Fréttablaðið - 24.02.2011, Side 26
Gengið er frá kantinum á skónum eins og gert er á íslenskum
sauðskinnskóm og skrautið um ökklann er sótt í hekl.
MYND/EINAR SIGURÞÓRSSON
Skrautið er sótt í höfuðbúnaðinn á
íslenskum faldbúningi. Hælarnir vísa til
renndra stólfóta.
Guðrún Edda Einarsdóttir, vöru- og skóhönnuður, lærði
skóhönnun við London College of Fashion, Cordwainers.
Hún vann lokaverkefnið sitt út frá íslensku handverki
eftir að hafa heimsótt íslenskt hand-
verksfólk yfir kaffibolla.
„Ég vildi vinna út frá Íslandi en maður
sér landið í ljóma þegar maður er staddur
í útlöndum. Guðrún Jónsdóttir, sem sér
um félagsstarfið í Gerðubergi, kom mér
í samband við handverksfólk,“ útskýrir
Guðrún Edda og segir skemmtilegra
að vera í beinu sambandi við fólk en
að lesa sér til um handverk í bókum.
„Þetta var mjög skemmtileg vinna.
Þau Hjálmar Th. Ingimundarson, Eliane
K. Hommersand, Jóna Þórarinsdóttir,
Sigurborg Skúladóttir og Hallveig Ólafs-
dóttir unnu með mér að verkefninu. Ég
heimsótti þau og spjallaði við hvert og eitt
um handverkið og vann svo skóna út frá
því.“
Guðrún Edda segir almennt ekki gefið
að skóhönnuðir kunni að búa til skó. Áður
en hún fór til náms í London vann hún við skóviðgerðir
hjá Þráni skóara á Grettisgötu en í skólanum í London
var einnig lögð áhersla á sníðagerð og saumaskap á
skóm. Með námi vann hún hjá íslenska skófyrirtækinu
Mörtu Jónsson í London og eftir að námi lauk
vann hún í Kaupmannahöfn, meðal annars
fyrir skóhönnuð í Kristjaníu og fyrir danska
merkið Billibi. Guðrún Edda kom heim í
haust og vann þá að frumgerðum fyrir
hönnuðinn Sruli Recht.
„Það var mjög krefjandi og skemmti-
leg vinna en ég hafði aldrei gert karl-
mannsskó áður. Nú er ég bara að
skoða framhaldið. Þessa dag-
ana er ég að undirbúa sýningu
á HönnunarMars dagana 24. til
27. mars en draumurinn er að
fara af stað með mína eigin
skólínu.“
Nánar má forvitnast um
hönnun Guðrúnar Eddu á vef-
síðunni www.gudrunedda.com.
heida@frettabladid.is
Fyrirsætan Carmen Dell‘Orefice þótti glæsileg ásýndum þegar hún
sýndi fatnað á Adrienne Vittadini-tískusýningunni í New York á dög-
unum. Fjöldi stórstjarna lét sjá sig á tískuvikunni, svo sem Zac Efron,
Julia Styles, Brittany Snow og Jennifer Love Hewitt.
Innblásið af
íslenskri hefð
Guðrún Edda Einarsdóttir hannaði skó út frá
íslenskum sauðskinnsskóm og handverki.
Guðrún Edda Einarsdóttir, vöru- og skóhönnuður, fékk inn-
blástur frá íslensku handverksfólki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
50%
AUKA AF
SLÁTTUR
af útsölu
verði
(reiknas
t við kas
sa)
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Aðeins 4 verð á útsölunni
990 • 1990
2990 • 3990
Nýjar vörur - ekki á útsölu
Tískuverslun
fyrir stelpur og konur.
fermingakjólar Árshátíðarkjólar
verð frá 5.900 Opiðmánudag- föstudag frá 11-18,
laugardaga frá 11-16.
Suðulandsbraut 50
Bláu húsin við Faxafen
108 Reykjavík
Tel: 5884499
mostc@mostc.is
Við erum á
Feldir af tígrisdýrum
eru lítið notaðir í fata-
iðnaði af þeirri ein-
földu ástæðu að dýrin
eru alfriðuð og verslun
með þau eða afurðir
þeirra er stranglega
bönnuð. Þrátt fyrir það
virðist vera markaður
fyrir tígrisdýrafeldi í
austanverðri Asíu og
á síðasta áratug virtist
svartamarkaðsbrask
með þá hafa farið
mjög vaxandi samfara
aukinni notkun á feld-
um og annars konar
skinnum í fataiðnaði.
www.visinda-
vefur.is