19. júní - 19.06.1975, Qupperneq 33
Starf
Kvenréttindafélagis I§land§
Aðalfundur KRFÍ var haldinn 4. mars 1975 að Hallveigar-
stöðum.
Skýrslu stjórnar flutti formaður Guðný Helgadóttir.
Á starfsárinu 1974 voru haldnir 16 stjórnarfundir og 4 fé-
lagsfundir og fundur með kvenréttindanefndum félaga úr
Reykjavík og nágrenni vegna merkjasölu Menningar- og minn-
ingarsjóðs kvenna.
Á aprílfundi hélt Auður Auðuns erindi um hjúskaparlögin,
sérstaklega i sambandi við fjármál lijóna, en ]>að mál var að-
alumræðuefnið á fundi Samtaka norra'nna kvenna haldinn í
Finnlandi í júní 1974.
Var siðan á októberfundinum skýrt frá norræna fundinum
og gerðu ]>að Auður Auðuns og Sigriður Anna Valdimarsdóttir.
Frá fundi ]>essum og ályktunum frá honum má lesa í 19.
júní 1974.
Einnig var skýi-t frá samstarfsnefnd }>eirri sem skipuð var af
KRFÍ og öðrum félögum vegna kvennaársins 1975 og frá störf-
um nefndarinnar.
Desemberfundurinn var að venju með hátiðar og skemmti-
blæ, ]>. á m. var ljóðalestur, einsöngur, sýndar jólaskreytingar,
flutt jólahugleiðing og jólasálmar sungnir.
Janúarfundurinn var að nokkru helgaður kvennaárinu 1975.
f ]>vi tilefni voru rifjuð upp ýinis baráttumál félagsins á liðn-
um árum. Þessi erindi eru á öðrum stað í blaðinu og vísast til
þeirra þar.
1 byrjun ársins 1975 sendi stjórn KRFÍ umsögn sína, um
fóstureyðingafrumvarpið svokallaða lil alþingis og þar sér-
staklega mótmælt, að nefnd sú, sem alþingi skipaði til að end-
urskoða og samræma frumvarpið, vegna umsagna ýmissa aðila,
skyldu vera eingöngu skipuð körlum.
Meirihluti stjórnar KRFf var samþykkur hinu upphaflega
frumvarpi, með nokki-um orðalagsbreytingum.
Formaður sagði að starf KRFf á siðast liðnu ári og það sem
væri af þessu ári væri í tengslum við hið alþjóðlega kvennaár.
F.n yfirlýsingu Sameinuðu ]>jóðanna því viðvikjandi má lesa
í 19. júni 1974.
Samstarfsnefnd var tilnefnd af: Kvenréttindafélagi íslands,
Kvenfélagasamhandi íslands, Félagi íslenskra háskólakvenna,
Menningar- og friðarsamtökum kvenna og Rauðsokkum og
framkvæmdanefnd frá sömu aðilum, sem á að sjá um fund
i Háskólabiói þann 14. júní n. k. svo og ráðstefnu er hefst 19.
júni þar sem fjallað verður um málelni þau, sem Sameinuðu
]>jóðirnar gátu um i yfirlýsingu sinni.
Skýrði formaður frá fyrirhugaðri farandsýningu með þátt-
töku fslands, Álandseyja, Færeyja, Grænlands og Samalands.
Styrkur hcfði fengist frá Norræna meningannálasjóðnum til
sýningarinnar í sumar.
Norræni menningarmálasjóðurinn bauð fulltrúum frá KRFI
og Kvenfélagasambandinu að koma á fund í desember 1974 i
Kaupmannahöfn vegna fyrirhugaðra styrkveitinga úr sjóðnum
vegna Alþjóða kvennaérsins. Sigurveig Sigurðardóttir, Selfossi,
var tilnefnd af Kvenfélagasambandi Islands Lára Sigurbjörns-
dóttir, Reykjavik, var fulltrúi Kvenréttindafélags Islands. Ann-
ar fundur var haldinn í febrúar 1975 og sátu þann fund
sömu aðilar. Frá hinum Norðurlöndunum komu svo fulltrúar
frá kvenréttinda og jafnréttisfélögum og sátu fundi þessa. Aðal-
skilyrðið fyrir styrkveitingu var að málefnið næði yfir að
minnsta kosti þrjú Norðurlönd.
Bréf barst frá forsætisráðuneytinu, þar sem ákveðið er að
skipa nefnd er kallast Kvennaársnefnd. Var KRFÍ gefinn kostur
á, að tilnefna fulltrúa sinn í nefndina, Var Lára Sigurbjörns-
dóttir tilnefnd í þá nefnd og til vara Sólveig Ölafsdóttir.
KRFI hefur ákveðið að vinna að því sérstakla verkefni, að
konur í launþegasamtökunum taki meiri ]>átt í samningum
og stjórnum stéttarfélaga sinna. Þessar konur voru tilnefndar
til að vinna að þessu, með fundum og umræðum, við viðkom-
andi aðila: Sólveig Ólafsdóttir, Brynhildur Kjartansdóttir, Helga
Möller, Guðrún Gísladóttir og Þórunn Valdimarsdóttir.
Stjórn KRFI hefur sent Póststjórninni þá uppástungu sína,
að á væntanlegu frímerki vegna kvennaársins, verði mynd af
Bríetu Bjarnhéðinsdóttur.
Kosningur
Formaður Guðný Helgadóttir baðst undan endurkosningu,
kvaðst hún fastákveðin að hætta formennsku KRFI. Þökkuðu
félagar Guðnýju Helgadóttur fyrir ágætt starf hennar í þágu
félagsins á liðnum árum og stjórnarkonur þökkuðu henni frá-
bært starf og samstarf.
Formaður var kosin Sólveig Ólafsdóttir og endurkosnar voru
Sigriður Anna Valdimarsdóttir og Lára Sigurbjörnsdóttir.
Stjórn KRFl skipa:
Sólveig Ólafsdóttir, formaður
Brynhildur Kjartansdóttir, varaformaður
Lára Sigurbjörnsdóttir, ritari
Sigriður Anna Valdimarsdóttir
Þóra Bryjólfsdóttir
Fanney Long Einarsdóttir
Guðrún Gisladóttir
Margrét Einarsdóttir
Valborg Bentsdóttir.
19. JÚNÍ
31