Fréttablaðið - 24.02.2011, Side 35
Það er ekkert grín að verða skilinn
eftir á óvinveittri plánetu eftir
misheppnaða innrás. Þetta er
raunveruleikinn sem blasir við
söguhetjunum í Killzone 3. Sögu-
þráður þessa nýja kafla í epískri
stríðsseríu Guerrilla Games hefst
nákvæmlega þar sem Killzone 2
lauk. Þessi söguþráður er kannski
ekki ýkja merkilegur en leikurinn
má eiga það að hann slær ekkert
af. Hann er á 100% keyrslu allan
tímann og það er aldrei dautt
andartak.
Killzone 3, líkt og forveri
hans, státar af þeirri nýbreytni
að bjóða upp á „cover system“,
það er að segja að menn geta
leitað sér skjóls undan stöðugri
skothríð óvinanna á bak við bíla,
veggi og fleira í þeim dúr. Kerfi
af þessu tagi er nánast skylda í
þriðju persónu skotleikjum en afar
sjaldséð í fyrstu persónu skot-
leikjum. Það sem virðist kannski í
fyrstu vera óþægileg við-
bót reynist, þegar á spilun
líður, nauðsynlegur hluti af
leiknum og maður furðar
sig á því að fleiri leikir státi
ekki af svona kerfi.
Killzone 3 er með
framúrskarandi grafík og
hljóð. Því miður á undir-
ritaður ekki þrívíddarsjón-
varp svo að ekki var unnt
að prófa þrívíddarfídus
leiksins. Move-hlutinn var
hins vegar prufukeyrður
og hann virkar þrusuvel,
þó svo að tilfinningin af
Move-spilun væri eflaust
mun betri með Sharpshoo-
ter-statífinu sem er væntanlegt í
verslanir.
Eins og góðum skotleik sæmir
býður Killzone 3 upp á fjölspilun
á netinu, en vefþjónarnir hafa
fram til þessa verið lokaðir og því
er ekki unnt að prufukeyra net-
spilunina. Leikurinn er þó
með svokallað Bot-mode
þar sem leikmenn geta
prufukeyrt netspilunarhlut-
ann á móti tölvustýrðum
andstæðingum. Þar geta
menn æft sig í vernduðu
umhverfi án þess að þurfa
að hlusta á sorakjaft ann-
arra leikmanna. Auk þess
geta tveir leikmenn spilað
saman í gegnum söguþráð
leiksins, en það er mikill
galli að sá spilunarmögu-
leiki virkar ekki í gegnum
netið, einungis á deiliskjá
(splitscreen).
Killzone 3 er virkilega
góður leikur og skyldueign fyrir
þá sem vilja sjá hvernig næfur-
þunnri sögu leikjaseríunnar vindur
áfram. Leikurinn er í raun adrena-
línsprengja frá upphafi til enda
og það er varla hægt að kvarta
undan því.
POPPLEIKUR: KILLZONE 3
100% KEYRSLA FRÁ UPPHAFI TIL ENDA
Marvel vs. Capcom 3: Fate
of two worlds er líklega
leikur sem höfðar til allra
nörda. Hér er búið að
taka þverskurð af þessum
tveimur heimum, það er
að segja persónunum
sem hafa gert þá fræga,
og þeim att saman í
flogaveikihvetjandi slags-
málaleik. Hérna geta menn
brugðið sér í hlutverk
þekktra fígúra svo sem
Wolverine, Spiderman, Hulk
og Dead Pool og barið líf-
tóruna úr persónum á borð
við Dante, Albert Wesker,
Chun-Li og Ryu. Leikmenn
velja sér þrjár persónur af rúmlega
30 og geta svo spilað í gegnum
frekar aumkunarverðan söguþráð
leiksins eða tekist á við aðra á net-
inu. Öll framsetning leiksins er til
fyrirmyndar. Leikurinn er í flottum
teiknimyndastíl og er alltaf nóg
um að vera á skjánum, stundum
eiginlega of mikið. Það
hversu oft skjárinn blikkar
ætti að minnsta kosti
að geta valdið nokkrum
flogaveikiköstum.
Þeir sem hafa einhvern
tímann spilað Street Fig-
hter leik eða fyrri Marvel
vs. Capcom leiki ættu að
kannast vel við stjórnkerfi
leiksins. Hérna ráða þeir
ríkjum sem geta lært
utan að langar runur af
skipunum og eru færir um
að slá þær inn nógu hratt.
Takist það eru menn í
góðum málum og leikurinn
breytist í hálfgert litasýru-
tripp þar sem spilun leiksins
verður svo hröð að augun ná
ómögulega að móttaka allt sem
gerist á skjánum.
Sumum myndi kannski þykja
það gott að geta valið úr yfir
30 persónum en miðað við það
að Marvel vs. Capcom 2 innihélt
tæplega 60 persónur verður að
segjast að úrvalið veldur sárum
vonbrigðum. Til að gera málið
enn leiðinlegra hafa framleið-
endur leiksins kosið að stríða
leikmönnum með því að skeyta
inn í leikinn persónum sem
notendur hafa engan möguleika á
að spila. Ýmsar hetjur á borð við
Daredevil og Ghostrider birtast í
aukahlutverkum en verða líklega
ekki aðgengilegar nema Capcom
ákveði að bjóða upp á þær sem
aukaefni, gegn greiðslu.
Marvel vs. Capcom 3 er af-
bragðs slagsmálaleikur og nær
frábærlega að höfða til jafnt
teiknimyndasögu- sem tölvu-
leikjanörda. Þeir sem hafa látið
sig dreyma um að láta á það
reyna hvort Ryu er meira hörkutól
en Wolverine eða hvort Zero úr
Megaman-seríunni geti eitthvað
á móti Hulk geta nú skemmt sér
konunglega við að komast að
„sannleikanum“.
POPPLEIKUR: MARVEL VS. CAPCOM 3
FLOGAVEIKIKAST HEFST EFTIR 3 … 2 … 1 …
GRAFÍK
HLJÓÐ
SPILUN
NIÐURSTAÐA
ENDING
KILL-
ZONE 3
5/5
4/5
5/5
5/5
4/5
GRAFÍK
HLJÓÐ
SPILUN
NIÐURSTAÐA
ENDING
MARVEL
VS. CAP-
COM 3
4/5
5/5
4/5
4/5
4/5
KEYRSLA Leikurinn gerist jafnt í geysistórum geimskipum sem ísilögðum hernaðarbækistöðvum.
FLOTTIR Ryu og Wolverine takast á um hvor skarti betri hárgreiðslu.
gerðu tónlist á makkann þinn
Opið fyrir ProTools 9, Logic, Sonar, ofl.
Symphony I/O