19. júní - 19.06.1979, Blaðsíða 13
Við Maríubakka hér í Breiðholtinu
°g bjuggum þar í sex ár. Og þegar
börnunum fjölgaði, var orðið anzi
þröngt í litlu íbúðinni og þótti okk-
ur þá, að nú yrðum við að taka
næsta skref og sækja um lóð. Við
kunnum vel við okkur hér uppfrá
og vildum búa hér áfram.
Gerðum við þrjár tilraunir til
þess að komast á bekk hinna út-
völdu við lóðaúthlutun borgar-
yfirvalda, og þegar þetta hafðist
loks í þriðju atrennu, hófumst við
handa, síðan eru liðin tæp þrjú ár.
Grunnurinn reyndist okkur dýr og
þegar |)latan var stey]3t var and-
virði íbúðarinnar, sem við seldum,
uppurið. Það má segja, að við vær-
um (Degar komin fram úr frumfjár-
hagsáætluninni, en þaö var alls
ekki hægt að snúa við“.
„Það hefur fallið i minn hlut að
ganga á milli lánastofnana14, segir
Helga Kristin, Guðmundur vinnur
a verkstæði fullan vinnudag og oft
lengur, en ég vinn utan heimilisins
póstberi fyiir hádegi. Já, við
purftum fljótlega að fá lán til aö
fleyta okkur áfram og síðan önnur
lán til þess að borga af fyrri lánum,
þá upphófst mikill eltingarleikur
við að ná endunum saman, en
okkur hefur tekizt hingað til að
standa í skilum og sömuleiðis að
greiða niður nokkur lán.
Svo kom að því, að við yrðum að
flytja, vorum sem sagt á götunni,
fluttum við þá heim til foreldra
minna suöur í Kópavog, bjuggum
þar í rúmt ár og það var okkur
geysimikil hjálp. Hingað inn i
kjallarann fluttum við svo í júlí og
uppá hæðina á aðfangadag 1978. í
augnablikinu erum við í biðstöðu,
Joví eins og Joú sérð er margt ógert“.
Já, húsið er risið af grunni með
þaki og tilheyrandi, en eitt þúsund
og ótal hlutir eru eftir. Oll fjöl-
skyldan hefur verið iðin við að
steypa, naglhreinsa, pússa og mála,
og hafði Guömundur orð á því, að
þó að hann væri nú iðnaðarmaður
hefði frúin verið yfirsmiðurinn.
Börnin voru lika með inní dæm-
inu, Jdví Baldur litli, sem aðeins er
þriggja ára er orðinn laginn með
hamarinn og ekki létu dæturnar
Katrín og Kristín níu og sex ára
sitt eftir liggja. Af öllu má sjá að
mikil vinna er að baki, því að fyrir
utan allar byggingaframkvæmdir,
eru nú þessi venjulegu störf, sent
alltaf jDarf að sinna, barnauppeldi
og annað eldi. Kom í ljós að Katrín
hefur [^risvar sinnum skipt um
Ótal hlutir enn eftir. . .
skóla vegna flutninga fjölskyld-
unnar, en aðspurð kvað hún það
ekki hafa verið erfitt, hún væri fljót
að eignast nýja vini og aðlagast
nýju umhverfi. Og þar sem börn
eru annars vegar, er í ntörg horn að
lita, t.d. hefur Baldur litli þrisvar
sinnum gengizt undir skurðaðgerð
vegna fæðingargalla. En hjónin
Helga Kristín og Guðmundur hafa
Herbergi Katrínar.