Fréttablaðið - 24.02.2011, Síða 4
24. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR4
EVRÓPUMÁL Viðhorf Íslendinga
gagnvart Evrópusamband-
inu (ESB) og aðild að því varð
jákvæðara á seinni hluta síðasta
árs. Áfram eru þó fleiri sem
efast um ágæti aðildar.
Í viðhorfskönnun Gallup fyrir
Eurobarometer Evrópusam-
bandsins, sem var framkvæmd
í nóvember en birt í gær, kemur
í ljós að 38 prósent landsmanna
telja að ESB-aðild gæti orðið
Íslandi til hagsbóta. Það er aukn-
ing frá því í maí í fyrra þegar 29
prósent voru þeirrar skoðunar.
Tæpur helmingur lands-
manna, 48 prósent, telur hins
vegar að Ísland muni ekki njóta
góðs af aðild, sem er nokkuð
minna en í fyrri könnuninni
þegar 58 prósent voru þeirrar
skoðunar.
Þá telja 28 prósent Íslendinga
ESB-aðild vera almennt góða
fyrir Ísland samanborið við 19
prósent sem voru þeirrar skoð-
unar í maí á síðasta ári.
Þá fækkar í hópi þeirra sem
telja aðild vera slæma fyrir
Ísland, úr 45 prósentum í maí
niður í 34 prósent í nóvember.
- þj
GENGIÐ 23.02.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
216,7003
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,65 117,21
189,12 190,04
159,91 160,81
21,447 21,573
20,657 20,779
18,185 18,291
1,4085 1,4167
182,6 183,68
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
PEKING, AP Óþekkt samtök
mótmæltu ábyrgðarleysi og
ógagnsæi kínverskra stjórnvalda
á sunnudag. Mótmælin fóru fram
í þrettán borgum víðs vegar í
Kína en lögregluyfirvöld komu
í veg fyrir fjöldamótmæli með
ritskoðun vefsíðna og handtök-
um. Mannréttindasamtök telja
að um 100 þekktir andófsmenn
hafi verið handteknir og enn séu
margir í haldi.
Handtökurnar hafa valdið mik-
illi reiði meðal mótmælenda og
hafa þeir hvatt fólk til mótmæla
næsta sunnudag þegar krafist
verður lausnar fanganna. - jtó
Mótmæli brjótast út í Kína:
Andófsmenn
fangelsaðir
Yrði Evrópusambandsaðild
Íslandi til hagsbóta?
maí 2010 nóv. 2010
Til hagsbóta
Ekki til hagsbóta
Veit ekki13% 14 %
58% 48%
29% 39%
Heimild: Eurobarometer
OPINN FUNDUR UM
BSRB stendur fyrir opnum fundi um neysluviðmið ríkisstjórnarinnar,
fimmtudaginn 24. febrúar kl. 16:30 í BSRB-húsinu Grettisgötu 89.
Gestur fundarins er Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra
Fundarstjóri: Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB
NEYSLU
VIÐMIÐ
www.bsrb.is
Skoðanakönnun sýnir sveiflur í viðhorfi Íslendinga til Evrópusambandsins:
Fjölgar í hópi jákvæðra í garð ESB
FISKUR Í KARI Margir vilja að þeir sem
fái kvóta úthlutað greiði ríkinu leigugjald
fyrir hann. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SJÁVARÚTVEGUR Tæp sjötíu prósent
þátttakenda í könnun markaðs-
fyrirtækisins MMR styðja þær
hugmyndir að þeir sem fái fisk-
veiðikvóta úthlutað greiði leigu
til ríkisins sem endurspeglar
markaðsverðmæti kvótans.
Í könnun MMR var spurt um
afstöðu almennings til ráðstöfun-
ar fiskveiðiheimilda. Í könnun-
inni voru 66,6 prósent þátttak-
enda hlynnt því að kvótinn ætti
að vera í eigu ríkisins og 64,9
prósent sögðu stjórnvöld eiga
að afturkalla gildandi kvóta og
úthluta að nýju með breyttum
reglum. - jab
Vilja að ríkið eigi fiskikvótann:
Stuðningur við
leigugjald kvóta
FRÁ FYRRI ÞEKKINGARDEGI Forseti
Íslands afhendir þekkingarverðlaun við
hátíðlega athöfn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Leitað verður svara um
áhrif mögulegrar aðildar Evr-
ópusambandsins á vinnumarkað-
inn og atvinnulíf á Íslenska þekk-
ingardeginum á Hilton Reykjavik
Nordica í dag. Fjölmargir fyrir-
lesarar munu þar fjalla um líkleg
áhrif á kaupmátt, launaþróun og
gerð kjarasamninga.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, afhendir þekkingar-
verðlaun Félags viðskipta- og
hagfræðinga og eru þrjú fyrir-
tæki tilnefnd: Icelandair, Rio
Tinto Alcan á Íslandi og Sam-
herji. Viðskipta- eða hagfræð-
ingur ársins verður jafnframt
verðlaunaður. - jab
Íslenski þekkingardagurinn:
Fjallað um áhrif
aðildar að ESB
LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Vest-
mannaeyjum þurfti að hafa
afskipti af stúlku á átjánda ári
sem olli skemmdum á einum af
veitingastöðum bæjarins um
helgina.
Stúlkan hafði látið reiði sína
bitna á veggjum inni á salerni
staðarins. Hún var í hælaháum
skóm og voru göt á veggjunum
eftir hælana.
Þá bárust tvær tilkynningar
um rúðubrot til lögreglu. . - jss
Reið stúlka í Eyjum:
Gataði veggi
með hælaskóm
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
9°
-1°
0°
2°
3°
-1°
-1°
20°
14°
17°
8°
26°
-1°
12°
11°
-4°Á MORGUN
Strekkingur S- og V-
lands, annars hægari.
LAUGARDAGUR
Strekkingur víða með
ströndum en hægari
inn til landsins.
-1
0
13
-12
5
3
3 3
6
6
6
6
6
3
3
1
2
1
-2
6
8
5
11
6
15
9
15
7 4
11
4
SKÚRIR EÐA ÉL
er ágætis lýsing
á veðrinu næstu
daga með þeirri
undantekningu
þó að á Norð-
austurlandi verður
nokkuð bjart. Það
bætir í úrkomuna
sunnan- og vestan-
lands síðdegis í
dag en síðan taka
við skúrir eða él.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
MENNTUN Nemendur Menntaskól-
ans Hraðbrautar fá tækifæri til
að ljúka námi á vorönn 2012 þrátt
fyrir að mennta- og menningar-
málaráðuneytið hafi ákveðið að
endurnýja ekki þjónustusamning
við skólann þegar hann rennur út
í sumar. Tímabundinn þjónustu-
samningur fyrir næsta skólaár er
háður ströngum skilyrðum.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
segir að ákvörðunin um að fram-
lengja ekki samninginn sé einkum
byggð á skýrslu Ríkisendurskoð-
unar um framkvæmd þjónustu-
samnings við Hraðbraut, áliti
menntamálanefndar Alþingis og
viðræðum sem ráðuneytið hafi átt
í við forsvarsmenn skólans.
Í skýrslu sinni gagnrýndi Ríkis-
endurskoðun eigendur og stjórn-
endur Hraðbrautar, sem fékk nær
200 milljónir ofgreiddar úr rík-
issjóði á árunum 2003 til 2009.
Á þeim árum voru greiddar 82
milljónir króna í arð til eigenda.
Árlegt framlag ríkisins sam-
kvæmt þjónustusamningi nam um
936 milljónum króna, eða rúmum
130 milljónum á ári að meðal-
tali, en Ríkisendurskoðun átaldi
einnig eftirlit ráðuneytisins með
starfsemi skólans.
„Þetta er galin ákvörðun,“ segir
Ólafur Johnsen, framkvæmda-
stjóri og eigandi Hraðbrautar, í
samtali við Fréttablaðið.
„Þetta er pólitísk aðför vinstri
manna sem ekki mega sjá einka-
framtak. [...] Þó ég hafi fengið 40
milljónir í arð út úr skólanum er
ekkert að því. Ég var búinn að
leggja átta ára vinnu í skólastarf-
ið áður en það fór af stað og þar af
tvö ár án launa, þannig að það var
fullkomlega eðlilegt að ég fengi
greiddan arð út úr skólanum.“
Spurður um framtíð Hraðbraut-
ar segir Ólafur að hann muni ekki
gefast upp þrátt fyrir að hann geti
ekki gefið upp hvernig því verði
háttað.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, neitar
því aðspurð að um pólitískt mál
sé að ræða. Einungis sé verið að
vinna eftir tilmælum Ríkisendur-
skoðunar og menntamálanefndar
Alþingis.
Katrín segir að þessi málalok
milli ráðuneytis og Hraðbrautar sé
ekki dómur yfir rekstrarforminu
sem slíku.
„Við erum með marga samninga
við einkarekna framhaldsskóla og
háskóla og í margs konar formi
sem hafa gengið mjög vel. Þetta
er einstakt dæmi.“
Katrín bætir því við að Ríkis-
endurskoðun hafi einnig átalið
ráðuneytið fyrir að hafa ekki sinnt
eftirliti nægilega vel.
„Við munum taka það mjög
alvarlega hvernig við getum sinnt
því sem allra best.“
Uppgjör vegna ofgreiddra fjár-
framlaga mun fara fram í sumar,
eftir að samningurinn rennur út,
en Ólafur og ráðuneytið eru ekki
á einu máli með upphæðirnar sem
um er að ræða.
thorgils@frettabladid.is
Nemendur skólans
fá að ljúka náminu
Ríkið mun ekki endurnýja samning sinn við Menntaskólann Hraðbraut sökum
harðrar gagnrýni Ríkisendurskoðunar. Fékk nær 200 milljónir ofgreiddar.Skóla-
stjóri segir málið pólitískt en ráðherra vísar því á bug. Uppgjör í sumar.
FÁ EKKI NÝJAN SAMNING Menntamálaráðuneytið mun ekki endurnýja samning við
Menntaskólann Hraðbraut. Nemendur fá að ljúka námi en Ólafur Johnson, skóla-
stjóri og eigandi Menntaskólans Hraðbrautar, er ósáttur við málalyktir.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÓMSMÁL Karlmaður á fertugs-
aldri hefur verið dæmdur í Hér-
aðsdómi Austurlands fyrir að ráð-
ast á fjórtán ára pilt.
Árásin átti sér stað á Vilhjálms-
velli á Egilsstöðum á síðasta ári.
Pilturinn hafði tekið fótbolta af
syni mannsins og vini hans.
Maðurinn var dæmdur í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir að sparka í piltinn, hóta
honum lífláti og ógna með hafnar-
boltakylfu. Þá var hann dæmdur
til að greiða piltinum 400 hundruð
þúsund krónur í miskabætur. - jss
Þrír mánuðir á skilorði:
Maður réðst á
unglingspilt