Fréttablaðið - 08.01.2011, Síða 44
8. JANÚAR 2011 LAUGARDAGUR10 ● fréttablaðið ● heilsa og hreyfi ng
Fátt er betra en að fá nudd á
axlir og herðar þegar þreytan
læsir sig þar. Björk Valdimars-
dóttir, hjúkrunarfræðingur og
nuddari, var beðin um góð ráð
til þeirra sem vilja veita sínum
nánustu nokkrar strokur.
F lestir geta nuddað sitt heimafólk en auðvitað er best að hafa þekkingu á
faginu þegar hafist er handa,“
segir Björk Valdimarsdóttir í
Nuddheimum er hún byrjar sín
heilræði. Hún segir hægt að fram-
kvæma nuddstrokur á ýmsan
máta. „Þær geta verið hægar, létt-
ar og mjúkar til slökunar en líka
hraðar eða með miklum þrýstingi
ef þurfa þykir, til dæmis ef slæm
vöðvabólga er til staðar,“ lýsir
hún og segir hægt að nota matar-
olíu við nuddið. Hún mælir með að
staldrað sé við viðkvæma punkta,
sérstaklega þá sem leiða á önnur
svæði. „Oft finnur maður hnút
sem leiðir frá öxlum upp í höfuð
eða út í handlegg. Hann getur
líka verið meðfram herðablaði og
leitt út í handlegg sem verkur eða
jafnvel dofi. Þegar maður finnur
svona punkt er gott að halda stöð-
ugum þrýstingi og þá fjarar hann
oftast út á nokkrum sekúndum,“
segir hún en tekur fram að hægt
sé að nota olnbogana í punktana ef
fingurnir þreytast.
Nudd er áhrifarík leið til
slökunar að sögn Bjarkar. „Við
slökun hægist á hjartslætti og
öndun, blóðþrýstingur lækkar og
meltingarkerfið og ónæmis kerfið
örvast,“ lýsir hún og mælir líka
með því að nudda iljar og ristar.
„Í fótunum er að finna punkta
fyrir hvert líffæri og líkams-
hluta og með því að nudda fæt-
urna örvum við virkni þeirra
og losum um spennu,“ segir hún
og segir hægt að svæfa börn
með fótanuddi en varar við fóta-
nuddi barns hafandi kvenna, því
ákveðnir punktar geti komið af
stað fæðingu fyrir tímann.
Þótt leikmenn geti nuddað full-
hraust fólk þá er ýmislegt að var-
ast og þá sérstaklega ef nuddþeg-
inn er veikur fyrir.
„Ef viðkomandi hefur fengið
hnykk á hálsinn er ekki æski-
legt að nudda það svæði heima
við, heldur láta fagmann með-
höndla það,“ segir Björk alvarleg í
bragði „og ef um krabbmeinssjúk-
ling með meinvörp í beinum er að
ræða skal eingöngu nota mjög
léttar strokur vegna hættu á brot-
um.“ Hún bendir þó á að allir hafi
þörf fyrir snertingu og nudd sé
góð leið til að gefa af sér og sýna
umhyggju og skilning. Nánar upp-
lýsingar er að finna á www.nudd-
heimar.is - gun
Hinir nánustu
nuddaðir
Verkur getur verið á einum stað en
orsökin annars staðar.
Hægt er að nota olnbogana í erfiða
punkta ef fingurnir þreytast.
Heitir bakstrar auka blóðflæðið í
vöðvanum og stuðla að slökun.
Í fótunum er að finna punkta fyrir hvert líffæri og líkamshluta og með því að nudda
fæturna örvum við virkni þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hnútar geta verið hvar sem er í vöðvun-
um en gott er að staldra við þá og veita
þeim sérstakan stuðning.
Við trúum á heilbrigða sál í hraustum líkama.
Vel ígrunduð og góð hreyfing skiptir miklu
fyrir hvorutveggja. Við lítum á líkamsrækt sem
lang hlaup fremur en sprett hlaup. Þess vegna
sköpum við henni umgjörð sem ætlað er að
auka í senn líkur á úthaldi í mætingum og um
leið árangur til langs tíma. Við bjóðum konum
að njóta sín með okkur í þrautreyndri alhliða
leikfimi, dansi, jóga og fit-pilates þar sem
liðleiki, styrkur og jafnvægi er sett í öndvegi.
Aðstæður í Mecca Spa tryggja þægindin,
leiðbein endur fagmennskuna og þátttakendur
árangurinn og ánægjuna. Saman leggjum við
grunn að heilbrigðum og gefandi lífsstíl sem
getur orðið förunautur þinn alla ævi.
Vertu með
– og njóttu þess vel og lengi!
Ásamt FIT-Pilates fjölbreytni.
Námskeiðið hefst 5. janúar.
Skráning er hafin á
e.berglind@simnet.is
eða í 891 6901.
… OG NJÓTTU ÞESS VEL OG LENGI!
MECCA-SPAMECCA-SPA HEILSURÆKT | NÝBÝLAVEGI 24 | KÓPAVOGI | SÍMI 511 2111 | www.meccaspa.is
Einnig Rólegtjóga, upplýsingar á
www.maggy.is
eða í 821 7482
Námskeiðið hefst 11. janúar.
Skráning er hafin á
www.dansogjoga.is
eða í 898 4942.
Námskeiðin hefjast 11. janúar
Skráning er hafin á
lovisa@heima.is
eða 892 1598.
Kennsla hefst 10. janúar
Skráning er hafin á
www.studiosoleyjar.is
eða 822 7772.
JÓGA MEÐ THEU
MEÐGÖNGUJÓGA OG
MÖMMUJÓGA MEÐ MAGGÝ
BREYTT OG BÆTT LÍÐAN
MEÐ BERGLINDI
FIT-PILATES MEÐ LOVÍSU
Í GOTT FORM MEÐ SÓLEYJU