Fréttablaðið - 24.02.2011, Blaðsíða 48
Óskarsverðlaunin verða afhent á sunnudaginn. Tíu frábærar myndir eru tilnefndar
sem besta myndin, en hver tekur styttuna heim? Þessi úttekt mun eflaust ekki
hjálpa þér að átta þig á því, en reyndu að hafa gaman af henni.
EF ÓSKARSVERÐLAUNIN VÆRU
KEPPNI Í ÞUNGAROKKI
BÍÓ
PHIL ANSELMO ER THE
FIGHTER Boxáhuga-
maðurinn Phil Anselmo
úr Pantera stútaði hljóm-
sveitinni með því að vera
sífellt upp á kant við
hljómsveitarfélaga sína.
ROB HALFORD ER THE
KIDS ARE ALL RIGHT
Rob Halford, sam-
kynhneigðasti maður
þungarokksins, er að
sjálfsögðu lesbíumyndin
The Kids Are All Right.
LEMMY ER BLACK SWAN
Lemmy getur verið
sturlaður á sviði einn
daginn og haldið ræðu
fyrir breska þingmenn
þann næsta. Sem sagt
alveg klikkaður eins og
söguhetja Black Swan.
JAMES HETFIELD ER TRUE
GRIT James Hetfield er jafn
amerískur og söguhetja
True Grit, leikinn af Jeff
Bridges. Svo ganga þeir
báðir í kúrekastígvélum.
LARS ULRICH ER TOY
STORY 3 Lars Ulrich
gæti náttúrlega verið
teiknimyndapersóna.
Hann er lítill, skrítinn
og með furðulega rödd.
Þess vegna er hann Toy
Story 3.
RICK ALLEN ER 127 HOURS Rick
Allen, trommari Def Leppard, er
einhentur, eins og söguhetja 127
Hours varð. Hann skar reyndar ekki
af sér höndina, heldur missti hana
í slysi. Svo er Def Leppard reyndar
ekki þungarokk, en okkur vantaði
einhentan gaur.
JENS KIDMAN ER INCEPTION
Draumur inni í draumi inni í
draumi. Inni í draumi. Alveg eins
og Jens Kidman og félagar í Mes-
huggah: Taktur inni í takti inni í
takti.
BRENT HINDS ER THE SOCIAL NETWORK
Gæðamynd fyrir fólk sem kann ekki að
meta gæðamyndir. Allir elska The Social
Network, alveg eins og allir elska Brent
Hinds og félaga í Mastodon.
„Ég vil að Black Swan vinni, ein-
faldlega af því að myndir sem
fá mann til að öskra af pjúra
geðshræringu vegna þess hversu
geðveikislega klikkaðar þær eru
koma allt of sjaldan, en … Ég held
að The King‘s Speech vinni, ein-
faldlega af því að það er mynd,
vissulega frábær mynd, en mynd
sem höfðar til akademíunnar á breiðari hátt en
Black Swan. Auk þess hefur hún verið að rúlla upp
flestum öðrum fagverðlaunahátíðum, sem hafa
reynst góður mælikvarði á Óskarssigurvegara.
Erlingur Grétar Einarsson,
ritstjóri Mynda mánaðarins
„Flest bendir til þess að The King‘s Speech
taki þetta. Mesta ógnin við hana er The Social
Network. Það kæmi mér þó á óvart ef hún yrði
sigurvegari. Í leikstjóraflokknum er slagurinn milli
þessara tveggja mynda jafnari og báðir leikstjórar
eru með svipaðan meðbyr. En akademían er oftast
fyrirsjáanleg og er mikill sökker fyrir myndum
eins og The King‘s Speech, sem er reyndar alveg
frábær mynd og á verðlaunin fyllilega skilið. Sjálfur
held ég þó með Danny Boyle og mynd hans, 127
Hours, en ég er ennþá að jafna mig eftir það áhorf.
Lumiere-bræður væru stoltir af Danny Boyle.“
Haukur Viðar Alfreðsson,
kvikmyndagagnrýnandi Fréttablaðsins
HVAÐ SEGJA SPEKINGARNIR?
KERRY KING ER WINTER‘S
BONE Myndin sem hinn
almenni borgari veit
ekkert um en
spekingarnir elska.
Þekkir þú Kerry
King? Örugglega
ekki, en metal-
hausinn vinur
þinn elskar
hann.
OZZY ER THE
KING’S SPEECH
Myndin fjallar um
konung sem stamar.
Ozzy Osbourne er
kóngurinn og mál-
haltur eftir áralanga
misnotkun á eitur-
lyfjum.
9. HVER
VINNUR!
ÞÚ SENDIR SMS SKEYTIÐ
ESL KILL Á NÚMERIÐ 1900.
ÞÚ FÆRÐ SPURNINGU.
ÞÚ SVARAR MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA
SMS SKEYTIÐ ESL A, B EÐA C
Á NÚMERIÐ 1900.
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VILTU VINNA PS3
+ KILLZONE 3
+ SHARPSHOOTER?
GEGGJAÐIR
AUKAVINNINGAR
Killzone 2 PS3
DVD myndir
Tölvuleikir
Fullt af gosi!
AÐA
LVIN
NIN
GUR
:
VINNINGAR VERÐA AFHENTIR Í ELKO LINDUM, KÓPAVOGI.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
149 KR/SMS-IÐ. ÞÚ FÆRÐ 5 MÍN TIL AÐ SVARA SPURNINGU. LEIK LÍKUR 4. MARS 2011