Fréttablaðið - 24.02.2011, Blaðsíða 70
24. febrúar 2011 FIMMTUDAGUR38
folk@frettabladid.is
Tónlist ★★★★
Andefni
Prince Valium
Góð byrjun hjá TomTom
Prince Valium er listamannsnafn Þorsteins
Konráðs Ólafssonar, en hann hefur verið að
búa til raftónlist í a.m.k. áratug. Ég man fyrst
eftir honum á Stefnumótakvöldum tónlistar-
blaðsins Undirtóna, en hann átti einmitt sex
lög á fyrsta Stefnumótadisknum árið 2001.
Andefni er önnur sólóplata Prince Valium
í fullri lengd. Sú fyrri, Andlaus, kom út hjá
breska fyrirtækinu Resonant árið 2006 og
fékk fínar viðtökur. Eins og nafnið gefur til
kynna er tónlist Prince Valium í rólegri kant-
inum, þó að lögin á nýju plötunni séu reyndar misjafnlega
hröð. Maður heyrir að hann er undir áhrifum frá gamalli ambient-tónlist en
hann setur fleiri virk efni í blönduna og hefur þróað sitt eigið afbrigði sem
hann er að vinna með. Andlaus var svolítið síðrokkskotin, en á Andefni er
hljómurinn tærari og tónlistin bjartari og melódískari. Tólf lög eru á Andefni.
Þau eru nokkuð fjölbreytt en það er góður heildarsvipur á plötunni sem
gerir það að verkum að hún virkar vel spiluð í gegn, frá upphafi til enda.
Andefni er fyrsta útgáfa nýrrar íslenskrar plötuútgáfu, TomTom Records,
sem sérhæfir sig í raftónlist. Hún kemur út á stafrænu formi og er fáanleg í
gegnum vefsíðu útgáfunnar www.tomtomrecords.com. Það er gleðiefni að
ný raftónlistarútgáfa taki nú til starfa og óskandi að hún fái hljómgrunn. Hún
byrjar í það minnsta vel, Andefni er flott plata og ágætur vitnisburður um þá
fínu hluti sem fyrirfinnast í íslenskri raftónlist. Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Björt og melódísk raftónlistarplata.
Madonna er farin að færa sig
upp á skaftið í samskiptum við
dóttur sína með því að fá lánuð
föt af henni án þess að biðja um
leyfi. Tónlistarkonan þekkta og
dóttirin Lourdes, sem er fjór-
tán ára, reka saman tískumerki
fyrir táninga og fatastíll þeirra
er svo svipaður að þær fá oft
lánuð föt hvor hjá annarri. En
Lourdes er ekki sátt þegar hún
finnur ekki fötin sín og kemst að
því að mamma gamla hefur látið
greipar sópa í skápnum hennar.
„Hún fær lánað hjá mér og ég
fer í skápinn hjá henni. Ég má
ekki taka föt án leyfis en hún
er alltaf að gera það hjá mér,“
segir Lourdes, sem hyggst
ræða málið af alvöru við móður
sína ef hún lætur ekki af þessu
athæfi sínu.
Stelur fötum
af dótturinni
SAMHENTAR Madonna og dóttirin
Lourdes eru með svipaðan fatasmekk
og skiptast á fötum. NORDICPHOTOS/GETTY
Sjónvarpsmaðurinn Þor-
steinn Joð gerir heimildar-
mynd um fyrsta útrásar-
ævintýri Íslendinga. Hann
leitar að leirtaui sem notað
var á veitingastað í eigu
íslenska ríkisins og Sam-
bandsins.
„Í gögnum sem Sólveig Ólafsdótt-
ir sagnfræðingur hefur skoðað
kemur fram að þegar staðnum
var lokað, átján mánuðum eftir að
hann var opnaður, var borðbún-
aður og leirtau sent til Íslands.
Það hefur sennilega komið til
landsins með Brúarfossi haust-
ið 1968 og ég er mjög spenntur
fyrir þessum sögulegu munum,“
segir sjónvarpsmaðurinn og kvik-
myndagerðarmaðurinn Þorsteinn
J. Vilhjálmsson.
Eins og Fréttablaðið greindi
frá í júlí 2009 er Þorsteinn að
gera heimildarmynd um fyrsta
útrásarævintýri Íslands, veit-
ingastaðinn Iceland Food Center
við Regent Street í London sem
íslenska ríkið stofnaði ásamt
Sambandinu og fleirum árið 1966.
Nú er klipping myndarinnar á
lokastigi og hún verður frumsýnd
um páskana á Stöð 2 en Þorsteinn
hefur mikinn áhuga á áðurnefndu
leirtaui og borðbúnaði og langar
að vita hvar það er niðurkomið.
Þeim sem hafa einhverjar upplýs-
ingar er bent á tölvupóstinn thor-
steinnj@simnet.is og svo er sjón-
varpsmaðurinn í símaskránni.
„Þetta er um margt alveg geggj-
uð saga og ótrúleg útrás þar sem
lagt er upp með að sigra heiminn.
Það var ekkert til sparað, rándýrt
húsnæði, sérsaumaðir búningar
á þjónustustúlkurnar og mat-
seðill þar sem hákarl var í for-
rétt og aðalréttirnir voru meðal
annars kótilettur og Chicken in a
basket, eða körfukjúklingur með
frönskum.“
Myndin byggir á gögnum sem
Sólveig fann á Þjóðskjalasafninu
þegar hún var að flokka skjala-
safn fjármálaráðuneytisins fyrir
margt löngu og hafa tökur staðið
yfir í eitt og hálft ár í Reykjavík
og London. „Sólveig er einn aðal-
sögumaðurinn í myndinni ásamt
starfsfólki veitingastaðarins sem
ég hafði uppi á og fleiri aðilum.“
freyrgigja@frettabladid.is
Þorsteinn Joð leitar að
leirtaui fyrstu útrásarinnar
Á SLÓÐUM ÚTRÁSARINNAR Þorsteinn J. og Sólveig ásamt Hirti Svavarssyni og Bjarna
Felix við tökur á heimildarmyndinni um Iceland Food Center, íslenska veitinga-
staðinn sem átti að sigra heiminn í London. Þótt auðæfi Justins Bieber séu
metin á hundrað milljónir dala
getur hann ekki gengið um þær
feitu hirslur eins og honum sýn-
ist, því fjárhaldsmaður hans
úthlutar honum mánaðarlega
vasapeninga.
Svo skemmtilega vill reyndar
til að fjárhaldsmaður Biebers er
mamma hans. „Peningarnir fara
í fjárfestingar á ýmsum svið-
um. Ég er bara með kreditkort
og þegar heimildin klárast eru
mínir vasapeningar bara búnir.
Mamma stjórnar þessu bara.“
Bieber fær
vasapeninga
Hugh Hefner hefur tilkynnt að
hann hyggist kvænast hinni brjóst-
góðu Crystal Harris hinn 18. júní.
Athöfnin fer að sjálfsögðu fram á
Playboy-setrinu. Þetta kom fram í
spjallþætti Piers Morgan á CNN.
Bróðir Hughs verður svara-
maður hans í brúðkaupinu og
tveir yngstu synir hans, Marston
og Cooper, verða fylgdarsveinar
við athöfnina. Crystal ætlar hins
vegar að hafa bestu vinkonu sína
Önu sem brúðarmey og systur
Crystal verða henni til halds og
trausts.
Hugh hefur tvívegis verið gift-
ur, annars vegar Mildred Williams
og hins vegar Kimberley Conrad.
Aðeins sextíu ára aldursmunur er
á parinu; Hefner er 84 ára en Crys-
tal er 24 ára. Varla þarf að taka
það fram að Crystal hefur prýtt
síður Playboy-tímaritsins og þann-
ig lágu leiðir þeirra saman.
Hefner í það heilaga
GENGUR KIRKJUGÓLF Hugh Hefner
ætlar að ganga í það heilaga hinn 18.
júní. Bróðir hans verður svaramaður.
NORDICPHOTOS/GETTY
EKKERT SPREÐERÍ Justin Bieber fær ekki
að eyða peningunum sínum í rugl.
Sjáðu og heyrðu Verzlinga segja þér
allt sem þú vilt vita um skólann.
Kíktu Sjáðu
Opið hús í dag
Verzlunarskóli Íslands | Ofanleiti 1 | 103 Reykjavík Kynningarmyndbönd á verslo.is
Opið hús 24. febrúar 2011, kl. 17:00-19:00.
Starfsfólk og nemendur sýna þér skólann
og svara spurningum.
80 milljónir dollara eru auðævi grínistans Ricky Gervais metin á. Það er um tíu og hálfur milljarður íslenskra króna. Gervais kveðst þó gefa mikið af peningum sínum til góðgerðamála, til að mynda skattsins.