Fréttablaðið - 08.01.2011, Síða 92
48 8. janúar 2011 LAUGARDAGUR
Á Vísi er hægt að horfa
á myndskreyttan upp-
lestur úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið
1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið
endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl-
enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum
börnum í tugi ára.
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
krakkar@frettabladid.is
Hvað fékkstu í jólagjöf?
Brynhildur: Dúskatrefil og
naglalakk og bækur og nátt-
föt og saumavél sem ég hlakka
svakalega til að læra á.
Kristín Eva: Hamsturinn minn
gaf mér ullarsokka og baunir.
Svo fékk ég líka bækur, varalit,
jólaskraut og súkkulaði.
Hver er uppáhaldsbókin þín?
Brynhildur: Margar … samt
sennilega mest Bróðir minn
Ljónshjarta eftir Astrid Lind-
gren og Land hinna týndu
sokka eftir Gerði Kristnýju
leynifélaga.
Kristín Eva: Ronja Ræningja-
dóttir eftir Astrid Lindgren
er í sérstöku uppáhaldi og svo
finnst mér Dagbækur Kidda
klaufa mjög skemmtilegar.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Brynhildur: Ljóð um ljóð eftir
Heiðu af plötunni Uppáhalds
ljóðin okkar og öll lögin á
Hrekkjusvínaplötunni. Í síð-
ustu viku hlustaði ég mest á
lagið Prófessorinn klæðir sig
af Diskóeyjunni.
Kristín Eva: Það fyrsta sem
mér dettur í hug er Kall-
inn sem keyrir mig í skólann
af Gilligill og Ef þú ert súr
vertu þá sætur af Eniga
Meniga. Svo eru lögin af
Diskóeyjunni öll rosalega
skemmtileg og 113
Vælubílinn.
Hvað er það
skemmti legasta sem
þú gerir?
Brynhildur: Mér finnst
skemmtilegast að halda
Leynifélagsfundi og að
taka til í Geymslunni …
kannski ekki beint að
taka til, frekar að vera
þar með Kristínu Evu
vinkonu minni. Svo
finnst mér afskap-
lega gaman að búa
til útvarps- og sjón-
varpsefni fyrir krakka.
Kristín Eva: Að fá hlát-
urs kast, sérstaklega með
Nafn og aldur: Kamilla
Tryggvadóttir, 11 ára.
Í hvaða skóla ertu: Laugar-
nesskóla.
Í hvaða stjörnumerki ertu:
Tvíburunum.
Áttu happatölu? Já, 14.
Helstu áhugamál/hvað ger-
irðu í frístundum þínum? Æfi
hip hop og er með fjölskyldu
og vinkonum.
Eftirlætissjónvarpsþáttur:
Desperate Housewives.
Besti matur? Pítsa.
Áttu gæludýr – ef svo er,
hvernig dýr og hvað heitir
það? Ég átti hamstur sem
heitir Rómeó en mamma fékk
ofnæmi svo ég gaf hann en fer
oft að heilsa upp á hann.
Hvaða námsgrein er í uppá-
haldi? Listaverkagreinar og
íþróttir.
Skemmtilegasti dagurinn og
af hverju? Aðfangadagur. Þá
eru allir í hátíðaskapi.
Eftirlætistónlistarmaður/
hljómsveit? Rihanna og
Beyoncé.
Uppáhaldslitur? Sæblár,
svartur og fjólublár.
Hvað gerðirðu í sumar? Fór
til Spánar.
Skemmtilegasta bók sem þú
hefur lesið? Aþena, hvað er
málið með Haítí?
Hvað ætlarðu að verða
þegar þú ert orðin/n stór?
Förðunarfræðingur.
Fer oft að heilsa upp á hamsturinn Rómeó
ALDREI LENGI SÚRAR
Brynhildur Björnsdóttir og Kristín Eva Þórhallsdóttir garfa í Geymslunni í morgun-
sjónvarpinu á RÚV. Hér ræða þær um jólagjafir og það að vera vinkonur.
Af hverju setjast Hafnfirðingar alltaf á fremsta bekk í bíó?
Því þeir vilja vera fyrstir til að sjá myndina.
Hvers vegna geyma Hafnfirðingar tómar flöskur inn í ísskáp?
Til þess að hafa eitthvað að bjóða þeim gestum sem eru ekki
þyrstir.
Hvers vegna setja Hafnfirðingar alltaf stól út á svalir þegar
þeir fara að sofa?
Til þess að sólin geti sest.
Tvær pylsur eru saman í potti. Önnur hefur verið ofsoðin og
segir þá við hina: úff ég er alveg að springa.
MENNTA.HI.IS/VEFIR/BARNUNG er vefur um barna- og unglingabókmennt-
ir. Þar er hægt að finna góðar uppskriftir, föndur, leiki og þjóðsögur.
Brynhildi og Gilbert dreka. Svo
er rosalega gaman að gramsa
og finna hluti og hljóð í hljóð-
skjóðunni í Leynilundi eða í
Geymslunni.
Hvað er það skrítnasta sem þú
hefur fundið í Geymslunni?
Brynhildur: Fjólublái hausinn.
Hann er samt orðinn ágætis
vinur okkar.
Kristín Eva: Bók á hvolfi. Það
var mjög erfitt að lesa hana.
Brynhildur, hvað er það besta
við Kristínu Evu? Hvað hún er
hugmyndarík og skemmtileg.
En hefur hún einhvern galla?
Hún vill ekki alltaf gera það
sama og ég og stundum reynir
hún að fá mig til að gera eitt-
hvað sem ég vil ekki, eins og til
dæmis að klappa köngulóm.
Kristín Eva, hvað er það
besta við Brynhildi? Hún er
mjög fyndin og skemmtileg
og hún fær mig alltaf til að
hlæja. Svo kann hún öll lög í
heimi.
Eruð þið alltaf bestu vinkon-
ur eða hafið þið orðið súrar
hvor við aðra? Ég varð soldið
súr einu sinni þegar Brynhild-
ur lét mig fara eina að leita að
hafmeyju á meðan hún sat og
las Andrésblað og gerði ekki
neitt. Og hún varð súr þegar
við Gilbert dreki fórum bara
tvö til Brasilíu og tókum hana
ekki með. En við erum
aldrei lengi súrar og
fyrr en varir erum
við aftur
orðnar
bestu vin-
konur.