19. júní


19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 19

19. júní - 19.06.1975, Blaðsíða 19
Æðri menntun, sérstaklega á „humanistiska" svið- inu, sýnist, vera í sæmilegu lagi, einkum í þeim tveim löndum, sem síðast voru nefnd. Bókmenntaáhugi ,,yfirstéttanna“ vh-ðist talsverður, ekki síst í Nicara- gua, enda geta þeir stært sig af að hafa átt ljóðskáld það, Ruben Dario (F. R. Gracia Sarmiento 1867— 1916), sem snjallast var talið á spænska tungu á sín- um tíma. Ljóst er, að áhrif hans hafa verið geysileg og eru raunar enn. Þess er naumast að vænta, að meðal þjóða með svo lága almenna menntun hitti maður oft fyrir fólk, sem veit einhver deili á landi, sem liggur uppi við heimskautsbaug. Þess vegna kom manni óneitanlega skemmtilega á óvart að rekast á í blaði í Nicaragua langa og ýtarlega grein um landhelgisdeilu hreta og islendinga, skrifaða af manni, sem heima átti í smábæ alllangt frá höfuðborginni. Var greinin skrif- uð af svo mikilli þekkingu á málavöxtum, að ég hygg, að margur landinn mætti gæta sín. Fór höfundur ómjúkum orðum um framkomu breta í þessu máli, enda sjálfsagt verið kunnugt um strandhögg breskra sjóra'iiingja í Mið-Ameríku fyrir tæpum þrjú hundr- uð árum. Geta má þess, að í landafræðikennslubókum fyrir unglingaskóla í Costa Rica er greint frá fundi Vín- lands og Vínlandsferðunum og því haldið fram, að Kólumbus hafi haft spurnir af þeim. Hvað stendur svo um Costa Rica í okkar kennslubókum? Fólkið í þessum löndum kemur mér fyrir sjónir sem áberandi listrænt að eðlisfari. Varia getur að líta svo auman kofa, að ekki sé hann blómum skreytt- ur. Að vísu eru blóm auðfengin og auðræktuð á þess- um slóðum. Fólkið er og að jafnaði glaðlynt, góðlynt og kurteist, og ákaflega lítið þarf til að lokka fram bros á varir þess. Gætum við hér uppi við Dumbs- haf lært að brosa í umferðinni, eins og þetta fólk þó gerir þrátt fyrir allan hraðann, þá væri vel. Það skal játað, að ýmislegt má að þessu fólki finna. Eitt af því óviðfeldnasta í fari þess er, hvað lítið er byggj- andi á orðum þess og erfitt er að vekja hjá því áhuga, sem endist lengra en til orðanna. Mrituþægni er lendska, sem erfitt er að fella sig við. Þrátt fyrir þetta er mér ósjálfrátt hlýtt til þessa fólks, ef til vill fremur þegar ég er ekki lengur meðal þess, og minnist með þakklæti glaðværðar þess og áhyggjulevsis. JJátíJci^nnclurinn 14- jdní 1975 í ^JJáóhófábíói Gestur fundarins og aðalræðumaður verður Eva Kolstad, fulltrúi í fastanefnd Sam- einuðu þjóðanna um stöðu kvenna og formaður kvennaársnefndar Noregs. Sigríður Thorlacius formaður Kvenfélagasambands fslands setur fundinn og kynnir er Vigdís Finnbogadóttir leikhússtjóri. Flutt verður samfelld dagskrá um vinnandi konur á íslandi, sem starfshópur íslenskunema við Háskólann hefur tekið saman undir stjórn Óskars Halldórssonar lektors, en Bríet Héðinsdóttir leikari stjómar flutningi. Geirlaug Þorvaldsdóttir les ljóð eftir Drífu Viðar með tónlist eftir Jórunni Viðar, sem höfundur flytur, og Kammermúsikklúbburinn leikur. Fundurinn er öllum opin. 19. jtjní 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.