Fréttablaðið - 24.02.2011, Qupperneq 19
FIMMTUDAGUR 24. febrúar 2011 19
Arabaheimurinn stendur nú á vatnaskilum líkt og veldi
Sovétríkjanna sálugu fyrir tuttugu
árum, þegar 300 milljónir manna
köstuðu af sér hlekkjunum og
hröktu einræðisstjórnir kommún-
ista frá völdum í Mið- og Austur-
Evrópu. Arabar, um 360 milljónir
talsins í 22 löndum frá Atlantshafi
austur að Persaflóa, eygja nú lang-
þráð tækifæri til að reisa mannúð-
legt lýðræðisskipulag á rústum
einræðis og kúgunar.
Umskiptin í Mið- og Austur-Evr-
ópu fóru að mestu leyti friðsam-
lega fram. Þýzka þjóðin hefur nú
búið sameinuð við óskorað lýðræði
frá 1989. Búlgaría, Pólland, Rúm-
enía, Tékkland, Slóvakía og Ung-
verjaland eru nú einnig lýðræðis-
ríki innan vébanda ESB. Búlgaría
og Rúmenía eru að sönnu gerspillt,
en það er Grikkland líka, og Ítalía
er litlu skárri skv. spillingarvísi-
tölu Transparency International,
en hún er að vísu þröngur mæli-
kvarði, einskorðast við fjármála-
spillingu og mútur og nær því ekki
yfir aðrar tegundir spillingar, t.d.
nápot. ESB þyrfti að fá umboð
heimamanna til að hjálpa til við
að rétta kúrsinn í þessum löndum,
úr því að þau hafa ekki reynzt þess
megnug á eigin spýtur. Skýrar fyr-
irmyndir eru til. Þegar spillingin í
lögreglunni í New Orleans keyrði
um þverbak fyrir nokkrum árum,
ákváðu borgaryfirvöld að biðja
alríkislögregluna FBI að hreinsa
til. Það tókst. Nokkur Afríkulönd
hafa beðið Evu Joly um hjálp við
að uppræta spillingu þar suður frá.
Hún yfirgaf Ísland of snemma, en
hún náði miklum árangri. Það var
fyrir hennar orð, að starfsmönnum
sérstaks saksóknara var fjölgað úr
þrem í 90 á hálfu öðru ári.
Júgóslavía var einnig leyst upp
í frumeindir sínar. Þar vék ein-
ræði fyrir svo að segja óskoruðu
lýðræði í Króatíu, Makedóníu,
Serbíu, Slóveníu og Svartfjalla-
landi. Slóvenía gekk í ESB 2004,
og Króatía gengur trúlega þangað
inn eftir eitt eða tvö ár. Önnur lönd
á Balkanskaga eiga í lengra í land,
t.d. Albanía.
Gagnger umskipti
Þessi gagngeru umskipti frá ein-
ræði til lýðræðis í austanverðri
og suðaustanverðri Evrópu beina
athyglinni að stjórnmálaþróun
Sovétríkjanna sálugu á sama tíma.
Þar hefur aðeins Eistlandi, Lett-
landi og Litháen tekizt að komast
í hóp lýðræðisríkja og inn í ESB.
Til þess þurfti eindreginn ásetn-
ing, samheldni og aga. Moldóva
býr einnig að þokkalegu lýðræði
þrátt fyrir sára fátækt, og Úkr-
aína er ekki langt undan, þótt
stjórnmálastéttin þar kalli ekki
allt ömmu sína (forseti landsins
mátti fyrir nokkrum árum þakka
sínum sæla fyrir að lifa af eitur,
sem honum var byrlað fyrir kosn-
ingar). Rússar búa við veikara lýð-
ræði en Úkraínumenn skv. mæli-
kvarða, sem stjórnmálafræðingar
í Háskólanum í Maryland í Banda-
ríkjunum hafa sett saman og er
hér lagður til grundvallar. Kvarð-
inn nær frá -10 í Sádi-Arabíu, harð-
svíraðasta einræðisríki heims, upp
í 10 í óflekkuðum lýðræðisríkjum.
Lýðræðisvísitala Úkraínu 2008
var 7, og vísitala Rússlands var 4.
Nokkur suðurríki Sovétríkjanna
sálugu eru enn einræðislönd undir
stjórn gamalla kommúnista, þar
eð frelsisbylgjan barst ekki þang-
að suður eftir. Verst er ástandið í
Aserbaídsjan, Kasakstan, Tadsjik-
istan, Túrkmenistan og Úsbekistan
auk Hvíta-Rússlands, síðasta vígi
einræðisins í Evrópu.
Lýðræði lyftir kvenfrelsi
Hvað um kommúnistaríkin í Asíu?
Hvernig vegnar lýðræðinu þar
skv. mælingum þeirra í Maryland?
Þessi lönd hafa yfirleitt tekið
litlum framförum af sjónarhóli
lýðræðisins. Yfirvöldin í Búrmu,
Kína, Norður-Kóreu, Víetnam og
Laos gefa lítið fyrir lýðræði af því
tagi, sem við teljum sjálfsagðan
hluta almennra mannréttinda.
Kambódía er ekki eins harðsvír-
uð og hin fimm, en eitt land ber þó
af öllum gömlu kommúnistalönd-
unum í Asíu af sjónarhóli lýðræð-
isins. Það er Mongólía. Þar þykir
fyrirkomulag lýðræðisins hafa
verið óaðfinnanlegt í bráðum tutt-
ugu ár. Þetta er eftirtektarvert
m.a. vegna þess, að Mongólía er
innilokuð milli Rússlands (vísitala:
4) og Kína (vísitala: -7) og hlýtur
samt fullt hús stiga (10) hjá stjórn-
málafræðingunum. Samt er spill-
ingin í Mongólíu talin vera meiri
en í Kína, en minni en í Rússlandi.
Lýðræði eitt sér veitir enga alls-
herjarvörn gegn spillingu, hvorki
í Asíu né Evrópu.
Önnur skýr vísbending um fram-
för Mongólíu er, að mongólskar
konur eignuðust að jafnaði sjö til
átta börn 1970, yfirleitt gegn vilja
sínum, en þær hafa frá árinu 2000
eignazt tvö börn að jafnaði líkt og
tíðkast í Evrópu og þær kjósa helzt
sjálfar. Þetta er bylting. Næstum
allir unglingar í Mongólíu sækja
nú framhaldsskóla, eða nítján af
hverjum tuttugu, á móti röskum
helmingi 1970, þrátt fyrir víðátt-
ur Góbíeyðimerkurinnar. Með lýð-
ræði og almenna menntun að vopni
geta Mongólar vænzt betri tíðar,
þótt kaupmáttur þjóðartekna á
mann á steppunni sé nú ekki nema
sjöundi partur af tekjum á mann á
Íslandi borið saman við fjórtánda
part fyrir þrjátíu árum. Mongólar
eru átta sinnum fleiri en Íslending-
ar, og land þeirra er fimmtán sinn-
um stærra en Ísland að flatarmáli.
Framsókn Mongólíu frá hruni
kommúnismans er angi á mikl-
um meiði. Einræðisríki heimsins
voru þrisvar sinnum fleiri en lýð-
ræðisríkin 1975. Nú hafa hlutföllin
snúizt við.
Eitt land ber þó af öllum gömlu komm-
únistalöndunum í Asíu af sjónarhóli
lýðræðisins. Það er Mongólía. Þar þykir
fyrirkomulag lýðræðisins hafa verið óaðfinnanlegt í
bráðum tuttugu ár.
Þorvaldur Gylfason
Prófessor
Í DAG
Góðar fréttir úr Góbíeyðimörkinni AF NETINUTvennt í einu
Það var sagt á sínum
tíma um Gerald Ford,
fyrrverandi forseta
Bandaríkjanna, að
hann gæti ekki sinnt
tveimur hlutum í einu
– eins og að ganga og tyggja tyggi-
gúmi. Nú skilst mér að íslendingum
sé ekki treystandi til að hugsa um
tvennt í einu og kjósa um IceSave og
til Stjórnlagaþings sama dag.
Af þessu er dregin sú ályktun
að best sé að Alþingi skipi þá sem
kjörnir voru í sérstaka nefnd og að
hætt verði við kosningar. Nú má vel
vera að það sé ráð að sleppa öðrum
kosningum og skipa einfaldlega
nefnd – ég held ekki, en það er
önnur saga.
Hitt finnst mér alveg ljóst að rökin
fyrir því að hætta við að kjósa og
skipa nefnd geta aldrei verið að það
sé svo erfitt að sinna tveimur hlutum
samtímis. Fyrir það fyrsta þá hef ég
enga trú á að þetta geti ekki gengið
auðveldlega sama dag. Ef ekki, þá
er einfaldlega að finna annan dag
til að kjósa aftur til Stjórnlagaþings.
Það má vel vera að við séu fjarskyldir
ættingjar Fords, en þarna er verið að
rugla saman tveimur ólíkum hlutum.
blog.eyjan.is/valgarður
Valgarður Guðjónsson
Ekkert annað
Við verðum, hvar sem hugur okkar
liggur í pólitík, að nálgast málið
þannig að Icesave er Icesave.
Það er sjálfstætt mál, óháð ESB,
óháð valdabaráttu í Sjálfstæðis-
flokknum, óháð ríkisstjórninni og
óháð forsetanum. Þjóðaratkvæða-
greiðslan verður um Icesave og
ekkert annað.
smugan.is/pistlar/fastir-pennar/
Arndís Soffía Sigurðardóttir