Fréttablaðið - 28.01.2011, Síða 6
6 28. janúar 2011 FÖSTUDAGUR
ATVINNULÍF Mikið var um dýrðir í
Ráðhúsi Reykjavíkur í gær þegar
Félag kvenna í atvinnurekstri,
FKA, afhenti sínar árlegu viður-
kenningar.
Aðalheiður Birgisdóttir, betur
þekkt sem Heiða í Nikita, hlaut
FKA-viðurkenninguna 2011.
Undir stjórn Heiðu og félaga hefur
fatahönnun Nikita náð fótfestu á
erlendum markaði og þykir bera
af á sínu sviði hvað snertir list-
ræna útfærslu og vönduð vinnu-
brögð.
Margrét Pála Ólafsdóttir, leik-
skólastjóri og stofnandi Hjalla-
stefnunnar, hlaut hvatningarvið-
urkenningu FKA. Hún er löngu
landsþekkt fyrir baráttu sína
fyrir mannréttindum kvenna, geð-
sjúkra, samkynhneigðra og ekki
síst barna.
Dóra Guðbjört Jónsdóttir, gull-
smiður í Gullkistunni við Frakka-
stíg, fékk þakkarviðurkenningu
FKA. Dóra fagnaði áttatíu ára
afmæli sínu í haust en rekur enn
bæði verkstæði og verslun í mið-
borg Reykjavíkur.
Loks kom Gæfusporið 2011 í
hlut Íslandsbanka, en Gæfusporið
er ár hvert veitt íslensku fyrirtæki
sem þykir hafa skarað fram úr
við að virkja kraft kvenna innan
sinna raða. Hlutfall kynjanna í
framkvæmdastjórn bankans er
nú hnífjafnt.
Það var Árni Páll Árnason, efna-
hags- og viðskiptaráðherra, sem
afhenti viðurkenningarnar fyrir
hönd FKA að viðstöddum fjölda
þeirra karla og kvenna sem standa
í framlínu íslensks viðskipta- og
atvinnulífs. - gb
STJÓRNMÁL Líklegast er að einhver
núverandi ráðherra VG gegni
embætti mennta- og menningar-
málaráðherra
í fæðingaror-
lofi Katrínar
Jakobsdóttur.
Katrín á von
á sér í maí.
Samkvæmt
heimildum
Fréttablaðs-
ins hefur málið
verið rætt og
skoðað á vett-
vangi VG og
stjórnsýslunnar. Eins og nú horfi
sé ólíklegt að nýr maður taki sæti
í ríkisstjórninni.
Meðal annars hefur verið horft
til fordæma. Eitt íslenskt er til en
Árni M. Mathiesen var í fjórð-
ungs starfi sem sjávarútvegsráð-
herra í fæðingarorlofi sumarið
2001. Í Svíþjóð hefur verið venja
að aðrir ráðherrar bæti á sig
verkefnum ráðherra í fæðingar-
orlofi.
Á hinn bóginn er reiknað með
að varamaður taki sæti Katrínar
á Alþingi. Auður Lilja Erlings-
dóttir, framkvæmdastjóri VG, er
fyrsti varamaður flokksins í kjör-
dæmi Katrínar. - bþs
KATRÍN
JAKOBSDÓTTIR
Fæðingarorlof ráðherra:
Ólíklegt að nýr
ráðherra komi í
stað Katrínar
✃ ✃
✁ ✁
Bruggari var tekinn
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
stöðvaði landaframleiðslu í mið-
borginni í fyrrinótt. Lagt var hald á
tæplega 150 lítra af gambra sem og
ýmsan búnað tengdan starfseminni.
Húsráðandi, karlmaður um sextugt,
játaði sök.
LÖGREGLUFRÉTT
EGYPTALAND, AP „Þetta er úrslita-
stund í sögu Egyptalands og ég
verð að taka þátt með egypsku þjóð-
inni,“ sagði Mohammed ElBaradei,
fyrrverandi yfirmaður kjarnorku-
eftirlits Samein-
uðu þjóðanna,
þegar hann kom
til Egyptalands
í gær.
Fjölmenn mót-
mæli hafa stað-
ið yfir frá því á
þriðjudag gegn
Hosni Mubar-
a k fo r s e t a ,
sem krafinn er
afsagnar eftir þrjátíu ára valdatíð.
Á annað þúsund manna hafa verið
handteknir, hundruð særst í átök-
um við lögregluna og að minnsta
kosti fimm manns látið lífið.
Mótmælin hófust í kjölfar sams
konar mótmæla í Túnis undan-
farnar vikur, sem urðu til þess að
forseti landsins hrökklaðist frá
völdum og flúði til Sádi-Arabíu.
Stjórnarflokkurinn í Egypta-
landi sagðist reiðubúinn til við-
ræðna við mótmælendur en bauð
þó enga eftirgjöf: „Lýðræðið hefur
sínar reglur og ferli. Minnihlutinn
þröngvar ekki vilja sínum upp á
meirihlutann,“ sagði Safwat El-
Sherif, framkvæmdastjóri Þjóðar-
lýðræðisflokksins og náinn sam-
starfsmaður Mubaraks.
Mubarak sjálfur, sem orðinn er
82 ára, hefur hins vegar ekki látið
sjá sig frá því mótmælin hófust.
Talið er að hann vilji láta son sinn,
Gamal, taka við af sér í næstu for-
setakosningum, sem líklega verða
haldnar í haust.
ElBaradei sagðist ekki slá hend-
inni á móti því að verða leiðtogi
uppreisnar gegn Mubarak, ef hann
yrði beðinn um það. ElBaradei er
einn öflugasti talsmaður lýðræð-
isumbóta í Egyptalandi og hlaut
friðarverðlaun Nóbels árið 2005
fyrir framlag sitt til baráttunn-
ar gegn notkun kjarnorka í hern-
aðartilgangi. Hann er einkum tal-
inn njóta stuðnings millistéttanna
í Egyptalandi, sem ekki er víst að
dugi honum til forystu lýðræðis-
byltingar.
Það sem skipt getur sköpum um
möguleika mótmælendanna til að
hafa áhrif er að Bræðralag mús-
lima, stærsti stjórnarandstöðuhóp-
ur landsins, lýsti í gær yfir stuðn-
ingi við mótmælin. Búist er við
fjölmennum mótmælum að loknum
föstudagsbænastundum í moskum
landsins í dag.
Órói er víða í löndum araba-
heimsins í kjölfar mótmælanna
í Túnis. Fjölmenn mótmæli hafa
verið í Jemen og víðar óttast leið-
togar um framtíð sína.
gudsteinn@frettabladid.is
Stjórnin lofar viðræðum
en alls engum breytingum
Mohammed ElBaradei tekur þátt í mótmælunum í Egyptalandi gegn Hosni Mubarak forseta. Bræðralag
múslima hefur lýst yfir stuðningi við mótmælendur. Mubarak hefur ekki látið sjá sig og svarar engu.
MYND MUBARAKS RIFIN Mótmælendur eyðilögðu stóra mynd af Hosni Mubarak
forseta í Alexandríu. NORDICPHOTOS/AFP
MOHAMMED
ELBARADEI
hefur Hosni
Mubarak hald-
ið fast um
valdataumana í Egyptalandi.
30ár
AÐ LOKINNI AFHENDINGU Árni Páll Árnason og Hafdís Jónsdóttir lengst til hægri
ásamt verðlaunahöfunum Birnu Einarsdóttur, Margréti Pálu Ólafsdóttur, Dóru Guð-
björtu Jónsdóttur og Aðalheiði Birgisdóttur. Lengst til vinstri er svo Linda Svanbergs-
dóttir frá Secret North, sem hlaut styrk til náms. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þrjár konur og einn banki fengu viðurkenningu frá Félagi kvenna í atvinnurekstri:
Fatahönnun Nikita þykir bera af
SAMFÉLAGSMÁL Öryggismál á vist-
heimilum og sambýlum í borginni
hafa verið tekin til endurskoðun-
ar samhliða flutningi á málefnum
fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.
Meðal þess sem er til athugunar er
hvort rétt sé að hafa neyðarhnappa
á slíkum heimilum.
Fréttablaðið sagði frá því í vik-
unni að barnshafandi starfskona
á skammtímavistun fyrir fatlaða
hefði orðið fyrir alvarlegri árás
vistmanns um síðustu helgi. Hún
var ein á næturvakt á heimilinu
þar sem sjö manns gistu. Henni
tókst að forða sér undan árásar-
manninum við illan leik og loka
sig af í öðru herbergi í þann mund
sem hann réðst á hana með stól.
Elfa Björk Ellertsdóttir, upp-
lýsingafulltrúi velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar, segir að 40
nýir starfsstaðir bætist við verk-
svið borgarinnar með tilfærslunni.
Nú sé verið að samþætta alla verk-
ferla sem til staðar voru hjá ríki og
borg og við þá vinnu sé eðlilegt að
fara í raun yfir þá frá grunni.
„Það er ýmislegt sem kemur
þarna upp, til dæmis notkun örygg-
ishnappa,“ segir Elfa og ítrekar að
mál sem þessi séu tekin mjög alvar-
lega. - sh
Verið er að endurskoða öryggismál á heimilum fyrir fatlaða:
Neyðarhnappar til athugunar
RÁÐHÚSIÐ Í REYKJAVÍK Málefni fatlaðra
fluttust frá ríki til sveitarfélaga um ára-
mót. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Finnst þér rétt að tengja kjara-
viðræður við lagasetningu um
sjávarútvegsmál?
Já 24,1
Nei 75,9
SPURNING DAGSINS Í DAG
Er álitshnekkir að stjórnlaga-
þingsmálinu fyrir þjóðina?
Segðu þína skoðun á visir.is
MENNTUN „Heimili og skóli, lands-
samtök foreldra, krefjast þess
að ríkisstjórn og sveitarfélög
landsins tryggi gæði skólastarfs
á öllum skólastigum á landinu
og gangi ekki á lögbundin rétt-
indi skólabarna nú þegar skera á
niður útgjöld hins opinbera.“
Þetta segir í ályktun sem Heim-
ili og skóli hafa sent frá sér vegna
niðurskurðar í skólum landsins.
Þá er kallað eftir „raunveru-
legu samráði“ við foreldra áður
en teknar eru ákvarðanir um
breytingar á skólastarfi. - óká
Foreldrar vilja samráð:
Tryggja verður
gæði skólastarfs
KJÖRKASSINN