Fréttablaðið - 08.01.2011, Page 46
8. janúar 2011 LAUGARDAGUR2
síður að horfa á sjónvarpið. Ég er
einfaldlega alltaf með einhverjar
hugmyndir á bak við eyrað, sem
heimta að fá að fæðast.“ Um þess-
ar mundir er einmitt ein að taka
á sig endanlega mynd. „Já, ég er
að klára sögu, nóvellu. Hún er um
mann sem fær símtal frá konu,
sem reynist hafa valið skakkt
númer, og upp frá því spinnst heil-
mikil flækja. Þannig kemur ýmis-
legt óvænt í ljós, eins og að maður-
inn skrifar sér til ánægju en lætur
engan vita, þar á meðal eiginkon-
una, og leggur þar með eigið hjóna-
band í hættu.“
Ágúst hefur haldið námskeið
í smásagnagerð og segir söguna
endurspegla á vissan hátt reynslu
sína af kennslunni. „Þar hef ég
orðið var við að marga dreymir
um að verða rithöfundar en þora
ekki, skrifa ofan í skúffuna. Sem
er ákveðin synd þar sem ég hef
komist að því að flestir búa yfir
einhverjum hæfileikum á sviði
skáldskapar og með æfingu, elju og
smá leiðsögn má hæglega þróa þá
áfram í rétta átt, þótt vissulega sé
ekki öllum gefið að verða snillingar
eins og Laxness eða Shakespeare.
Síðast þegar ég kenndi smásagna-
gerð tóku nemendur mínir mikl-
um framförum og sumum tókst að
selja sögur eftir sig til birtingar,
til dæmis einn í Tímarit Máls og
menningar.“
Hann segir þessa skemmtilegu
uppgötvun hafa orðið sér hvatn-
ingu til áframhaldandi starfa í
kennslunni. „Mér þykir gaman að
sjá hvað nemendum mínum hefur
gengið vel og veit til þess að ein-
hverjir eru komnir langt með
bækur en ekki búnir og af þeim
sökum ákvað ég að halda annað
smásagnanámskeið eftir nokkrar
vikur hjá Mími. Hluta helgarinn-
ar ætla ég að verja í undirbúning
þess.“
Fyrst er það þó afmælisveislan
fyrrnefnda að sögn Ágústs. Er búið
að ákveða hvað á að gefa afmælis-
barninu? „Nei, en hún systir mín
óskaði reyndar eftir fegrunar-
aðgerð. Persónulega finnst mér
hún ekki hafa þörf á slíku og ætla
því bara að finna eitthvað annað
betra og þarfara,“ segir hann og
brosir.
roald@frettabladid.is
Ágúst Borgþór ver drjúgum tíma í ritstörf um helgar og skellir sér kannski á leik eða
út að skokka ef færi gefst. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„… flestir búa yfir
einhverjum hæfileikum
á sviði skáldskapar og
með æfingu, elju og smá
leiðsögn má hæglega þróa
þá áfram í rétta átt.“
Ármúla 18, Reykjavík
sími 511 3388
Útsala
FJALLAHLAUP OG FJÖRUPÚL
FJALLAHLAUP FM957
Vertu með í skemmtilegri líkamsrækt í náttúrulegu
um hverfi. Fjallahlaup og fjörupúl þrisvar í viku í þrjá
mánuði, 13. janúar – 11. apríl.
Fjörupúl á mánudögum og fimmtudögum kl. 18.
Hlaupa æfingar, hlaupaleikir, sprettir og stöðuæfingar.
Mæting ávallt á bílastæðinu við Nauthól kl 17.50, en
allar hlaupaæfingar verða í fjörunni við Nauthólsvík.
Fjallahlaup á laugardögum kl. 10.30. Hlaupið á létt
fjöll í nágrenni Reykjavíkur, Úlfarsfell, Helgafell,
Mosfell, Grímars fell og Keili.
Umsjónarmenn eru margreynt fjallafólk og íþrótta-
kennarar. Hver æfing tekur 60 – 75 mín.
Verkefnið hefst fimmtudaginn 13. janúar með
fjöruhlaupi við Nauthól. Mæting í hlaupagalla við
bíla stæðið í Naut hólsvík kl. 17.50. Fyrsta fjalla-
hlaupið er laugardaginn 15. janúar þegar hlaupið er
á Úlfars fell. Mæting í hlaupa gallanum við bílastæði
ofan við byggðina í Úlfarsárdal.
Þátttakendur í verkefninu fá fjölda góðra tilboða frá
ýmsum aðilum tengdum útivist og heilsu meðan á
verk efninu stendur.
Verð kr. 30.000.
Skráning á fjallahlaup@fjallakofinn.is
Sö
gu
m
ið
lu
n
eh
f
Nýársball Félags harmóníkuunnenda í Reykjavík verð-
ur haldið í Breiðfirðingabúð í kvöld klukkan 21.30. Hljóm-
sveitir Gunnars Kvaran, Ingvars Hólmgeirssonar og Þor-
steins R. Þorsteinssonar leika fyrir dansi. Allir eru velkomnir.
Framhald af forsíðu