19. júní


19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 42

19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 42
hlckkir Þessar félagskonur hafa látist síðan aðal- fundur ICRFÍ var haldinn í lok febrúar 1974. Gubrídur Jónsdóttir var fædd i Reykja- vik 11. september 1890, dáin í Reykjavík 7. febrúar 1975. Foreldrar hennar voru hjónin Guðlaug Halidórsdóttir og Jón Benediktsson sjómaður, bæði af Álfta- nesi. Hún ólst upp i foreldrahúsum ásamt 8 systkinum. Þegar hún var sex ára göm- ul fluttist fjölskyldan til Bildudals, þar sem faðir hennar gerðist útgerðarmað- ur og formaður. Þegar Guðriður var upp- komin hugðist hún afla sér framhalds- menntunar og hóf nám í Kennaraskóla Islands haustið 1913. Það nám stundaði hún næstu tvo vetur, en varð að hverfa frá ])vi vegna veikinda áður en J>vi var lokið. en alla sina löngu ævi var hún að auka við menntun sína með lestri góðra hóka. Árið 1917 giftist Guðríður Jóni ívarssyni verslunarmanni, ættuðum úr Borgarfirði. Þau bjuggu fyrstu árin i Borgarnesi, Jiar sem Jón var skrifstofu- maður hjá Kaupfélagi Borgfirðinga. Ár- ið 1922 fluttust Jiau til Hafnar i Homa- firði, en jiá gerðist Jón kaupfélagsstjóri jiar. Á IJöfn bjuggu þau til 1943, er J>au fluttust til Reykjavikur, jiar áttu þau síðan heima meðan samvistir entust. Þótt Guðriður væri lengst af ævinnar hús- móðir á stóru og gestkvæmu heimili, gaf hún sér tima til að sinna ýmsum félags- störfum, og sýndi það sig raunar strax á unglingsárunum vestur á Bildudal, þar sem hún gerðist félagi i Góðtemplara- reglunni, og hélst áhugi hennar á bind- indismálum alla ævi. Guðríður starfaði einnig i kvenfélögum hæði í Borgarnesi og á Höfn í Hornafirði. Eftir að hún fluttist til Reykjavikur var hún mikið starfandi í samtökum kvenna meðan heilsa entist og var meðal annars um nokkurt skeið i stjóm KRFÍ og lengi í stjórn Félags framsóknarkvenna. Þeim lijónum Guðríði og Jóni varð eigi auð- ið eigin bama, en þau ólu upp fjögur börn, þar af tvö kjörbörn. Jenný Andrea Jónsdóttir var fædd á Vopnafirði 12. ágúst 1909, dáin í Reykja- vik 30. janúar 1975. Hún var dóttir hjón- anna Helgu Ólafsdóttur og Jóns Jónsson- ar útvegsbónda. Árið 1918 fluttist hún með foreldrum og systkinum til Reykja- víkur, en áður en Jiau yfirgáfu Austur- land áttu Jiau heima á Seyðisfirði nokkur ár. Ekki naut Jenný annarrar skólagöngu en hinnar lögskipuðu barnafræðslu. En hún var eðlisgreind og fróðleiksfús og tókst Jivi að afla sér allgóðrar sjálfs- menntunar. Kornung, aðeins átján ára gömul, giftist hún Guðmundi Ingvars- syni fyrrverandi skipstjóra. Þau stofnuðu heimili að Grandavegi 38 í Reykjavik og áttu Jiar heima til dauðadags Jenný- ar. Semma á hjúskaparárum þeirra urðu þau fyrir Jieirri reynslu að Guðmundur veiktist af alvarlegum sjúkdómi og var óvinnufær í 5 ár. Jenný stóðst þessa próf- raun ineð ágætum, enda henni eðlislægt að gera fyrst og fremst kröfur til sín sjálfrar. Á Jiessum erfiðleikaámm vann hún fyrir heimilinu með smávegis að- stoð, sem tveir stálpaðir drengir þeirra g itu veitt. Hún tók þá að vinna verka- kvennavinnu m. a. hjá Bæjarútgerð Reykjavikur. Gerðist hún félagi í verka- kvennafélaginu Framsókn, þar sem hún siðan starfaði árum saman og gegndi mörgum trúnaðarstörfum. Seinustu árin vann hún við simavörslu á Landsbóka- safninu. Þau hjónin Jenný og Guðmund- ur eignuðust 5 böm. Jóna Benónísdóttir var fædd í Laxár- dal í Hrútafirði 28. desember 1913, dáin i Reykjavik 26. mars 1974. Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Guðmunds- dóttir og Benóni Jónasson bóndi og odd- viti. Jóna ólst upp í foreldrahúsum ásamt fimm systkinum. Þegar hún var um tví- tugt fór hún að heiman til Reykjavíkur og stundaði fyrst ýmis störf, var í vist við heimilisstörf og vann einnig við saumaskap. Siðan vann hún nokkur ár við dagblaðið Þjóðviljann. Aðal ævistarf Jónu var skrifstofustörf hjá Alþýðusam- bandi íslands, en þar vann hún um það hil aldarfjórðung, eða þar til hún varð að láta af störfum vegna Jieirra veikinda, sem urðu hennar banamein. Hún hafði mikinn áhuga á verkalýðsmálum, og naut verðugs trausts fyrir dugnað og samviskusemi í starfi. Jóna giftist ekki. Sigrtjn Sigur.iónsdóttir var fædd að Kringlu i Grímsnesi 7. nóvember 1896, dáin i Borgarspitalanum í Reykjavík 9. desember 1974. Foreldrar hennar voru lijónin Jódis Sigmundsdóttir og Sigurjón Gíslason. Sigrún er fædd haustið eftir sumarið eftirminnilega, er jarðskjálftam- ir miklu gengu yfir Suðurland. Hún var Jiriðja barnið af 10 systkinum og ólst þvi upp í stórum systkinahópi, enda vandist hún þvi snemma að taka til hendi við Jiau störf er til féllu á heimilinu. Árið 1926 giftist Sigrún Jónasi Bjaraa- syni trésmið, úr Miðneshreppi á Suður- nesjum. Þar setast Jiau að og reisa nýbýl- ið Hólabrekku. Þá tvo áratugi, sem þau bjuggu þar, stunduðu þau útgerð og bú- skap, auk þess sem húsbóndinn vann jafn- framt við trésmíði. Á þessum árum var heimilið oft mannmargt og J>vi ærið að starfa fyrir húsfreyjua, og einnig átti hún við nokkur veikindi að striða. En Sig- rún hafði til að bera þrek og bjartsýni, sem entist alla hennar lögu ævi og hjálp- aði henni að yfirvinna þessa erfiðleika. Árið 1946 flytjast Jiau til Reykjavíkur og 12 árum siðar að Þinghólsbraut 9 í kópavogi. Þau Sigrún og Jónas eignuðust 3 böm. Allar þessar mætu konur, sem hér hef- ur verið getið, voru árum saman félagar i KRFÍ. Guð blessi minningu þeirra. G. H. Gunnar Einarsson bókaútgefandi og prentsmiðjustjóri í Leiftri lést í febrúar á s. 1. vetri. Við sem störfuðum í Kven- réttindafélagi íslands, höfum vissulega ástæðu til að minnast hans með hlýjum huga fyrir ágætt samstarf við hann og starfsfólk hans í prentsmiðjunni Leiftri, en ársrit félagsins „19. júni“ hefur lengst af verið prentað þar. Minnistæð mun okkur verða einstök lipurð hans og oft mikið langlundargeð í sambandi við þessa útgáfustarfsemi okkar. Oft hugleiddi ég, Jiegar ég hitti hann á vinnustað hans eða förnum vegi, hressilegan og léttan í spori, hversu óvenjulega vel hann bar aldurinn, en hann varð rúmlega áttræður. Einnig Jiótti mér sem nafnið á fyrirtæki hans ætti einstaklega vel við hann sjálfan, sem bókstaflega leiftraði af lífsorku og starfs- gleði. Blessuð sé minning Gunnars Ein- arssonar. GuSný Helgadóttir. 40 19. JÚNÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.