19. júní


19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 22

19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 22
virði og örorkulífeyrir, sem óneitanlega er dálítið undarleg hugmynd. Einnig var farið fram á hækkun greiðslu sem ógift móðir á rétt á ef hún fær ekki greidd laun, þann tíma sem hún leggur niður vinnu, vegna barnsburðar. Veruleg lagfæring kom siðar fram í þeirri endur- skoðun sem lauk í apríl 1971, en eftir stóðu þó nokkur atriði sem konum voru ógeðfelld. Það var ekki greiddur barnalífeyrir með barni móður sem var öryrki nema sérstaklega stæði á. Það var engin heimild til þess að greiða lífeyri með ófeðr- uðu barni. Ekkill fékk ekki bætur við fráfall eigin- konu. Sjúkradagpeningar húsmæðra voru enn mið- aðir við að afrakstur vinnu hennar væri jafn örorku- lífeyri. Öll þessi misréttisákvæði voru síðar þurrkuð úr lögunum á árunum. 1972-1974. Um bamalifeyri segir nú í lögunum: „Barnalíf- eyrir er greiddur með börnum yngri en 17 ára ef annað hvort foreldra er látið eða er örorkulífeyris- þegi. Séu báðir foreldrar látnir eða örorkulífeyris- þegar skal greiddur tvöfalldur barnalífeyrir.“ Þetta er svo eðlilegt og sjálfsagt að manni finnst næstum ótrúlegt að það skyldi taka Alþingi aldarfjórðung að komast að þessari niðurstöðu. Það er nú heimilt að greiða með ófeðruðu bami ef tryggingaráð metur þau gögn sem fram koma í málinu fullnægjandi. Ákvæði um bætur við fráfall maka em nú á þessa leið: Hver sem á lögheimili hér á landi og verður ekkja eða ekkill innan 67 ára ald- urs á rétt á bótum í sex mánuði og síðan í 12 mánuði í viðbót, ef böm yngri en 17 ára eru á framfæri. Einstæður faðir sem heldur heimili fyrir börn sin á nú rétt á launum sem tilsvara mæðralaunum og fái faðir við skilnað úrskurð um meðlagsgreiðslu frá móður vegna bams þeirra sem hann hefur á sínu heimili getur hann snúið sér til Tryggmgastofn- unarinnar með þann úrskurð á sama hátt og fráskil- in kona. Sjúkradagpeningar eru nú takmarkaðir við ákveð- ið hámark sem er það sama fyrir alla og dagpeningar húsmæðra lúta ekki öðrum takmörkunum. Tekið var tillit til mismunandi framfærsluhyrða einstaklinga með því að hækka greiðslur vegna barna hins sjúka. Þannig hefur verið náð fullkomnu jafnrétti karla og kvenna i þessari mikilvægu löggjöf, en konur munu vafalaust engu að síður halda áfram að hafa vakandi auga á lögunum. Bótaupphæðir og fram- kvæmd laganna skera úr um það, hvort góðar laga- greinar veita þá stoð í lífsbaráttunni sem ætlast er til. Það er einnig rík ástæða til þess að halda áfram að endurskoða þessa löggjöf og nota hana í æ ríkara mæli til þess að jafna lífskjör manna en krafan um jöfnuð lífskjara er jafnan ofarlega á baugi á þing- um kvenna. Mikilvægasta verkefnið sem framund- an er hlýtur að vera, að skapa öllum þegnum sam- bærilega réttarstöðu að starfsævinni lokinni, með því að sameina kerfi almannatrygginga og lifeyris- sjóða. Ég efa ekki að konur munu eiga ríkan þátt í að koma þeirri réttarbót á. ItáiVsl eliia aií liáli‘1 I.ol’iliúilinii Jiann 20. o“ 21. júní 1075 Ráðstefnan hefst kl. 10. f. h. báða dagana. Stutt fram- söguerindi um jafnréttis-, þróunar- og friðarmál verða flutt árdegis ,en síðdegis unnið í starfshópum. Frummælendur verða: Aðalheiður Bjarnadóttir, Sóknarstarfsstúlka, Björg Einarsdóttir, skrifstofumaður, Elin Aradóttir, húsmóðir í sveit, Erla Eliasdóttir, fulltiúi, Guðrún Halldórsdóttir, skólastjóri, dr. Gunnar G. Schram, lektor, Haraldur Ólafsson, lektor, Katrin Friðjónsdóttir, félagsfræðingur, Kristín Tryggvadóttir, kennari, Ólafur Egilsson, deildarstjóri, dr. Selma Jónsdóttir, forstöðumaður, Steinunn Harðardóttir, félagsfræðingur, Steinunn Ingimundardóttir, skólastjóri, Stella Stefánsdóttir, verkakona, Vilborg Harðardóttir, blaðamaður. 20 19. jtjní
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.