19. júní


19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 25

19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 25
fjö]ga að xnun. Aftur á móti vantar eitthvað, sem gæti komið örlítið í stað timarita og dagblaða. Æski- legt væri að lesa inn efni, sem kæmi með vissu milli- bili og fólk gæti orðið áskrifendur að. Mætti það vera blandað efni. Það nýjasta, sem skeð hefur mn- fram það, sem sagt er frá í útvarpsfréttum ásamt tímaritagreinum. Utan um hverja bók er kassi og henni fylgir bóka- kort. Á kassann er ritað nafn liöfundar, titill bók- arinnar og aðfanganúmer. Spólan sjálf er einnig merkt. Merking er bæði á svartletri og blindraletri. Hver bók tekur margar spólur og eru þær því núm- eraðar. 1 framtíðinni verða notuð titilnúmer til að auðvelda afgreiðslu i síma. Eitt er það, sem blindur maður fer alveg á mis við, er um bækur og blöð er að ræða. Það er að koma í safnið. Ganga þar um, fletta bókum og blöðum; gleðj- ast yfir gnægðinni. Það getum við — það getur hann ekki. Hvað getum við gefið honum í staðinn? Það, sem kemur að nokkru ley ti í staðinn er munn- leg upplýsingaþjónusta um það, sem á boðstólum er. Þá er mikilvægt, að sá, sem upplýsingar gefur hafi góða bókmenntaþekkingu og að viðmótið sé hlýtt og rólegt. Blindrafélagið og Blindravinafélag Islands eiga bæði talbækur, sem blindir eiga kost á að fá að láni. Fólk, sem farið er að missa sjón, hefur aftur á móti oft gleymst alveg. Það er ekki aðeins blint fólk, sem þarf talbókina. Menn með skerta sjón þurfa mikið á henni að halda svo og sjúklingar, sem geta eldd lesið venjulegt letur um lengri eða skemmri tíma. Segulbandstæki verða því að vera til á hverju sjúkra- húsi. Hvað varðar lánþega, sem búa í heimahúsum er vandamál, hve fáir þeirra eiga tæki. Bókaverðir sjúkrahúsanna ráða því, hvort þeir afgreiða talbæk- umar sjálfir og hjálpa til með tækin eða biðja okkur að heimsækja sjúklinginn. Miðvikudagur er bókadagur á Hrafnistu Bókm heim, hin ársgamla deild innan Borgarbóka- safns Reykjavíkur sér um bókaþjónustu á Hrafnistu og í húsi Sjálfsbjargar við Hátún 12. Á Hrafnistu er bókasafn á staðnum. Við komum með þær bækur, sem þar eru ekki til, svo sem nýútkomnu bækumar, og lánað er út úr báðum söfnunum einu sinni í viku. Fyrir hádegið er safnið opið og allir velkomnir. Eft- ir hádegið er farið um húsið með bókavagn. Farið er inn í sjúkradeild, hjúkrunardeild og til þeirra, sem geta ekki komið niður í safnið eða geta ekki bor- ið bækumar. I Vinnu- og dvalarheimili Sjá'lfsbjargar Hátúni 12 er ætlunin að koma upp eigin bókasafni. Þar til það kemst í gagnið sjáum við íbúum hússins fyrir les- efni. Stúlka, sem þarna vinnur við skrifstofustörf og simavörslu, lánar út bækurnar. Markvisst þarf að vinna að því að auðvelda fötl- uðu fólki að komast leiðar sinnar hjálparlaust. Þetta verða arkitektar að hafa í huga við teikningu húsa, einkum þeirra húsa, sem byggð em fyrir almenning. Borgin er full af húsum, sem ýmist em lyftulaus eða með svo litlum lyftum, að inn í þær kemst ekki hjólastóll. Þetta er skiljanlegt og afsakanlegt, þegar um gömul hús er að ræða, en bví miður liggja nú í dag á borðum arkitekta teikningar að húsum, senj bráðlega munu rísa og þar sem þetta er ekki sem skyldi. Má þar nefna sem dæmi, að stundum verður fatlaður maður að fara aðra leið en aðrir gestir, því lyftan er aðeins ætluð starfsfólki. Til em hús, sem byggð eru aðeins á einni hæð (jarðhæð) og ætti þvi að vera leikur einn að ganga svo frá, að renna mætti inn hjólastól, en þá er eitt eða tvö þrep næg hindmn. Það er gleðilegt, að nú má líta á nokkmm stöðum skábretti, sem bæta úr þessum mistökum. Það, sem 19. JIJNÍ 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.