19. júní


19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 29

19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 29
yrði tekjuskattur beggja hjónanna 812 þúsund, en í síðara dæminu 1375 þúsund. En allt getur breyst. Menn, sem hafa laun á borð við ráðherra geta misst sínar ágætu konur annað hvort við andlát eða skilnað. Þá snúast dæmin við. Sá sem átti elsku konuna sína heima til að hlynna að honum og heimili hans er nú talinn hafa hagnast það mikið fjárhagslega við það að hún hvarf úr lífi hans að hann á að geta greitt 1029 þúsund krónur i skatt eða 268 þúsundum meira en meðan hún var og hét. HeimiliS hefur skattalega séð ekki misst nein- ar tekjur, og nú er ekki deilt lengur með tveimur. Hinn fer öllu betur út úr dæminu fjárhagslega. Hann ætti nú að borga 1029 þúsund í skatt eða 346 þús- und krónum minna en áður. í síðara dæminu er staðreynd að heimilið hefur misst tekjur, en í þvi fyrra er engu líkara en að af því hafi horfið þung- bær ómagi. Er hægt að ganga öllu lengra í að van- meta störf heimakonu en þetta? Að lokum óska ég öllum konum langra lífdaga í hjónabandi og vona að þeir, sem lög smíða þurfi ekki að reyna það, að þessi skattaeldur brenni á þeim sjálfum áður en þeir sannfærast um að aðrar leiðir eru réttlátari í skattamálum en að helminga tekjur giftra manna. Fært í letur um sumarmál 1975. Valborg Bentsdóttir Kynþáttavaiidamál eru því sem næst óþekkt {yrirbrigði eftir Þorvalil (>mTinuiiilss»n, skipstjóra Það var haustið 1967, að þeim, sem þetta ritar, barst tilboð frá Matvæla- og lanbimaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) um að starfa við tilraunafiskveiðar og þjálfun í notkun nýtízku fiskleitartækja í Argent- ínu. 1 upphafi var gert ráð fyrir tveggja ára samn- ingi með möguleika á framlengingu að þeim táma loknum. Er þetta gerðist, var ég skipstjóri á ms. Höfr- ungi II frá Akranesi og hafði verið skipstjóri á skip- um Haraldar Böðvarssonar & Co um sjö ára skeið. Áttum við hjónin þrjá syni á öðru, fjórða og sjötta ári. Við ákváðum að taka tilboðinu og í nóvember 1968 flugum við öll saman til Argentínu, en ég hafði þá dvalizt þrjá mánuði í Noregi við eftirlit með smíði skips, er ég skyldi nota við starf mitt, er suður kæmi. Dvöl okkar i Argentinu varð lengri en við gerðum ráð fyrir, hátt á sjötta ár. Frá Keflavík var flogið til Kaupmannahafnar og þaðan tekin vél, er flaug til Buenos Aires með sjö millilendingum. Slíkt skyldi enginn gera, þvi að ferðin sóttist seint og svefnfriður var lítill, þar sem farþegar urðu að fara úr vélinni á hverjmn velli. Átta tima töf varð í Sao Paolo í Brasilíu vegna vélar- bilunar, síðasta hálftímann fyrir lendingu i Buenos Aires var flogið i gegnum mikið þrumuveður. Þessi stóra flugvél hoppaði og hristist, svo að allt lauslegt hrundi úr farangursgrindunum fyrir ofan sætin og farþegar veinuðu af hræðslu, en eldingar klufu loftið og sýndust nærri. Það var heldur þreyttur og fram- lágur hópur, er steig út eftir 30 tíma ferðalag frá Höfn. Starfsmaður FAO tók á móti okkur á flugvell- inum og kom okkur á hótel, þar sem hvílzt var eftir erfiða ferð. Morguninn eftir var heilsað upp á yfirmann þró- unarhjálpar SÞ i Argentínu og fiskimálastjóra lands- ins, en síðan ekið 400 km leið út að Atlandshafs- ströndinni til Mar del Plata, borgarinnar, er verða skyldi heimkynni okkar næstu árin. Þetta er um 330 þúsund manna borg mestan hluta ársins, en á sumrin, desember til marz, þegar flykkist þangað fólk innan úr landi til að njóta sjávar og sólar, kemst mannfjöldinn allt upp í milljón. Borgin er mjög snyrtileg, að mestu leyti einbýlishiis, nema kjarni há- 19. JÚNÍ 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.