19. júní


19. júní - 19.06.1975, Page 36

19. júní - 19.06.1975, Page 36
Margt smátt gcrir eilt stórt Annar liluii eftir Önnii .Sifíiii*it;iriló((iir Ávarpstitlar kvenna Frúartitilinn rekur Snorri Sturluson til Freyju. I Gylfaginningu segir hann: „ . . . af hennar nafni er það tignamafn, er rikiskonur em kallaðar fróvur.“ Og í Heimskringlu segir hann: „ . . . að með hennar nafni skyldi kalla allar konur tignar, svo sem nú heita frúvur. Svo hét og hver freyja yfir sinni eigu, en sú húsfreyja, er bú á.“ Ekki verður af orðum Snorra ráðið, að frúartitillinn eigi við giftar konur einar. Af Maríu mey er sennilega komið ungfrúar- heitið, jungfrú eða jómfrú, eins og það var á fyrri tíð. Þó vom abbadísir í nunnuklaustrum ekki kallað- ar jungfrúr, heldur ævinlega frúr. Espólín kemst svo að orði: „ . . . engir menn vom þá herrar kallaðir eða frúr sem fyrr hafði verið, nema biskupar, áhótar og abbadisir.“ Erlendis vom þó auk þeirra drottning- ar og aðalskonur kallaðar frúr, ef þær þá ekki vom kallaðar herra. Ríkar borgarafrúr, sem ekki máttu vera frúr, fengu seinna titilinn madama, hæði hér á landi og erlendis, og var sá siður við liði um nokkurt skeið, uns þær sættu sig ekki við mismuninn og vildu vera frúr líka. Þær, sem stærst litu á sig, börðust fyrir rétti sínum. Espólin segir svo frá (um 1820): „ . . . lítið var samþykki með þeim konum sýslu- manna, var sú sök til, að Anna Sigriður (kona Páls Melsteds sýslumanns N-Múl.) vildi eigi síður heita frú, fjnrir ættar sakir (hún var amtmannsdóttir, Stef- áns konferensráðs Þórarinssonar), en sú kona er Twede átti, þó hann hefði nafnbót.“ Guðrún Borg- fjörð segir i Minningum sínum (bls. 18) frá konum á Akureyri um 1860: „Þær voru ekki margar, kon- urnar, sem náðu því að vera kallaðar frúr, bara kona sýslumanns og læknis, og að sjálfsögðu kona amtmannsins. Hinar vom bara madömur.“ „Það er ég sem á frúartitilinn hér í firðinum“, var sagt að kona ein á Austfjörðum hafi sagt, er önnur fékk bréf áritað Frú NN. Ekki héldu konur frúartitlinum eftir lát eiginmanns. Þær hétu þá ekkjufmr, en hinar fengu bréf með utanáskriftinni: Ekkja N. N. Engin dæmi þekki ég um, að ekklar hafi fengið bréf með utanáskriftinni: Ekkilherra N. N., Ekkju- maðurinn N. N. eða Ekkillinn N. N. Eru konur ekki menn eða hvað? T sjónvarpinu heyrðist: Níu menn voru drepnir og þrjár konur. — Algengt er að sjá í blöðum setningu líka þessari: Þar var fjöldi manna og kvenna, eða f jöldi æskumanna og kvenna, eða f jöldi iþróttamanna og kvenna. Ætli menn kynnu við hliðstætt orðalag: Á Hóli var fjöldi hunda og tika, og einnig margir hestar og hryssur? Dýr eða skepnur em orðin, sem eðli sínu samkvæmt ættu að koma á eftir orðunum menn og . . . — Ritarar Islendingasagna láta sig aldrei henda þess konar afkáraskap, heldur skrifa þeir ef þeir telja ástæðu til: Þar var fjöldi manna, karla og kvenna. Þeir voru ekki í neinum vafa um að konur væru menn. — 1 Ljósvetningasögu segir um Friðgerði, að hún, „þótti vera kona sæmileg og all- mikill gle'ðimdÖur, og samdi sig mjög í hátt með ung- um mönnum; hún var verkmaður mikill og umsfslu- maður. (Ljósv. 22. kap.) — T Egilssögu segir á ein- um stað: Þá spurði Skalla-Grímur, hvað fleira væri þeirra manna á skipi, er virfiiiigarmenn væm. Bjöm sagði, að þar var Þóra Hróaldsdóltir, systir Þóris hers- is.“ (E. 33. kap.) —„Það var allra manna mál, að 34 19. JÚNÍ

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.