Fréttablaðið - 24.02.2011, Blaðsíða 46
10 •
TÓNLIST
Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verður haldin á Sódómu
laugardaginn 5. mars. Sex hljómsveitir berjast um að komast út til
að spila á Wacken Open Air í Þýskalandi og taka þátt í lokakeppni
Wacken Metal Battle þar. Til mikils er að vinna, því sigurhljómsveitin
fær plötusamning og heilan haug af hljóðfærum og græjum og verður
bókuð til að koma fram á hátíðinni á næsta ári.
MÚSÍKTILRAUNIR
DAUÐANS
Metalhausinn Þorsteinn
Kolbeinsson heldur utan um
Wacken Metal Battle á Ís-
landi. Hann hefur farið átta
sinnum á Wacken-þunga-
rokkshátíðina í Þýskalandi og
er á leiðinni í níunda skipti í
ár. Hann hefur haldið utan um
hópferð á hátíðina frá árinu
2004, sem er sama ár og
Metal Battle keppnin byrjaði.
„Ég fór að veita þessari
keppni athygli og tók eftir
því að löndunum sem tóku
þátt fjölgaði með hverju
árinu sem leið og þá var ekki
eftir neinu að bíða, heldur
bara rétta upp hönd og
spyrja hvort litla Ísland mætti
ekki vera með líka,“ segir
Þorsteinn. „Því var tekið
fagnandi og er ég stoltur af
að Ísland skuli hafa slegist
í hóp þjóða þarna á undan
Svíum og Dönum!“
Er Wacken-hátíðin sú
besta í heimi?
„Góð spurning.
Það er að
sjálfsögðu
ekki hægt að
svara þessu
með einhverju
ákveðnu
svari, ekki
frekar en að
spyrja hvort
Metallica sé besta hljómsveit
í heimi,“ segir Þorsteinn.
„Auk þess rífast menn alltaf
um val á hljómsveitum og
svoleiðis ár frá ári en sú stað-
reynd að það sé búið að vera
uppselt á þessa hátíð síðustu
sex ár segir ákveðna sögu.“
Þorsteinn segir að skipu-
lag, öryggismál og aðstaða
sé í algjörum toppklassa á
Wacken. „Á Wacken er fjöl-
breytt úrval af mat og drykk,
hreinlætisaðstaða er til fyrir-
myndar – vatnsklósett og
heitar sturtur á víð og dreif
á svæðinu – og heilmikið að
gerast á hverjum tíma fyrir
sig, þannig að úrvalið er fjöl-
breytt, svo ekki sé minnst á
hinn risastóra metalmarkað,
þar sem menn hafa verið
þekktir fyrir að kaupa árs-
skammtinn af geisladiskum á
einu bretti,“ segir Þorsteinn
að lokum. „En ég er alveg
sannfærður um að
margar aðrar hátíðir
bjóði upp á svip-
aðan pakka og
því er afar erfitt
að krýna ein-
hverja eina hátíð
sem þá bestu í
heimi.“
FER Á NÍUNDU WACKEN-HÁTÍÐINA Í SUMAR
ÞORSTEINN ÖRN
KOLBEINSSON
ATRUM
Stefna: Black/Death Metal
Atrum var stofnuð 2005 í Hafnarfirði með það
markmið í huga að skapa öflugan og þungan
málm með stórfenglegu og dimmu andrúms-
lofti. Hljómsveitin hefur lokið við hljóðritun
á sex laga stuttskífunni Opus Victum sem
kemur út á næstu mánuðum.
Heimasíða: myspace.com/atrumiceland
ANGIST
Stefna: Death Metal
Angist er ein umtalaðasta metalsveit lands-
ins í dag. Hljómsveitin kom fram á á Iceland
Airwaves hátíðinni í fyrra og var með fyrstu
innlendu metalböndunum til að gera slíkt. Á
vormánuðum 2011 má búast við stuttskífu frá
sveitinni.
Heimasíða: myspace.com/angisttheband
CARPE NOCTEM
Stefna: Black Metal
Carpe Noctem hefur síðustu ár skapað
sér stórt nafn sem ein af fremstu black
metal sveitum landsins. Textar hljóm-
sveitarinnar eru á íslensku og rífa í
sig kristindóminn ásamt því að vitna í
norræna goðafræði, heimsendaspádóma
og íslenskan svartagaldur.
Heimasíða: myspace.com/carpenoctemi-
celand
GRUESOME GLORY
Stefna: Teknískt dauðarokk
Gruesome Glory frá Akureyri hefur spilað
sig inn í metal-senuna við frábæran
orðstír. Gríðarlega efnilegt band hér á
ferðinni sem er að koma saman aftur eftir
nokkurn dvala.
Heimasíða: myspace.com/gruesomeg-
lory
GONE POSTAL
Stefna: Dauðarokk / Black / Groove
Gone Postal hefur hitað upp fyrir erlendu
sveitirnar Entombed, Misery Index, Týr,
Ramming Speed og Pulling Teeth. Hljóm-
sveitin fékk verulega góða dóma í Metal
Hammer og Terrorizer fyrir frammistöðu
sína á Eistnaflugi 2010.
Heimasíða: myspace.com/gonepost-
almetal
OPHIDIAN I
Stefna: Teknískt dauðarokk
Ophidian I er skipuð meðlimum úr
ýmsum eldri böndum, eins og Beneath,
Discord, Dysmorphic og Gruesome Glory.
Markmiðið hljómsveitarinnar er að spila
teknískt dauðarokk innblásið af hinni nýju
bylgju teknískra sveita eins og Obscura,
Necro-phagist o.fl.
Heimasíða: myspace.com/ophidiani