19. júní - 19.06.1975, Síða 15
vatns gegnum djúpstæðar rætur eins og tré og runnar
eða geymir í sér vatnsforða eins og kaktus.
öll ræktun í þessum löndum er vatninu háð. Sé
það fyrir hendi er unnt að rækta næstum hvað, sem
vera skal. Talsvert er ræktað af baðmull í þessum
löndum, einkum þó í Nicaragua, en baðmullin þarf
23 °C meðalárshita, ef hún á að skila árangri. Ann-
ars er ræktað kaffi, margar tegundir ávaxta, hrís,
maís, sykurreyr og margt fleira. f hálendum Mið-
Ameríku og Columbíu vex dýrasta og besta kaffið.
Það er langt frá því, að okkar mjög svo auglýsta
Rió kaffi sé það besta á heimsmarkaði.
Oft hevrisl því slegið fram, að lítið muni þurfa
fyrir ræktuninni að hafa í þessum sumarlöndum,
en ekki er það rétt nema að vissu marki, þvi að fleira
vex en það, sem er til nytja. Og hvað má segja um
„illgresi11, sem á þrem til fjórum vikum getur náð
meira en tveggja metra hæð og fært í kaf fullþrosk-
aðar bananaplöntur, ef ekki er að gert? Þar við
bætist, að stofnar þessara plantna geta verið tveir
til þrír sentimetrar í þvermál. Hvað er þá arfinn
í görðunum okkar? Kaffirunnamir þurfa lika um-
hirðu. Árlega verður að fara inn landið og brjóta
„óþarfar“ greinar af runnunum, beygja stofna gam-
alla runna niður í jörð og hæla þá niður, svo að þeir
skjóti þar nýjum rótum og yngi sig þannig upp sjálf-
ir. Síðar þarf að rífa gömlu rótina burt. Líka þarf
að gæta þess, að mátulega mörg og mátulega stór
tré vaxi innan um kaffið til þess að veita runnunum
hæfilegan skugga, og svona mætti lengi telja. Verði
jarðvegur blautur, deyja bananaplöntumar, og þess
vegna verður stöðugt að vera á verði, meðan á regn-
timinn stendur, og vera fljótur til að grafa skurði
í landið, sé það of blautt. Baðmullin þarf ekki síður
umhirðu. Henni er sáð í mai, og uppskeran er í
ágúst-september. Runnana, sem verða um sjötíu
til áttatíu sentimetra 'háir, þarf að verja fyrir skor-
dýmm, og er það gert á þann hátt, að akramir em
„púðraðir" með skordýraeitri. Þetta er gert úr flug-
vélum, sem fljúga verða i um eins til tveggja meti'a
hæð yfir svæðunum, og er það verk ekki hættulaust.
Áhrif þessarar miklu notkunar skordýraeiturs hafa
ekki látið á sér standa. Hefur skordýraeitrið að
minnsta kosti orðið nokkrum fuglategundum að f jör-
Ein af þeim 19 kirkjum, sem eyðilögðust í Managua 23. desember 1972. (Ljósm. Jón Jónsson)
19. JÚNÍ
13