Fréttablaðið - 24.02.2011, Blaðsíða 44
24. FEBRÚAR 2011 FIMMTUDAGUR8 ● fermingarföt
Það er fullt út úr dyrum og
ekkert undarlegt. Í SOHO
market á Grensásvegi 16 er
hrikaleg verðsprengja í gangi
frá miðvikudegi til laugardags.
Það er aðeins ferns konar verð,
sem gildir í fjóra daga: 500 kr.,
1.000 kr., 1.500 kr. og 2.000 kr.
„Við erum með fallega fermingar-
kjóla í hvítu, svörtu, ljósbleiku og
ljósgráu á 2.000 kr. á verðsprengj-
unni,“ segir eigandinn Jóna Lár,
sem einnig er fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri hinna nafntoguðu
samtaka Módel ´79. Jóna er líka
flugfreyja og er þess vegna allt-
af með puttann á tískupúlsinum.
„Við kjólana erum við með legg-
hlífar á 500 kr. og ermar á 1.000
kr.“ Vöruverð í versluninni er
mjög gott og fólk talar um búðina
sem best geymda leyndarmálið á
Grensásveginum að sögn Jónu,
bæði vegna verðsins og persónu-
legrar þjónustu. „Það er alltaf
gaman að koma til okkar í Soho
Market.“
KARL BERNDSEN MÆLIR MEÐ
AÐHALDSFATNAÐINUM Í SOHO
Jóna veit hvað konur vilja og
þurfa og hún býður meðal annars
upp á fatnað sem veitir magan-
um, lærunum og rassinum aðhald
á ótrúlegu verði. „Karl Berndsen
hefur mælt með aðhaldstoppun-
um okkar í þáttunum sínum, en
sá sem Karl hreifst mest af er
með blúndu að framan og aftan
og bæði fyrir unga og aldna. Þeir
eru ekki einungis góðir og fallegir
heldur á ótrúlegu verði, 3.490 kr.
Þá erum við með eina týpu á 3.990
kr., með buxum, og aðra týpu sem
er úr korselettuefni, með blúndu
að neðan og krækjum en það er
rennilás sem kemur í staðinn
fyrir krækjurnar. Sá kostar að-
eins 5.990 kr. Karl sagði í þættin-
um sínum að í SOHO market væri
í raun hægt að fá þrjá fyrir einn
af aðhaldsfatnaði. Ungu stelp-
urnar og mömmurnar rífast um
þetta,“ segir Jóna og hlær.
NÝJAR VÖRUR EFTIR HELGI
Þær konur sem eru í íþróttum
verða ekki út undan í SOHO mar-
ket. „Við erum hér með jógabux-
ur á 2.690 kr. og íþróttabrjósta-
haldara á 1.250 kr. í mörgum
litum. Þá erum við með fjölbreytt
úrval íþróttafatnaðar.“ Eftir
helgina ætlar Jóna síðan að taka
upp nýjar vörur og selja á sama
góða verðinu og alltaf er í SOHO
market. „Hjá okkur færðu það
nýjasta í fatnaði, töskum, skarti
og fylgihlutum. Þetta eru vand-
aðar bandarískar vörur og það er
óhætt að segja að þær hafi slegið
í gegn,“ segir Jóna. „Sumar konur
segjast ekki ætla að segja neinum
frá þessari verslun. Þær ætli að
eiga leyndarmálið einar,“ segir
hún hlæjandi en hún leggur meira
upp úr verðinu en staðsetning-
unni. „Ég gæti verið með versl-
unina í Kringlunni en þá myndi
sjarminn fara af henni. Fólki
finnst bæði gott og spennandi að
koma hingað.“
Verðsprengja í SOHO market
„Hjá okkur færðu það nýjasta í fatnaði, töskum, skarti og fylgihlutum,“ segir Jóna hjá SOHO market á Grensásvegi 16.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SOHO/MARKET Á FACEBOOK Grensásvegur 16 - sími 553 7300 - Opið mán-fös 14–19. Laugd. 12–17
Fallegur fatnaður á fermingarstúlkuna