19. júní


19. júní - 19.06.1979, Síða 7

19. júní - 19.06.1979, Síða 7
Fiölskylda sonar. húsnæði til afnota á Vesturgötu og eg tók kostgangara. Seinna fluttum vió í eigið hús við Nesveginn og á siðari árum hingað í húsið til sonar niíns og hans fjölskyldu, þar sem ég hef íbúð fyrir mig á jarðhæð. Bróðir minn hafði lengi aðsetur sitt hjá mér og ógiftur sonur minn er e>nnig hérna til húsa. Það er gott að vera í skjóli ættingja. I\g vann við ræstingar i Reykja- v>kurapóteki þar til ég var 77 ára, °n undanfarin 2 ár hef ég litið eftir langömmubarni mínu, telpu sem nu er á 6. ári. Faðir hennar er son- arsonur minn. Hann er við nám og hona hans, sem er norsk, vildi gjarnan starfa utan heimilis. Fyrst 1 stað bjuggu þau liérna í húsinu, en síðan fluttu þau í annan bæjar- hluta og þá var telpan lijá mér fjórar nætur í viku. Mér finnst ég Vel geta litið eftir börnum, ég er hraust, get eldað mat og haldið hreinu. Gott er ef fjölskyldur búa í sama húsi eða nágrenni og eldri kyn- slóðin, sem hætt er störfum út á við, getur hjálpað þeirri yngri, kynnst börnunum og ungir og gamlir orð- ið félagar. Móðir mín flutti til mín í Reykjavik og mín börn voru með henni og hún gætti dálítið barna- barna minna. Þau elskuðu hana öll og hún var ung fram í andlátið. Telpan er stórrík Eg var aldrei í vandræðum með telpuna, henni var meðfætt að taka til greina hvað sagt var og lilýddi hún er skýr. Umhverfið í kring- um húsið er gott, afi og amma í sama húsi og gæsluvöllur í grennd. Við gerðum æði margt saman, fórum í gönguferðir og þá gætti hún mín fyrir bílum, því mér er farin að daprast sjón. Við fórum í strætisvagni niður að Tjörn og gáfum fuglunum, fórum í morg- unleikfimi og ræddum saman m. a. um væntanlegan lítinn bróður, sem svo fæddist í febrúar. Eg kenndi henni að spila, við spiluðum saman og við nágranna- börn, sem komu og þau kölluðu mig líka langömmu. Stundum sungum við og ég sagði henni sögur og hún vildi heyra um ,Jesú, þegar hann var litill og svo var Búkolla vinsæl persóna, á hana er stundum minnst í útvarpinu. Felpan ber nafn föðurömmu sinnar og norskrar langömmu, slik nafngift veitir öryggiskennd og til- finningu fyrir |íví að vera partur af einhverju. Mér finnst Ingunn Margrét vera stórrík að eiga svona marga nákomna að. Hún er núna úti í Noregi með móður sinni og bróður að vitja ættingjanna þar og við, amman og langamman, fórum með þau út á flugvöll og amman fór með þeim inn í vélina, en ég beið úti i bílnum. Amman sagði í

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.