. „Mér var illa
við það og vildi ekkert gera þetta.
Ég var ekki viss um þetta væri
rétta skrefið og var hræddur um að
við myndum bara gera mynd sem
væru þrír þættir af Klovn skeytt
saman. En mér finnst eins og okkur
hafi tekist að gera virkilega góða
mynd og sýnt hliðar á Frank og
Casper sem ekki hafa sést áður.“
Frank og Casper vinna mjög náið
saman, loka sig af uppi í sumar-
bústað og vinna dag og nótt. „Ég
slekk á símanum og það er ómögu-
legt að ná í mig. Sem reynir auðvit-
að á fjölskylduna en ég hef komist
að því að það er betra að vera algjör
asni í stuttan tíma en að vera lítill
asni í langan tíma.“
Framtíð Klovn óráðin
Smá fát kemur á Frank þegar
hann er spurður hvort þeir séu
ekki orðnir ríkir á Klovn-æðinu en
allt bendir til þess að myndin verði
ein vinsælasta mynd Danmerkur
frá upphafi. Sjálfur vill hann ekki
meina það. „Enginn verður ríkur
á sjónvarpi í Danmörku, það er
kannski betra upp úr þessu að hafa
en hér á Íslandi, og svo er Dan-
mörk ekki jafnstórt markaðssvæði
og Þýskaland. Maður verður fyrst
og fremst að hafa gaman af þessu,“
segir Frank en upplýsir jafnframt
að hann og Casper hafi fengið eina
milljón danskra króna hvor fyrir
gerð myndarinnar sem samsvar-
ar tæpri 21 milljón íslenskra. „Við
munum síðan græða eina milljón
danskra hvor á góðu gengi í miða-
sölu en síðan borgum við skatt af
þessu.“ Samtals gera þetta því 42
milljónir króna fyrir hvorn.
Frank vill ekki svara því hver
framtíð Klovn-fyrirbærisins sé,
sjónvarpsþættirnir séu búnir og
verði ekki gerðir aftur. Og það sé
allsendis óvíst hvort önnur Klovn-
mynd verði gerð. „En ef við fáum
góða hugmynd og höfum áhuga þá
gerum við auðvitað aðra mynd.“
Við verðum ekki ríkir á Klovn
Frank Hvam og Casper Christensen eru í miklu uppáhaldi hjá Íslendingum sem tvíeykið í Klovn. Enn og aftur heimsækja þeir
þjóðina sem Frank segir vera opnari og svalari en landar hans. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við danska grínistann um sam-
starfsfélagann Casper, mörkin í gamanleik og framtíð Trúðanna á barnum á Hótel Holti.
VILL VERA Í FRIÐI Þrátt fyrir að Frank Hvam láti teyma sig út í alls konar vitleysu í sjónvarpsþáttunum og myndinni um Klovn þá á hann konu og tveggja ára gamalt barn og hann vill standa utan við kastljós fjölmiðlanna.
Ólíkt Casper sem er svo opinber persóna, að sögn Franks, að hann hefur enga þörf fyrir einkalíf. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Casper Christensen og Frank Hvam kynntust við gerð þáttanna Casper og Mandrilaftalen sem voru innblásnir af Monty Python og
voru sýndir á DR 2 árið 1999. Þeir hafa öðlast hálfgerðan költ-status
meðal dönsku þjóðarinnar og þykja nokkuð súrrealískir. Meðal gesta
í þeim þáttum var John Cleese sem þóttist vera þjálfari danska lands-
liðsins í knattspyrnu.
Næst tóku við þættirnir Langt fra Las Vegas, þar sem Iben Hjejle
bættist í hópinn, en þeir voru á dagskrá TV2 ZULU í tvö ár. Til gam-
ans má geta að meðal leikara í þeim þáttum var klámmyndastjarnan
Katja K. En svo var komið að Klovn. Alls hafa verið gerðir sextíu
þættir um tvíeykið og samskipti þeirra við vini og vandamenn. Fyrir
utan Klovn hefur Frank staðið fyrir vinsælum uppistandssýningum en
Casper er stjórnandi vinsæls spjallþáttar.
■ SEXTÍU ÞÁTTUM SEINNA
F rank Hvam er fæddur i Viborg árið 1970. Hann hafði engan áhuga
á skemmtanabransanum til að byrja
með og fannst sá iðnaður hallærisleg-
ur. Hann lagði stund á dýralækningar
og var kominn nokkuð vel á veg í því
fagi þegar grínið greip hann. „Ég
kann að opna kött en ekki loka honum.
Casper hatar hins vegar dýr. Við
erum ólíkir að því leyti.“
■ ÆTLAÐI AÐ VERÐA DÝRALÆKNIR