19. júní


19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 27

19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 27
Skattamál hjóna Ritstjórn 19. júní fór þess á leit, að ég gerði nokkra grein fyrir því hvers vegna sú breyting var gerð á skattalögunum 1958, að heimilað var að draga 50% frá tekjum giftrar konu áður en skattur væri á þær lagður samkvæmt sameiginlegu framtali hjóna. En yfir þessum „skattfríðindum" sjá nú margir ofsjón- um. Á striðsárunum svokölluðu (1939—1945) fór það mjög í vöxt, að giftar konur hefðu launuð störf utan heimilis, en fyrir þann tíma var það næsta sjald- gæft. 1 þágildandi skattalögum var gert ráð fyrir að tekjuöflun heimila væri á einni hendi og eiginmað- ur einn framfærandi. Enda var lengi vel á skatta- framtölum prentuð þessi „smekklega“ klausa: „Á síðasta ári voru á framfæri mínu kona og . . . böm.“ En með fullri virðingu fyrir vinnu heimakonu á nú- tíma heimili má hiklaust telja að vinna konu á heim- ili á þeim árum, sem þetta orðalag tíðkaðist, var mun meiri og erfiðari en nú gerist. En þar sem konan, sem „breytti ull í fat og mjólk í mat“ var talin á framfæri eins og ómagi, sem væri ekki einu sinni matvinnungur var ekki von að höfundar laga teldu vinnu þessara kvenna nokkurs virði, enda hefur hún alltaf verið skattfrjáls.. Þegar búskaparhættir fóm að breytast á þann veg, að hægt var að kaupa full- unna vöru í fjöldaframleiðslu, sem áður var unnin heima og í stað heimavinnu fóru konur að stunda launuð störf til að standa straum af auknum tilkostn- aði voru heimilin strax svipt þeim hefðbundnu fríð- indum að heils dags vinna á heimili væri skattfrjáls. Hver eyrir, sem gift kona aflaði var miskunnarlaust lagður við tekjur eiginmanns og skattar hjóna gátu af þeim sökum orðið lítt bærilegir, þar sem skatt- stigi var allbrattur á þeim árum (5-30%) og ekkert tillit tekið til þess að konan, sem vann utan heimilis þurfti oft vendegu til að kosta. Þessu undu menn að vonum illa og báru sig saman við tvo einstaklinga, sem báru mun minni skatta- bjo-ðar þó samanlagðar tekjur væru jafnmiklar. Og fljótt var farið að hafa orð á þvi, að ekki væri heið- arlegt af löggjafanum að skattleggja það sérlega að heita hjón á opinberum skjölum. Kom jafnvel til tals að stofna til hjónaskilnaða í stórum stíl til þess að mótmæla ósómanum. Þeir sem hugðu á hjúskap hugsuðu sig tvisvar um áður en þeir sættu sig við þann aukakostnað í skattgreiðslu, sem af hjónavigslu hlaust, og samhýlisfólki fjölgaði ört. Ymis félagasamtök létu mál þessi til sín taka og bar þar mest á KRFÍ. Á öllum landsfundum og full- trúaráðsfundum félagsins voru skattamálin tekin til umræðu. Ályktanir og áskoranir voru sendar ráða- mönnum þjóðarinnar og málið kynnt í fjölmiðlum, bæði með blaðagreinum og útvarpserindum. Auðvitað voru skattalög sem þessi verulegur hemill á það að konur, sem þegar voru giftar, tækju að sér launuð störf. Ég spurði til dæmis þáverandi fonnann Hjúkrunarfélagsins, Sigríði Eiríksdóttur, að því hvers vegna svo margar menntaðar hjúkrunarkonur væru ekki að starfi þó farið væri að hera á skorti í stétt- inni. Hún svaraði því, að þær væru svo „vel“ giftar, þ. e. giftar svo tekjuháum mömium að það borgaði sig ekki fyrir þær að vinna launuð störf. Skatturinn hirti það mikið af tekjunum að varla væri eftir nema fyrir heinum kostnaði. En þess var þá þegar farið að gæta, að fólk vantaði til vinnu hæði i heilbrigðisþjón- 19. .TÚNÍ 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.