Fréttablaðið - 28.01.2011, Síða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Föstudagur
skoðun 16
28. janúar 2011 FÖSTUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Fyrsta umferð Íslandsmótsins í Ís-krossi fer fram á
Mývatni á morgun. Keppt verður í opnum flokki, vetrar-
dekkjaflokki, kvennaflokki, unglingaflokki og 85cc-flokki.
Nánari upplýsingar um mótið má finna á vefsíðu Vélhjóla-
íþróttaklúbbsins, www.motocross.is.
Þ ráinn Freyr Vigfússon matreiðslumeistari land-aði sjöunda sæti í Bocuse d´Or í Lyon í Frakklandi, eins og greint er frá á vefmiðl-inum Freisting.is. Bocuse d’Or hefur oft verið kölluð hin eina sanna heimsmeistara-keppni í matreiðslu og var Þrá-inn að vonum ánægður með góðan árangur, og örlítið eftir sig, þegar Fréttablaðið náði tali af honum ígær. s æ t i
MYND/GUÐJÓN ÞÓR STEINSSON
Þráinn Freyr Vigfússon matreiðslumeistari gerir það gott í virtri matreiðslukeppni í FrakklandiJafnast á við maraþon að taka þátt í Bocuse d´Or
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
28. janúar 2011
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS • JANÚAR 2011
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
Popp
veðrið í dag
28. janúar 2011
23. tölublað 11. árgangur
Lagasmíð og ljóðagerð
Kári Friðriksson tenór er
fimmtugur í dag og gefur
út disk.
tímamót 20
Nýstárlegar göngur
HÍ og FÍ bjóða upp á
gönguferðir með fróðleik.
allt 2
létt&laggott
Hringdu núna í síma
907 1020 og þú styrkir
HM liðið okkar
um 2.000 kr.
TÖKUM HÖNDUM
SAMAN OG STYÐJUM
TIL SIGURS!
STRÁKANA OKKAR
Goðsögn í Garðabæ
Frosti Gringó frumsýnir
mynd um Jón Sveinsson
bæjarstarfsmann.
fólk 34
SAMFÉLAGSMÁL Barnaverndarstofu
berast um tíu tilkynningar á viku
frá heilbrigðisstofnunum landsins
þar sem grunur leikur á að börn
hafi verið beitt ofbeldi. Heilbrigðis-
stofnanir tilkynntu um 634 tilvik
árið 2009, en það er 30 prósentum
meira en árið áður, þegar fjöldinn
var 450.
Steinunn Bergmann, félagsráð-
gjafi hjá Barnaverndarstofu, segir
tilkynningum almennt hafa fjölg-
að umtalsvert milli áranna 2008
og 2009.
„Ég tel þetta stafa af því að heil-
brigðisstarfsmenn séu meðvitaðri
um tilkynningaskylduna,“ segir
Steinunn.
Um helmingur allra tilkynn-
inga sem berast til stofnunarinn-
ar er skoðaður nánar, en nær allar
tilkynningar sem berast frá heil-
brigðisstofnunum. „Það er langoft-
ast ástæða til þess að skoða þær
frekar,“ segir Steinunn.
Um 90 prósent þeirra tilvika
sem Barnaverndarstofa telur ekki
ástæðu til að kanna frekar eru til-
kynningar frá lögreglu.
Jón M. Kristjánsson, formaður
Félags slysa- og bráðalækna,
segir mikinn áhuga vera fyrir því
að efla samstarf heilbrigðisstofn-
ana og Barnaverndarstofu enn
frekar. Nauðsynlegt sé að koma á
skýrari vinnureglum um í hvaða
tilvikum tilkynning sé send til
barnaverndaryfirvalda.
„Oft kemur upp vafi varðandi
hvað beri að tilkynna og hvað
ekki,“ segir Jón. „Erfiðasti hlut-
inn af greiningunni er þegar um
minni sjáanlega áverka á börn-
unum er að ræða, sem við sjáum
tiltölulega oft.“ Jón minnist þar á
brot á útlimum ungbarna og þegar
börn hafa verið hrist. Það fari þó
mikið eftir eðli og tegund brota og
áverka á börnunum, aldri þeirra og
ástæðum áverkanna.
Jón var fundarstjóri á fyrir-
lestri um málið á Læknadögum í
gærdag, þar sem einnig kom fram
að mikilvægt væri fyrir starfsfólk
heilbrigðisstofnana að fá einhvers
konar endurgjöf um stöðu þeirra
barna sem hafi orðið fyrir ofbeldi.
Mikilvægt sé að starfsfólk fái að
vita hvernig börnunum reiði af. Á
grundvelli þess geti barnaverndar-
yfirvöld þá skilað skýrslu til heil-
brigðisstofnana á ársfjórðungs
fresti. - sv
Tvær tilkynningar á dag
um ofbeldi gegn börnum
Barnaverndarnefndir fá um tíu tilkynningar á viku frá heilbrigðisstofnunum um hugsanlegt ofbeldi gegn
börnum. 634 tilkynningar bárust Barnaverndarstofu frá heilbrigðisstofnunum árið 2009 en 450 árið áður.
Tilkynningum
heilbrigðis-
stofnana um
ofbeldi gegn
börnum hefur fjölgað um 30
prósent.
30%
ÉLJAGANGUR sunnan- og vestan-
lands og strekkingsvindur en hæg-
ari vindur og nokkuð bjart austan
til. Vægt frost inn til landsins en
frostlaust með ströndum.
VEÐUR 4
3
0
1
1
1
Fimmta sætið í húfi
Guðjón Valur Sigurðsson
býst við beittu og grimmu
liði Króata í lokaleiknum á
HM í Svíþjóð.
sport 30
FÓLK „Ég hef haft úr litlu að moða
og þurft að lifa á framlögum og
ölmusu frá fólki. Það er niðurdrep-
andi andlega,“ segir hin brasilíska
Jussanam da Silva sem reynir að
fá atvinnu- og dvalarleyfi hér á
landi.
Vinnumálastofnun hafnaði
umsókn Jussanam um atvinnu-
leyfi sem hún sendi inn eftir að
hafa skilið við íslenskan eigin-
mann sinn.
„Ég hef alltaf verið mjög sjálf-
stæð, unnið fyrir mér síðan ég var
átján ára en ég hef ekki mátt vinna
síðan í haust,” segir Jussanam.
Útlendingastofnun synjaði
sömuleiðis umsókn Jussanam
um dvalarleyfi. Hún kærði þessa
úrskurði og dómsmálaráðuneytið
féllst á að hún fengi að vera hér á
meðan umsóknirnar væru metnar
í ráðuneytinu. Frestur þess til að
svara rennur út í dag.
„Ég er vongóð,“ segir Jussan-
am sem viðurkennir að biðin hafi
tekið á taugarnar. „Í desember
var ég orðin mjög svartsýn á að
ég fengi jákvætt svar en auðvitað
vona ég það besta.”
Jussanam segir enn fremur
að hún sé að undirbúa umsókn
um ríkisborgararétt fyrir sig og
dóttur sína sem einnig býr hér á
landi.
Tónlistaráhugamenn hér á
landi hafa fengið að kynnast söng
Jussanam en hún hefur komið
fram með mörgum íslenskum
djasstónlistarmönnum.
„Ég er mjög hrifin af íslensku
tónlistarlífi og finnst það ótrúlega
öflugt miðað við hve fáir búa hér.“
- sbt / sjá síðu 12
Hin brasilíska Jussanam da Silva hefur þurft að þiggja ölmusu síðustu mánuði:
Vonast til að fá dvalarleyfi
MANNLÍF Í MIÐBORG Umhverfis- og samgönguráð borgarinnar hefur ákveðið að Austurstræti, frá Lækjartorgi að Pósthússtræti,
verði göngugata til frambúðar. Þá verður gangandi gert hærra undir höfði annars staðar í miðborginni. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SKIPULAGSMÁL Austurstræti, frá
Lækjargötu að Pósthússtræti,
verður gert að göngugötu til
frambúðar samkvæmt ákvörð-
un umhverfis- og samgöngu-
ráðs borgarinnar.
Þá verður Austurstræti að
Ingólfstorgi gert að göngu-
götu um sumur sem og Pósthús-
stræti. Lækjargata verður
að hluta til sameiginleg fyrir
gangandi, hjólandi og akandi
og Pósthússtræti skilgreint
sem gönguleið að Hörpunni.
Ráðið lagði einnig til að
gangandi yrði gert hærra
undir höfði á Laugavegi, Skóla-
vörðustíg og í Bankastræti
í samráði við verslunar- og
þjónustuaðila og íbúa
í nánasta nágrenni. - sh
Fleiri göngugötur á sumrin:
Austurstræti
að göngugötu
árið um kring
JUSSANAM DA SILVA Síðustu mánuðir
hafa verið erfiðir en hún vonast eftir
lausn sinna mála í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR