19. júní - 19.06.1975, Page 16
tjóni, og auk þess valdið útrýmingu ýmissa smádýra,
sem á landi lifa, eða þeim hefur fækkað svo mjög,
að á stórum svæðum mun saga þeirra brátt vera á
enda.
Af því sem hér hefur verið sagt, má ljóst vera,
að einnig á þessum stöðum hljóta menn að vinna
,,í sveita síns andlitis“.
Það fer naumast hjá því að sá, sem frá norður-
slóðum kemur, hrifist af fjölbreytni og fegurð hita-
beltisgróðursins. Eða hvað má segja um limgirðingu
úr hawairósum, sem eru tveggja til þriggja metra
háar, og úr jólastjömum af svipaðri stærð? Og svo eru
það „orchidear“, sem hafa fengið svo óskemmtilegt
nafn á íslensku, að ég fæ mig ekki til að nota það.
í Costa Rica lifa um þúsund mismunandi tegunda
„orchidea“ villtar, og þar mun vera mesta safn þess-
ara fögru jurta í heimi. Breti nokkur kom safninu á
fót, en nú hefur háskólinn í San Tosé tekið við því.
Gaman er að virða fyrir sér gróðurfar í mismun-
andi hæð í fjalllendi. Skemmtilegast dæmi um það
hefi ég frá eldfjallinu mikla, Irazu, í Costa Rica.
Irazu nær 3432 metra hæð yfir sjó, og af tindi þess
má í góðu skyggni sjá frá hafi til hafs. Þegar komið
er í um 2000 metra hæð fer að bera á plöntum,
sem maður kannast vel við héðan af norðurslóðum,
en ekki sjást á láglendi þar suður frá. Sérstaklega
kom mér á óvart að hitta þar fyrir venjulega 'hvita
smárann okkar og undafífla, en hvoruga hefi ég séð
annars staðar i Mið-Ameriku. Eldfjöll setja mjög
sinn svip á Mið-Ameríkulöndin vestan til, allt frá
Guatemala og niður til Costa Rica. Eldfjöllin eru
á linu, sem liggur nokkurn veginn samsiða vestur-
ströndinni. Mörg þeirra eru virk, og hafa gos í þeim
oft valdið miklu tjóni. Þannig má nefna gos í Irazu
í Costa Rica 1963 og 1965, einnig mikið gos í Arenal
í sama landi 1968, en það eldfjall var á öllum kort-
um merkt sem storknað fram til þess tíma. Meira
brosleg er sagan um Isalco í E1 Salvador, en það
eldfjall hafði verið virkt frá því 1770. Af þvi að
stöðugt gos var í Isalco og stórkostlegt að horfa á það
af fjalli þar rétt hjá, sérstaklega að næturlagi, hugð-
ust menn hafa af því nokkurt gagn. Var með æmum
kostnaði byggt hótel, þar sem gott útsýni var yfir
gíginn, sem stöðugt spjó eldi og eimyrju og var ætlað
að draga ferðafólk til hótelsins, því að fáir staðir á
jörðu hér geta boðið upp á slíkar sýningar. En svo
nokkrum dögum áður en opna átti hótelið, hætti
Isalco gosum og hefur ekki látið á sér bæra siðan.
Þar með var sá draumur búinn.
.Tarðhiti er víða í Mið-Ameríku, einkum í Guate-
mala. Einmitt um þessar mundir mun verið að reyna
fyrstu jarðgufustöðina í Mið-Ameriku. Er hún í E1
Salvador skammt frá landamærum Guatemala. Hafa
íslendingar komið talsvert við forsögu þeirrar stöðv-
ar og við jarðhitarannsóknir í Mið-Ameríku.
Jarðskjálftar eru tíðir í þessum löndum, og er
skammt að minnast eyðileggingar Managua 23. des-
ember 1972. Áður hafði sú borg hrunið í jarðskjálfta
1931.
Náttúrufegurð er víða óviðjafnanleg í þessum
Risavaxnar cldf jallakeilur
slanda upp úr skýja-
þykkninu, Irazu-Turni-
alba Costa Rica. (Ljósm.
Jón Jónsson)
.
14
19. JÚNÍ