19. júní


19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 21

19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 21
fram. Það kemur inn ákvæði um barnalífeyri, sem greiddur er öryrkjum, ellilífeyrisþegum og ekkjum. Réttur ekkjunnar féll þó niður að þrem árum liðn- um, ef hún gekk í hjónaband eða stofnaði til sam- búðar. Heimilt var að greiða ekkli allt að hálfum barnalífeyri ef fyrirsjáanlegt var að tekjur hans Jirvkkju ekki til þess að sjá fjöJskyldunni farborða. Þetta með rétt ekkilsins er þarna mjög sómasam- lega orðað miðað við þann ríkjandi skilning að karl- menn einir væru framfærendur heimila eða svo til. Barnalífeyrir var greiddur ef barn átti ekki vinnu- færan föður á lifi, væri barnið móðurlaust kom þó til greina að veita föður þess nokkra hjálp, ef liann gat ekld séð fjölskyldunni farborða. Síðar þegar kon- ur liöfðu ruglað dálítið þessa einföldu fjölskyldu- mynd sem löggjafinn hafði fyrir sér og vildu fá það fram að greiða ætti bætur vegna fráfalls eða örorku móður, vegna þess að hún væri einnig framfærandi barnanna, lenti löggjafinn í mun lakara orðalagi. Þannig stóð í þeirri útgáfu laganna sem samþykkt var 1963: „Tryggingarráð getur ákveðið að greiða ekkli allt að fullum barnalífeyri ef fráfall eiginkonu veldur tilfinnanlegri röskun á afkomu hans.“ Það sjónarmið að gift kona sé á framfæri eiginmanns síns gengur eins og rauður þráður í gegnum lögin frá 1946. Þar er ákvæði um fæðingarstyrk fyrir allar mæður og nokkra viðbót áttu þær konur að fá sem Jögðu niður launaða vinnu, en gift kona því aðeins að eiginmaðurinn gæti ekki séð heimilmu farborða. Sama gilti um sjúkradagpeninga, þá fær gift: kona því aðeins, að hún færi sönnur á að eiginmaður henn- ar geti ekki séð henni farborða. En konur fengu eitt mjög mikilvægt atriði inn í lögin frá 1946. Kona sem hefur fengið meðlagsúr- skurð með barni sínu fékk rétt til að framvísa þeim úrskurði í Tryggingastofnuninni og fá meðlagið greitt þar. Þetta ákvæði liefur staðið í lögunum síð- an, Lil ómetanlegi’a hagsbóta fyrir mæður óskilget- inna barna og fráskyldar konur. Árið 1948 halda konur landsfund og fagna lögun- um frá 1946. Þær vænta þess fastlega að endurskoð- un Jaganna, sem þá liafði verið ákveðin, „hnigi fyrst og fremst í þá átt að bæta réttindi þeirra sem minnst mega sín.“ Og síðan l)enda þær á 10 atriði sem lag- færa þurfi. Þar er t. d. krafa um að fjölskyldubætur skuli greiða vegna allra barna, einnig þeirra, sem bamalífeyrir er greiddur með, en þótt undarlegt megi virðast voru þessi börn höfð útundan þegar fjölskyldubótunum var úthlutað. Sennilega hefur verið litið svo á, að tryggingarnar væru búnar að láta nóg af hendi rakna til þeirra með greiðslu bamalíf- eyris, en liann var eins og áður sagði, greiddur ef faðir barns var látinn eða öryrki. Þetta vakti þá spurningu hvort tryggingalögin litu svo á að barni væri betur borgið fjárhgslega með barnalífeyri frá tryggingum en því sem fullvinnandi faðir léti þvi í té. Landsfundurinn fór einnig fram á mæðralaun og taldi konur sem vinna á eigin lieimilum eiga sama rétt til sjúkrabót en aðra þjóðfélagsþegna sem vinnu stunda. Lögin voru endurskoðuð og þegar konur koma saman á landsfund árið 1956 er komið inn ákvæði um mæðralaun, sem greidd eru einstæðum mæðrum með 2 börn eða fleiri á framfæri. Sá fundur sendi ráðamönnum kröfur í 8 liðum og snémst margar þeirra um hækkun bótauppliæðar, það er farið var fram á að árlegur ellilífeyrir sé ekki lægri en 14 af tekjum Dagsbrúnarverkamanns og að hjón fái að njóta sama ellilífeyris og tveir einstaklingar. Þess er krafist að hjónum séu greiddir sjúkradagpeningar eftir sömu reglu og öðrum einstaklingum og beðið um að heimilt verði að greiða einstæðum mæðmm mæðralaun, þótt þær hafi ekki nema eitt barn á framfæri sínu. Næstu árin var lítið um lagabreytingar og sam- þykktir kvennafunda árin 1958, 1960 og 1962 vom svipaðar þeim sem gerðar voru 1956. Með lagabreyt- ingu árið 1963 náðist fram sú krafa að barnalífeyrir skyldi greiða óháð því, hvort ekkja giftist aftur eða eklci. Konur höfðu oft bent á að óréttlátt væri að fella niður framfarrslueyri barns látins föður ef móðir barnsins gengi i lijónaband að nýju. Þetta þótti kon- um enn fráleitara þar sem engin slík takmörkun var á milligöngu trygginganna vegna meðlagsgreiðslu, sem aðrar einstæðar mæður áttu rétt á. Þetta mis- ræmi lagaði löggjafinn reyndar eitt sinn snarlega þegar á það var bent, með því að minnka rétt frá- skildu konunnar niður í rétt ekkjunnar. Það rétt- læti joótti konum ekki nógu gott en rétt og endaleg leiðrétting fékkst 1963. Árið 1970 er enn unnið að endurskoðun trygginga- laga og enn senda konur AJþingi og ríkisstjórn til- lögur sinar. Þar er fyrst rætt um það, að uppliæð barnalífevris skuli á hverjum tíma vera helmingur af meðalframfærslukostnaði barns og að bamalíf- eyrir skuli greiddur til 17 ára eða 18 ára aldurs. Það var farið fram á hækkun á sjúkradagpeningum hús- mæðra, en upphæð þeirra var miðuð við það að vinnuframlag fullfrískrar húsmóður væri jafn mikils 19. JTJNÍ 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.